Stjarnan - 01.09.1945, Qupperneq 7

Stjarnan - 01.09.1945, Qupperneq 7
STJARNAN 71 skilið og athugað, þá mundu þeir sjá að eigingirni þeirra frestar sigrinum. Hver veit nema heimurinn hefði getað komist hjá miklu af yfirstandandi hörmungum, ef kristnir menn hefðu einhuga gengið fram í þeim andans krafti, sem (Juð frambýður þeim til að ljúka við verk hans á jörðunni. Vera má sigurinn yfir hinu illa væri þá þegar unninn og Guðs ríki stofnsett á jörð- unni. Framsóknin verður að aukast í öllum söfnuðum Krists, bæði heima og úti í trú- boðslöndunum. Kristnir menn mega ekki þreytast á að gjöra gott. Þeir mega ekki áfellast unga fólkið fyrir áhuga þess eða daufheyrast við beiðni um fjárframlög til að senda boðbera sannleikans út um heim- inn og halda uppi starfi þeirra þar. Vér höfum frestað sigrinum of lengi. S. T. “Drottinn Guð þinn skalt þú tilbiðja5’ Skapari og viðhaldari allra hluta, hinn lifandi, sanni Guð, er einn þess verður að vér berum lotningu fyrir honum og til- biðjum hann. Þess vegna er oss bannað að taka nokkurn til jafns við hann eða fram yfir hann. Jesús staðfesti fyrsta boðorðið þegar Satan freistaði hans og hann svar- aði: “Drottinn Guð þinn átt þú að tilbiðja og þjóna honum einum.” Matt. 4:10. Til er einn, og aðeins einn Guð, sem vér eigum að tilbiðja. Rómverjar voru fúsir til að viðurkenna og gefa pláss í helsta goðahofi sínu hvaða guði sem var. Þeir hötuðu hina fyrstu kristnu fyrir það að þeir vildi ekki telja Jesúm Krist, sem einn meðal hinna mörgu heiðnu guða er geymd- ir voru í þeirra nafnkunna goðahofi. Heiðin trúarbrögð hafa fjölda guða, þeir sem í myrkrinu sitja geta valið milli þeirra. Hindúar hafa nógu marga Guði til þess hver einstakur geti haft sinn eigin guð ef hann óskar þess. Páll postuli segir er hann skrifar til Korintumanna: “Jafnvel þó guðir séu kall- aðir, svo vel á himni sem á jörðu ... þá höfum vér ekki nema einn Guð, Föður- inn frá hverjum alt er og vér í honum.” IKor. 8:5.6. Sumir álíta að fyrsta boðorðið hafi ver- ið nauðsynlegt fyrir ísraelsmenn, sem komu út af Egyptalandi og tilbáðu gull- kálfa og önnur goð, en það sé óþarft fyrir oss á þessum upplýstu framfaratímum. Þeir leyfa sér einnig að bæta við, að fólk- ið í Asíu og Afríku þurfi ef til vill að vera ámint um að hafa ekki aðra Guði en skap- ara alheimsins, hinn lifandi Guð, en fólkið í kristnum löndum þurfi als ekki þetta boðorð. Hinn mikli prédikari Moody segir: “Vér þurfum ekki að fara til heiðinna landa til að finna falsguði. Ameríka er full af þeim. Hvað sem þú virðir mest er Guð þinn. Hver eða hvað, sem þú elskar meira en Guð er hjáguð þinn. Hjarta margra manna líkist kofa Kaffíra manns- ins, hann var svo fullur af hjáguðum að maðurinn gat varla snúið sér við þar inni. Ríkir og fátækir, lærðir og fáfróðir, allar stéttir manna og kvenna hafa brotið þetta boðorð: “Þú skalt ekki aðra guði hafa.” (Weight and Wanting bls. 22—23). Websters orðabók gefur þessa skýringu á orðinu guð: “vera eða hlutur, sem virt er hið æðsta og besta. Það sem mest er metið”. Hvað sem vér elskum mest eða sækjumst mest eftir getur orðið vor hjá- guð. Maður nokkur heimsótti kínverskt forn- gripasafn fyrir nokkrum árum síðan. í sýningarkassa einum var merkisspjald, sem á var ritað: “Guð Ameríku manna”. Fyrir neðan spjaldið hékk amerískur silfur doll- ar, steyptur í Bandaríkjunum. Kínverjar höfðu tekið fyrir alvöru það sem stóð á peningnum: “Guði treystum vér”, og á- lyktað svo að dollarinn væri guð Ameríku manna. Ágirndin (eftirsókn eftir fé) er rót als ils, í hverja nokkrir hafa svo fíkst að þeir hafa vilst frá trúnni.” lTím. 6:10. Tveir menn gengu framhjá skrautlegum búgarði og ræddu um hve fagur hann var. “Hvað skyldi hann vera mikils virði?” spurði annar þeirra. “Eg veit það ekki svaraði hinn, “en eg veit hvað núverandi eigandi lét fyrir hann.” “Hvað mikið var það?” “Hann gaf velferð sálar sinnar fyrir hann,” svaraði hinn.

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.