Stjarnan - 01.04.1947, Page 5
STJARNAN
37
Safnið yðyr fjársjóð á himni
Biblíam er full af guðdómiegum leið-
beiningum fyrir líf vort. Sumar þeirra eru
viðvákjandi eignum vorum. Jesús segir:
“Safnið yður ekki fjársjóðum á jörðu, þar
'S'öm mölur og ryð granda, og þar sem þjóf-
ar grafa til að stela. Safnið yður heldur
íjársjóðum á himnum þar sem hvorki
grandar mölur eða ryð né þjófar fá eftir-
grafið og stolið, því þar sem fjársjóður
yðar er, þar mun og yðvart hjarta vera.”
Matt. 6:19-26.
Drottinn bannar oss að safna fjársjóð-
um á jörðu, og segir oss um leið hvar vér
eigum að safna þeim, það er á himni. Þar
eru eignir vorar óbultar, ekkert verðfall
þar. Alt er þar í fullu gi'ldi og verður það
eilíflega. Það eru engin stríð til að eyði-
ieggja eignir manna. Það var stríð þar
einu sinni fyrir löngu síðan, en uppreisnar-
andanum var kastað út, niður á jörðina.
Þess vegna er það að vér höfum endalaus
stríð og eyðileggingu hér á jörðinni. Þjóf-
ar finnast ekki á himnum, þar eru fjár-
sjóðir vorir óhultir.
Hvemig getum vér safnað fjársjóðum á
himni? Fyrst og fremst með því að gefa
líf vort, tíma og alt, sem vér höfum til
þjónustu Guðs ríkis. Yér erum Guðs eign,
því hann hefir endurkeypt oss, vér ættum
því að vegsama Guð með líkama vorum og
anda, seim hans eru. Vér sýnum elsku vora
til hans og líotningu fyrir honum með því
að helga honum vora beztu krafta og tíma
vorn til eflingar hans himneska ríkis.
Til eru þeir, sem segjast elsfca Guð og
þeir þrái að sjá framgang starfs hans, en
þeir hafa altaf svo mikið að gjöra að ann-
ast um sína eigin hagsmuni, að þeir hafa
engan tíma til að vinna til eflingar Guðs
fí'ki hér á jörðunni. Ef allir fylgdu þeirra
dæmi yrði ekkert kristilegt starf fram-
kvæmt. Orðin tóm eru lítils virði. Þegar
játendur Krists eru hvattir til að vinna
trúboðsstarf, eða gefa af tíma sínurn fii
eflingar ihans ríkis, þá safna þeir sér eng-
um fjársjóð á himni ef þeir eru aðgjörða-
lausir og hafast ekkert að. Játning þeirra
er þá einber hræsni.
Leyndardómurinn við kraft og áhrif
Williams Booth bershöfðingja frelsishers-
ins, eftir því sem hann sagði sjálfur frá,
var þessi: “Guð hefir haft mig með öllu
sem eg er og hef. Margir hafa betri heila en
eg hef. Menn hafa haft betri tækifæri en
eg, en frá þeim tíma að fátæklingarnir í
Lundúnaborg voru lagðir á hjarta mitt,
hefi eg ásett mér að Guð skyldi hafa öll
umráð og stjórn yfir William Booth. Ef
nokkur kraftur er í sáluhjálparhernum, þá
er það af því hjarta mitt er heilt með Guði.
Hann hefir allan vilja minn og öll áhrif lífs
míns.”
William Booth safnaði sannarlega fjár-
sjóðum áfaimni. Allur hans áhugi var í því
innifalinn að þóknast og þjóna Guði. Hann
gat ekki hugsað um annað, séð aninað, talað
um annað eða gjört annað. Hann hafði
aðeins eitt áhugamál, það að halda engu tfl
baka, heldur að alt væri Guði helgað.
Hvílíkur kraftur og framför yrði í starfi
Guðs rfkis, ef vér allir, sem væntum end-
urkomu Krists innan skamms, með alvöru
og áhuga helguðum Guði hjarta vort, tírna
vorn og vilja. Vér tölum um að ljúka við
kristniboðsstarfið. Þetta er vegurinn til
að gjöra það, þetta er aðferðin til að safna
fjársjóðum á himni. Auðvitað mundum
'vér þá hafa minni tíma til að safna jarð-
neskum auð eða þægindum Sá tími sem
vér annars mundum nota til þess yrði þá
Ihe'lgaður útbreiðslu Guðs ríkis.
Sá sem faelgar Guði alt sitt líf og krafta
mun einnig helga honum efni sín hvort
sem þau eru mikil eða lítil. Menn geta
helgað Guði peningabudduna engu síður
en hjarta sitt. Þetta tvent fylgist að. Jesús
bendir á það er hann segir: “Þar sem fjár-
sjóður yðar er, þar mun og yðvart hjarta
vera.” Það mætti eins vel snúa við setn-
in-gunni, hún yrði jafn sönn fyrir það: þar
sem hj'arta yðar er þar mun og yðar fjár-
sjóður vera. Vér þurfum alla mögulega
fajálp til að festa hjörtu vor við himininn.
Þeir, sem verða hrifnir til himins eru þeir
hverra hjörtu nú þegar eru þar. Ef vér
ósk'um að hafa hjörtu vor stöðugt á himni
þá láturn oss safna fjársjóðum vorum þang-
að, því fjársjóðurinn verkar eins og segu’i-
magn og dregur 'oss til sín. Hvort aðdrátt-
arafl eigna vorra dregur oss upp eða niður
er komið undir því hvar fjársjóður vor er.
Það eru mörg og sterk öfl í þessum
vonda heimi, sem reyna að draga oss niður.
Hví skyldum vér stynkja þessi öfl með því