Stjarnan - 01.11.1946, Page 7
STJARNAN
87
“Vakna þú sem sefur”
Alt í gegn um aldirnar hefir Guð aðvar-
að menn við þeirri faættu sem yfir vofði.
'Hann ihefir sannarlega lagt fyrir menn
lífið og dauðann,. iblessunina og bölvunina,
og beðdð þá, hvatt þá og knúið til að velja
hið góða svo þeir mættu lifa.
Nú.lætur hann öllum mönnum alstaðar
bjóða að þeir taki sinnaskifti og snúi sér
alverlega til að leita Guðs af öllu hjarta
því, “Tími 'hans dóms er kominn.” Ástand
‘heimsins á öllum sviðum bendir á að endir
allra hluta er nálægur, og dómari lifenda
•og dauðra, Jesús Kristur kemur bráðum til
að gefa sérhverjum eftir því, sem verk
hans verða.
Jiesús segir: “'Þetta er hið eilífa lífið, að
þeir þekki þig hinn eina sanna Guð og þann
sem iþú sendir, Jesúm Krist.” Þessa þekk-
ingu getur maðiur öðlast fyrir lestur Rit-
ningarinnar sameinaðan trú á og hlýðni
við þetta dýrmæta lífsins orð- Hver er svo
þekking manna á Guðs heilaga orði? Af
18,000 háskólanemendum í Bandaríkjun-
um gátu 16,000 ekki gefið nöfn á svo mörg-
um sem þnemur spámönnum Gamla Testa-
mentisins, 12,000 gátu ekki gefið nöfnin á
fjórum Guðspjöllunum, og 10,000 þeirra
gátu ekki einu sinni gefið nöfnin á þremur
af postulum Krists. En þetta var nú ekki
hjá okkur hér 1 Canada. En hvernig er
þekkingin á Guðs orði hér? Hvaða áhugi er
sýndur í því að kenna börnunum hið eina
nauðsynlega, að leita fyrst Guðs ríkis og
hans réttlætis? Mörg þeirra fara á sunnu-
dagaskóla. Já, Guð blessi sunnudagaskól-
ana og þá sem ihalda þeim uppi, en vlíða er
enginn sunnudagaskóli og mörg börn sem
ekki fara á hann þótt hann sé á meðal
þeirra. Ofan á þetta bætist að víða er eng-
in kristileg uppfræðsla á heimilunum.
Hvað er það þá sem börnin hafa í andlegu
tilliti til að lýsa þeim leið til hinna himn-
esku ibústaða?
Fyrir nokkru síðan heimsótti eg ýms
heimili og íbauð mæðrunum að senda litlu
börnin sín frá 4—10 ára aldurs í Biblíu-
skóla til mín. Ein móðir lofaði að koma
sjálf með litlu stúlkuna sína á ákveðnum
tíma, en hvorug þeirra kom. Fáum dögum
seinna kom eg á annað heimili þar sem
þessi sama elskulega litla stúlka var að
læra, eða æfa sig í að spila á spil. Eg af-
greiddi erindið í flýti og fór út. Mér. lá
við að gráta. Þessir saklausu smæhngjar
'hvorki sjá né heyra nokkurn áhuga fyrif
Guðs orði hjá foreldrum sínum, sj áifum er
þeim leyft að vera úti á götunum, eða í fé-
lagsskap annara barna hvar sem þau vilja
án þess foreldrarnir oft og tíðum viti hvar
þau eru. Auðvitað verða þau að ganga á
skólann hinn ákveðna tíma daglega eftir
að þau eru komin á skólaaldur.
Einu sinni spurði eig litla stúlku, sem
eg mætti fyrir utan ibæinn, hvort mamma
hefði leyft henni að fara svona langt. Hún
sagði að mömmiu væri sama ef hún bara
kæmi heim fyrir myrkrið. Er nokkur furða
þó að drengir og stúlkur vfllist út á glap-
stigu, læri að reykja, drekka og annað sem
þvá fylgir, þegar þau alast upp á þennan
hátt? Og ef þau að lokum ekki skyldu ná
takmarkinu, mun þá ekki þeirra blóðs
verða krafist af hendi þeirra, sem Guð
setti til að annast um uppeldi þeirra.
Sem ibetur fer finnast heiðarlegar und-
antekningar, þar sem foreldrarnir gjöra alt
sem í þeirra valdi stendur til að kenna hin-
um unga bæði með orði og eftirdæmi, þann
veg sem hann á að ganga. Ef slíkur ungl-
ingur síðan villist af leið, þá er bezta von
um að æskuáhrifin, endurminningin um
bænir og eftirdæmi foreldranna verði með-
al í Guðs ihendi til þess aftur að leiða þá inn
á réttlætisins veg.
Guð gefi oss foreldra, sem elska Frels-
ara vorn svo einlæglega að þeir gjöra alt
sem þeir geta til að ala börn sín upp hon-
um til dýrðar svo þau verði góðir borgarar
mannfélagsins og öðlist að lokum hið dýrð-
\ega ríki sem Guð hefir fyrirbúið þeim, sem
hann lelska. S. Johnson.
+ + +
Svissland er aðeins einn þriðjungur að
stærð við Ohio ríkið, en hefir nær því þre-
falt fleiri íbúa, eða um 256 manns að með-
altali fyrir hverja ferhyrnismílu.
+ + +
Nú eru um 1 og hálf milljón pund af
nylon garni framleidd á mánuði í Banda-
ríkjunum. Það þarf ekki alveg eitt lóð fyrir
hvert par af sokkum.