Stjarnan - 01.09.1945, Síða 8
72
STJARNAN
Það er sorglegt hve margir sækjast eft-
ir þessa heims gæðum, og selja sálu sína
fyrir jarðneska hluti. Þeir eiga svo ann-
ríkt að safna þessa heims gæðum, að þeir
hafa engan tíma fyrir Guð sinn og skap-
ara.
Jóhannes postuli ritar: “Elskið ekki
heiminn, ekki heldur þá hluti sem í honum
eru, ef nokkur elskar heiminn í honum
er ekki kærleiki Föðursins.” lJóh. 2:15.
Þeir finnast í þessum heimi, sem heldur
vildu hafa háa stöðu í stjórninni, heldur
en sitja til hægri handar Guði á himnum.
Hversu margir gjöra sér ekki hjáguði úr
valdi og stöðu. I þeirra augum er vald og
upphefð hið eftirsóknarverðasta, það er
hjáguð þeirra.
Þegar Páll skrifaði til Efesusmanna set-
ur hann ágjarna á bekk með skurðgoða-
dýrkendum. Sá ágjarni lætur stjórnast af
girnd sinni til að afla fjár. Efes. 5:5.
Moody gefur í skyn að margir á þessum
tímum hafi tízkuna fyrir sinn Guð. Annar
kristinn starfsmaður segir: “Tízkan hefir
verið hjáguð heimsins barna, og hún leitar
oft inngöngu hj á meðlimum kristinna safn-
aða.”
Annar hjáguð sem menn tigna eru ver-
aldlegar skemtanir. Yér lifum á því tíma-
bili sem bæði ungir og gamlir leita skemt-
ana, einhvers sem æsir og hrífur tilfinn-
ingarnar. Efst í huga miljóna manna er
þráin eftir að skemta sér.
Páll postuli sagði fyrir þetta ástand fyrir
1900 árum síðan: “því það skaltu vita að
á síðustu dögum, munu verða hættulegar
tíðir því, þá munu menn vera . . . hroka-
fullir elskandi munaðarlífið meir en Guð.”
2Tím. 3:1—4.
í voru landi þar sem siðmenning og
framfarir eru á svo háu stigi eru miljónir
manna sekar fyrir Guði um að hafa brotið
fyrsta boðorðið. Sekt vor er enn stærri
fyrir það að vér höfum haft besta tæki-
færi til að þekkja Guðs orð og lesa heilaga
Ritningu svo vér höfum enga afsökun ef
vér dýrkum slíka falsguði sem upphefð,
vald, skemtanir eða tízku.
Snúum baki við öllum falsguðum en
leitum hins lifandi sanna Guðs af öllu
hjarta og allri sálu.
R. H. Pierson.
STJARNAN kemur út einu sinni á
mánuði. Verð: $1.00 á ári. Borgist
fyrirfram. Publishers: The Canadian
Union Conference of S. D. A.,
Oshawa, Ont.
Ritstjórn og afgreiðslu annast
Miss S. Johnson, Lundar, Man. Can
Smávegis
Það borgar sig að vera kurteis við hæn-
urnar. Þetta er haft eftir búfræðadeild
Arizona háskólans. “Vertu kurteis við fugl-
ana”, seg'ir í fræðslubók þeirra. “Berðu
hægt að dyrum hjá þeim til að láta þær
vita að þú sért að koma. Þetta kemur í
veg fyrir að þær verði hræddar, og þá
leggja þær fleiri egg.
4- ♦ ♦
1. maí var borgin Moskva lýst upp eftir
nærri fjögra ára ljósleysi vegna stríðsins.
♦ ♦ ♦
íbúatala Bandaríkjanna 1. júlí 1944, var
138.100.874 að meðtöldum þeim er voru í
hernum erlendis. Samkvæmt skýrslunum
hafði íbúum fjölgað síðan 1940 um
6.431.599 manns.
♦ ♦ ♦
Járnbrautir Bandaríkjanna flytja skip-
pund af vörum þrjár mílur fyrir minna
gjald, heldur en kostar að senda alment
bréf til næsta nágranna þíns.
♦ ♦ ♦
Eyjan Cuba hefir að minsta kosti 10 ný-
boraða olíubrunna. Olían er svo létt og
hrein að það má nota hana eins og hún
kemur úr brunninum til að keyra flutn-
inga tæki.
♦ ♦ ♦
Borgirnar Montreal og Toronto ráðgjöra
að búa út neðanjarðargöng fyrir flutninga
eftir stríðið. Montreal býst við að þau kosti
60 miljónir dollara og að 8 þúsund menn
hafi vinnu við það í fimm ár. En Toronto
býst við að neðanjarðargöng hennar muni
kosta 52 miljónir dollara og veita 3 þúsund
mönnum atvinnu við bygginguna í 10 ár.