Stjarnan - 01.04.1947, Qupperneq 4

Stjarnan - 01.04.1947, Qupperneq 4
36 STJARNAN éldi sundurleysast, og jörðin og þau verk sem á henni eru upp brenna. Þar eð alt þetta ferst, hvílíkum mun yður þá byrja að vera? Með heilagri breytni og guð- rækilegu líferni ber yður að þreyja og flýta fyrir tilkomu Guðs dags.” 2. Pét. 3:10-12. Endirinn er ekki einungis mögulegur, iheldur er hann alveg eins viss eins og dagsbrúnin. Guð gefi að vér, einn sem allir verðum viðbúnir. A. S. Maxwell. •f 4- -f XXVI. - “Hann er upprisinn” Jesús hafði sagt, meðan hann var á lífi, að hann mundi rísa upp á þriðja degi. Mennirnir gættu grafarinnar eins vel og þeir ihöfðu vit á, og stórum steini var velt fyrir dyrnar. Steinninn var innsiglaður með hinu rómverska innsigli, og það var því ekki hægt að flytja hann, nema brjóta innsiglið. Rómverskir hermenn héldu vörð yfir gröfinni. Þeir áttu að gæta þess strang- lega, að enginn gæti komið og tekið líkama Jesú, það voru því ávalt nokkrir, sem gengu óaflátanlega fram og aftur kring um gröf- ina meðan 'hinir hvíldu sig. En það voru líka aðrir verðir við þessa gröf. Það voru voldugir englar frá himn- um. Hefðu þeir viljað beita mætti sínum, hefði ekki iþurft nema einn einasta af þeim til þess að eyðileggja allan hinn rómverska her. , , l' Aðfaranó'tt hins fyrsta dags vikunnar, var næstum liðin, og hinn dimmasti tími rétt fyrir foirtinguna var kominn. Þá var einn af hinum voldugustu engl- um himinsins sendur til jarðarinnar. TJtlit hans var sem leiftur og klæði hans hvít sem snjór. Hann hrekur myrkrið burt af leið sinni og himininn ljómar af fegurð hans. Hinir sofandi hermenn vakna og stökkva á fætur í skyndi. Undrandi og óttaslegnir, stara þeir upp til hins uppHýsta 'himins og horfa á hina dýrðlegu sjón. Jörðin skelfur og titrar meir og meir, eftir því sem þessi volduga vera kemur nær. Þessi engill kemur í gleðilegum erinda- gjörðum. Hann fer með geysihraða gegnum loftið og máttur hans er svo mikill, að jörðin hristist sem í ákafasta jarðskjálfta. Varð- mennirnir féllu til jarðar sem dauðir væru. Við gröf frelsarans höfðu verið enn aðr- ir verðir. Það voru hinir vondu englar. Sonur guðs var nú dáinn, og þeim fanst þeir eiga ti'lkall til hans sem löglegs her- fangs, fyrir þann, sem hefir vald dauðans, sem er djöfullinn. Englar Satans voru viðstaddir til þess að gæta þess, að Jesús gengi þeim ekki úr greipum. En þegar hin volduga vera, sem var send frá hásæti guðs, nálgaðist, flýðu þeir ib'urt, með miklurn ótta. Engililinn velti hinum stóra steini frá dyrum grafarinnar, og hrópaði með þrum- andi röddu: “Jesús, þú sonur guðs, rís upp og kom, 'faðir þinn kallar á þig!”. Þá bom hann, er foafði unnið sigur yfir gröf og dauða, fram úr sínu dimma fylgsni Og við hina opnu gröf, vitnaði hann: “Eg er upprisinn til lífsins ” Og englaskarinn beygði fcné sín og tilbað með auðmýkt frel- sarann og foauð hann ve'lkominn með dýrð- 'legum lofsöngum. Jesús gefck fram, með valdi sigurveg- arans. Jörðin foærðist tmdir fóturn hans, eldingarnar leiftruðu og háar þrumu-r heyrðust. Þegar Jesús dó, varð jarðskjálfti. Þegar ihann sigri hrósandi reis upp. varð aftur jarðskjálfti. Satan var reiður af því að englar hans. flýðu, þegar hinn himneski sendiboði kom. Hann -hafði vonað að Jesús risi ebki upp frá dauðum, og að endurlausnaráfoxmið væri orðið að engu. En þegar hann sá að frelsarinn reis upp, misti hann alla von. Satan vissi nú að ríki hans mundi þrotna, og hann sjálfur að síðustu verða afmáður. -t- -f Þegar Woodbury Rand lögmaður dó, 1944, hafði hann svift alla ættingja s'fna erfðarétti, en arfleiddi köttinn sinn, Buster, að 40,000 dolllurium, sem hann lét eftir sig- Nú er Buster nýlega dauður án þess að hafa gjört nokkra erfðaskrá. Spurningin er nú: Hver fær peningana eftir hann.

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.