Stjarnan - 01.09.1945, Síða 3

Stjarnan - 01.09.1945, Síða 3
STJARNAN 67 benda fólki sínu á mjög eftirtektarverð at- riði. Tökum til dæmis ástand ísraels manna forðum. Tíminn til að Messías opinberað- ist var kominn, en af því að hann kom öðru- vísi en þeir ætluðu, höfnuðu þeir honum. Takið eftir orðum Frelsarans eftir þriggja ára samveru með þeim: “Jerúsalem, Jerúsalem, þú sem líflætur spámennina og grýtir þá, sem sendir eru til þín, hversu oft hefi eg viljað saman safna börnum þínum eins og þegar hæna safnar ungum sínum undir vængi sér, — og þér hafið ekki viljað það. Sjá, hús yðar skal yður í eyði eftir skilið verða.” Matt. 23,37,38. “Vegna þess að þú þektir ekki þinn vitj- unartíma.” Lúk. 19,44. Einu tilboði eftir öðru hafði verið hafn- að. Þeir lokuðu eyrunum fyrir grátbeiðni hans og spyrntu á móti hinni guðdómlegu náð. Þeir fetuðu í fótspor feðra sinna. Drottinn segir: “Uxinn þekkir eiganda sinn, og asninn jÖtu húsbónda sín, en ísrael þekkir ekki, mitt fólk skilur ekki.” Jes. 1.3. Sorleg er saga ísraels. En samt hefir þessi saga verið skrifuð af ásettu ráði. Hún er aðvörun til vor. “En alt þetta kom yfir þá, sem fyrirboði, og það er ritað til viðvörunar oss, sem endir aldanna er kominn til. Því gæti sá, er hyggst standa, vel að sér, að hann ekki falli.” 1. Kor. 10,11,12. Táknin, sem vér sjáum alstaðar segja oss skýrt og greinilega að endurkoma Drott ins sé nálæg. Frelsarinn sagði er hann var á meðal mannanna: “En þegar þetta tekur að koma fram, þá réttið úr yður og lyftið upp höfðum yðar, því að lausn yðar er í nánd . . . Þannig skul- uð þér og vita, að þegar þér sjáið þetta fram koma. er Guðs ríki í nánd.” Lúk. 21,28-3. (b) Hin heilaga riining er sannleikur frá hinum lifanda Guði. Ein sönnun þess að hin heilaga ritning er innblásin, er sú staðreynd að Guð skrif- ar söguna fyrirfram. Hann sagði við fólk sitt forðum: “Hver hefir kunngjört það frá öndverðu, svo að vér vissum það, eða fyrirfram, svo að vér gætum sagt: “Hann hefir rétt fyrir sér? Nei, enginn hefir kunn- gjört það, enginn látið til sín heyra, enginn hefir heyrt yður segja neitt.” Jes. 41, 26. “Minnist þess hins fyrra frá upphafi, að eg er Guð og enginn annar, hinn sanni Guð og enginn minn líki, eg sem kunn- gjörði endalokin frá öndverðu og sagði fyrirfram það, sem eigi var framkomið, sem segi: mín ráðslyktun stendur stöðug og alt, sem mér vel líkar, framkvæmi eg.” Jes. 46, 9-10. Nebúkadnezar, þenna volduga konung í Babel dreymdi undursamlegan draum, sem spámaðurinn Daníel þýddi þannig: “En sá Guð er á himnum, sem opinberar leynda hluti og hann hefir kunngjört Nebú- kadnezar konungi það, er verða mun á hin- um síðustu dögum, draumur þinn og vitr- anir þær, er fyrir þig bar í rekkju þinni, voru þessar.” Dan. 2, 28. Þegar hinir guðdómlegu spádómar í orði Guðs hafa ræst, ber oss að vita að orð hans eru sönn og þess verð að vér berum fult traust til þeirra í öllu. Spádómarnir sýna ástand síðustu daga og segja fyrir um hin hörmulegu vandræði og þá margvíslegu viðburði, sem vér sjáum alstaðar rætast. Þessir sömu spádómar lýsa því ákveðið yfir að koma Drottins sé mjög nálæg. Það legg- ur áherzlu á hve nauðsynlegt það er að undirbúa sig og vera viðbúin þegar Frels- arinn birtist í skýjum himinsins í mikilli dýrð. Dýrðlegt verður á þeim degi, að fá að sjá Jesú, hann sem vér elskum og þjónum. Nauðsynlegt er að fylgja ráðum hans! “Svo skuluð þér og vaka, því að þér vitið ekki, hve nær húsbóndinn kemur, hvort að kveldi eða miðnætti, eða um hanagal, eða að morgni, að hann hitti yður ekki sofandi, er hann kemur skyndilega. En það, sem eg segi yður, það segi eg öll- um: Vakið.” Mark. 13,35-27. W. E. Read. Nýr viti, sem getur logað og lýst í heilt ár, án þess neitt sé um hann hirt og sést um 12 mílur í burtu, hefur nýlega verið útbúinn af mönnum í ameríska flughern- um til aðvörunar og leiðbeiningar flug- mönnum. Það á að setja vitann á fjalla- toppa og þar sem hætta getur verið á af- skektum stöðum.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.