Stjarnan - 01.11.1946, Blaðsíða 1

Stjarnan - 01.11.1946, Blaðsíða 1
STJARNAN NÖV. 1946 LUNDAR, MAN. “Hvað skai eg þá gjöra við Jesúm?” Pílatus ibar fram þessa alvarlegu spurn- ingu. Hann hefir verið Hyrirlitinn fyrir Iþann ,hlut sem hann átti í krossfestingu Krists, en ihann var ekki eins vondur eins og almennt er álitið; hann. gjörði tilraun til að frelsa Jesúm frá dauða, ef prestarnir hefðu viljað leyfa að Barrabas yrði kross- festur en Jesús látinn laus. En prestarnir og Farísearnir heimtuðu að Jesús yrði krossfestur, og þeir eggjuðu alþýðuna til að biðja hins sama. Þá var það að Pílatus spurði: “Hvað s'kal eg þá gjöra við Jesúm sem Kristur kalllast?” Þessi spurning mætir oss daglega. Vér þurfum að leggja áherzluna á fornafnið eg. “Hvað skal eg gjöra við Jesúm?” Allir verðia að svara þessari spurningu. Ef til vill getur einhver sagt: “Eg ætla ekki að svara þeiriri spurningu, enginn getur 'heimt- að iþað af mér eða neytt mig til þess.” En allir hljóta að svara spurningu þessari; þeir gjöra !það- með framkomu sinni gagn- vart honum. Annaðhvort hajna þeir hon- um, vanrækja hann eða þeir meðtaka hann. Þegar iþú sér mynd af Jesú, minnir það þig á spurninguna: “Hvað skal eg gjöra við Jesúm?” Þegar þú skrifar sendibréf minnir iþað þig á fæðing Jesú. Hvert skifti sem þú sér sannkristinn mann, sem endur- speglar Jesú hugarfar, kemur spurningin tilí þín: “Hvað skal eg gjöra við Jesúm?” Þegar Pílatus spurði: “Hvað skal eg þá gjöra við Jesúm er Kristur kallast?” Hrópuðu Gyðingar: “Krossfestu hann, krossfestu hann.” Þeir höfnuðu honum og voru sök í því að hann var krossfestur. Þeir höfðu enga hugmynd um hina skelfi- legu afleiðing þess, fyrir þá sjálfa, að þeir höfnuðu honum. Eyðilegging og flótti hef- ir verið hlutskifti þeirna síðan. Það hefir alvarlegar og voðalegar afleiðingar að hafna Kristi. Fjöldinn af fólki líður fyrir það að van- rækja Jesúm, gefa honum engan gaum. Flestir sem nokkurn tíma hafa heyrt um Jesúm, hafa einhvern tíma á æfinni ásett sér að meðtaka hann. Börn á Biblíuskóla, unglingar á kristilegri samkomu, menn og konur á fullorðins árunum, sem hafa orðið fyrir sorg, eða verið hrifin af prédikun, hafa oft óskað eftir að verða frelsuð, og hafa ásett sér að meðtaka Jesúm, því að það væri hið' eina rétta og skynsamlega að gjöra, en því miður hafa margir slegið þessu á frest þar til það var of seint. Ungur maður sem var stýrimaður á seglskipi hlustaði með athygli á gamla skipstjór'ann, er hvatti hann til að með- taka Jesúm sem frelsara sinn. Stýrimaður var sannfærður um að hann ætti að gjöra það og viðurkenna frelsarann. En hann sagði við skipstjórann: “Þegar eg kem heim, ætla eg að gifta mig, og þá ætla bæði eg og konan míri að meðtaka Jesúm og hafa daglega Guðs or'ð um hönd á heim- ili okkar.” En skipstjórinn bað hann: “Kom til Jesú og j átaðu hann nú, Guð veit hvort þú ’kemst heim eða ekki.” Ungi mað- urinn svaraði: “Við erum ekki langt frá höfninni. Eg er viss um við íhöfum enga erfiðleika með að ná landi.” Skipstjóri gekk niður í klefa sinn og fór að sofa. Um miðnætti var hrópað: “Maður féll útbyrðis.” Skipstjóri vaknaði, flýtti sér upp á þilifarið og spurði hvað um væri að vera. Honum var sagt að stýri- maðurinn hefði fallið útbyrðis. Hann ha-fði verið á gangi á þilfarinu þegar vindurinn sneri sér fljótlega og sveiflaði seglinu yfir að hinni hlið skipsins. Seglið hitti stýri-

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.