Stjarnan - 01.04.1947, Blaðsíða 6

Stjarnan - 01.04.1947, Blaðsíða 6
38 STJARNAN að safna oss fjársjóðum á jörðu. Vér ósk- um að hafa hjörtu vor og hugsanir á himni og öðlast guðdómlegan kraft til að standa á móti illum áhrifum þessara síð-ustu daga. Bezta ráðið til þess er að keppast við að saf-na sem mestum fjársjóðum á himni. Sumir álíta jþað sé of mikið talað um peninga í kirkjunni. En ef vér iítum á það frá Biblíunnar sjónarmiði, hvað það mein- ar að gefa Guði bæði hjarta sitt og eigur sínar, þá finst ekkert pláss í huga vorum fyrir uppástungu Satans að of mikið sé talað 'um peninga. Auðmenn kvarta a'Idrei um tækifæri, sem þeir hafa til að ávaxta fé sitt, skyldum vér þá kvarta þegar oss er gefið tælkifæri til að leggja fé vort í starf Guðs níkis. Hvergi annarsstaðar geturn vér verið óhultir og öruggir með eignir vorar. Alla vikuna erurn vér hvattir eða freist- aðir til að eyða peningum vorum. Auglýs- ingar blaðanna koma út í þeim tilgangi. Víðvarpið heldur fram ýmsu, sem fæst fyrir peninga, og búðargluggarnir eru þögul 'hvöt til að fcaupa það, sem þar er til sýnis. Ef vér föruim inn eru æfðir útsölu- menn við hendina til að selja oss hvað sem þeir geta. Sjaldan heyrast menn kvarta um, þó þeir hafi lagt fram peninga sína til að kaupa það, sem þó hlýtur að farast, eyðast eða slitna. Hví skyldum vér þá, synir og dætur konungs konunganna, álíta það illa viðeigandi fyrir starfsmann Guðs ríkis þótt hann einu sinni á viku hvetji oss til að leggja fé vort inn á hinn himneska banka til eflingar ríiki Föður vors. Guð þarfnast ekki peninga vorra. Hann gæti gjört fjöllin að gulli, ef hann vildi. Hann gæti látið englana starfa í stað rnanna, sem þurfa að hafa fé til að kaupa mat. Nei. Guð þarfnast ekki penmga vorra, en vér þurfum að gefa þá til að losast við eigingirni þá, sem stjórnar óum- ventu hjarta mannsins. Vér þurfum að gefa svo vér getum notið þeirrar gleði að vera með til þess að senda ljós fagnaðar- erindisins til þeirra, sem sitja í dauðans skugga. Vér þurfum að gefa svo vér finn- um til þess að vér séum meðstarfendur Guðs. Leyndardómur guðrækninnar er að nokkru leyti innifalinn í því að Guð gefur oss tæki'færi til að starfa með honum að frelsunar áforminu. Það er fagnaðarefni hins sannkristna manns að geta fært öðrum þá haimingjusömu lífsreynslu, sem vér sjálfir höfum orðið aðnjótandi. Þetta eru einkaréttindi vor, sem meðstarfendur Guðs. Hvernig störfum vér með honum? Með því að fórna honum lífi voru, fé vo-ru, öllu, sem vér höfum. Vér minnumst hinna göfugu Píslarvotta. Hvernig þeir jafnvel lögðu líf sitt í sölurn- ar. Vér syngjum um þá og látum í ljósi fúsleika vom að feta í fótspor þeirra. En rétt á eftir finst oss ef til vill að til ofmikils sé ætlast -af okkur ef við gefum eins mi'kið og óskað er eftir til trúboðsins, svo við getum ekki keypt okkur nýtt gólfteppi. Englarnir hljóta að furða sig á því hvað rner.n. sem fcalla sig kristna, eru fastir á fé sínu. Vér þurfum að minnast orða Krists: “Refar hafa greni og fuglar himins hreið- ur, en mannsins sonur hefir hvergi höfði sínu að að halla.” Ef það sýnir eigingirni að hliðra sér hjá að gefa til kristniboðs hvað má þá segja um það að vanrækja að borga tíund, að gefa Guði hvað Guðs er. Getum vér safnað fjársjóðum á himni ef vér prettum Guð? Það er óskiljan'Iegt að menn og konur, sem Láta í ljósi von sína um að komast í Guðs riki skuli gjöra slíkt. Það verður of seint þegar englarnir koma til að samansafna ihinum útvöldu, að fara þá að borga Guði eða mönnum skuldir sínar. Til eru þeir, sem segjast efcki hafa efni á að borga tíund, en sannleiikurinn er sá, að þeir hafa ekki efni á að vanrækja það Þegar menn ekki borga tíund ræna þeir Guð, og þeir ræna sjálfa sig þeirri bless- un, sem lofuð er þeim, sem eru Guði trúir. Það er sönn ánægja í því að vita sig hafa heiðrað Guð með skyldurækni og hlýðni við orð hans. Enginn öð-last sálarfrið af því að óhlýðnast Guði eða ræna hann. Ef vér rænum Guð, hvemig getum vér þá beðið um hjálp og blessun hans til að geta borgað það, sem vér skuldum mönnum? F. D. Nichol. ♦ ♦ > Nú er mönnum gefin von um að gúmmí hringir fyrir bíla verði búnir til sem end- ast lengur en bílarnir sjálfir, og að ekki verði stungin göt á þá.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.