Stjarnan - 01.11.1946, Side 4

Stjarnan - 01.11.1946, Side 4
84 STJARNAN il'llræmdan ræningja, er ihét Barrabas og var upphlaupsmaður og morðingi. Pílatus snéri sér að lýðnum og mælti með mikilli alvöru: “Hvorn æslkið iþér að eg gefi yður laus- an, Barrabas, eða Jesúm, sem kallast Kristur?” Matt. 27: 17. En þeir kölluðu upp, allir einu hljóði og sögðu: Burt með þenna mann, en gef oss Barrabas lausan. Lúk. 23: 18. Pílatus stóð orðlaus af undrun og von- brigðum. Með því að breyta á móti sann- færinigu sinni og bera málið undir lýðinn, misti ,hann virðingu sína og valdið yfir fólkinu. Hér eftir var hann einungis verk- færi í höndum þess, því nú gat það haft hann eins og það vildi. Hann spurði: “Hvað á eg þá að gjöra við Jesúm, sem Kristur er kallaður?” Með einum munni- hrópuðu þeir: “Hann skal krossfestur.” En hann sagði: “Hvað ílt 'hefir hann þá gjört?” En þeir æptu þess ákafar og sögðu: “Hann skal krossfestur!” Matt. 27: 22, 23. Pílatus fölnaði, er hann hevrði þetta hræðilega óp: “Hann skal krossfestur!” Hann hafði aldrei hugsað að það mundi komast svona langt. Hann hafði marg- sinnis sagt að Jesús væri saklaus, en þó heimtaði 'lýðurinn að hann skyldi þola þann hræðilega dauða. Hann spurði því aftur: “Hvað ílt hefir hann þá gjört?” Aftur heyrðist þetta óttalega óp: “Krossfestu hann! Krossfestu hann!” Pílatus gjörði enn hina síðustu tilraun til að hræra lýðinn til meðaumkvunar, en árangurslaust. Særður, þreyttur og máttvana var Jesús húðstrýktur í augsýn þeiira er ákærðu hann. “Og hermennirnir (fléttuðu kórónu af þyrnum og settu á höfuð honum, og færðu hann í purpurakápu; ogþeir gengu til hans og sögðu: Heill vert þú, konungur Gyð- inganna! Og þeir gáfu honum kinnhest.” (Jóh, 19: 2, 3). Þeir hræktu á hann, og einn þeirra tók reyrstafinn, ©r þeir höfðu fengið honum, og slló með honum á þyrnikórónuna, er hann hafði á höfðinu, svo þyrnamir stung- ust inn í enni hans og blóðið rann niður andlitið. Það var Satan, sem var forsprakki her- mannanna við þessa grimmilegu misþyrm- ingu á frelsaranum. Áform hans var, ef mögulegt væri, að reita hann til reiði og fá hann til að hefna sín, eða að koma honum til að frelsa sjálf- an sig með kraftaverki, og ónýta þannig endurlausnar-:áformið. Ef Jesús hefði haft einn einasta blett á lífi sínu, ef hann hefði í eitt einasta sinn látið bugast á þessari þungu reynslustund, þá hefði það guðs lamb verið ófullkomin fórn, og endurlausn mannanna mistekist. En hann, sem réði yfir herskörum himn- anna og á hverju augnabliki gat kallað englasveitir sér til hjálpar, hann, sem með því að opihbera hátign sína og guðdóms- 'kraft, hefði getað slegið kvalara sína til jarðar á svipstundu, já, hann bar nú með göfugri rósemi hið smánarlegasta spott og rangsleitni. Eins og kvalarar Jesú óvirtu sjálfa sig með framkomu sinni, svo að þeir urðu lík- ari djöflum en mönnum, eins sýndi Jesús með þolinmæði sinni og langlundargeði, að hann var hátt hafinn yfir onennina og hafði guðlegt eðli. Pílatus varð mjög hrærður af fram- komu hans. Hann gjörði boð eftir Barra- bas, og hann var færður inn í dómssalinn. Hann lét fanigana standa hvem við hlið- ina á öðrum, benti á frelsarann og mælti alvarlega og í klökkuim róm: “Sjá, þar er maðurinn! Eg leiði hann nú aftur út til yðar, til þess að þér vitið, að eg finn enga sök hjá honum.” Jóh. 19: 5, 6. Þarna stóð sonur guðs, klæddur purp- urakápu og með þyrnikórónu á höfði og blóðugt andlit, er bar vott um kvalir og þreytu; en aldrei hafði það verið fegurra en nú. Svipurinn lýsti mildi og undir- gefni og hinni innilegustu meðaumkvun með Ihinum grimmu óvinum. Banidinginn, sem stóð við hlið hans, var algjörlega igagnstæður honum; því hver dráttur í andliti hans lýsti því, að hann væri forhertur glæpamaður. Meðal þeirra, er viðstaddir voru, höfðu sumir meðaumkvun með Jesú. Jafnvel prestarnir og fræðimennirnir fóru nú að

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.