Stjarnan - 01.04.1947, Page 8
40
STJARNAN
STJARNAN Authorized as second class
mail, Post Office Depart-
ment, Ottawa. Published monthly. Price $1.00
a yeor. Publishers: The Can. Union Conference
of S. D. A., Oshawa, Ontario.
Ritstjðrn og afgreiSslu annast:
MISS S. JOHNSON, Lundar, Man„ Can.
Nægjusemi
Hvar sem menn ferðast á þjóðvegum,
járnbrautujn eða strætisvögnum, þá er
sjaldgæft að sjá andlit, sem ánægjan skín
út úr. Fólk virðist svo órólegt og áhyggju-
fult, laust við nægjusemi.
Páll postuli sagði: “Eg hefi lært að láta
mér nægja það sem fyrir hendi er.” Fil.
4:11. Skaplyndi hans virtist þó ekki lík-
legt til að íramleiða rólyndi og nægjusemi,
þvert á móti, íhann var áhugamaður og
framgjarn. Skömmu áður hafði hann of-
sótt þá, sem ekki voru hans trúar. En nú
kvaðst hann hafa lært nægjusemi og vera
orðinn rólyndur.
Ekki það að honum stæði á sama um
alt, langt frá því. En að hann hafði fund-
ið leyndardóm þess hugrekkis, sem getur
tekið rólega því, sem að höndum ber. Nú
hafði hann öðlast þá trú og þann innri kraft,
sem veitti honum ánægju í lífinu, með öll-
um þess mögulegleikum, þrátt fyrir alla
erfiðleika.
Hvernig getum vér fundið gleði og
nægjusemi á þessum yfirstandandi tíma?
Bkki með því að leita að henni eða keppa
eftir henni. Gleði og nægjusemi kemur
af sjálfu sér þegar vér sækjumst eftir því
sem æðra er og æfum það, svo sem kær-
leika, guðrækni, góðvild, meðaumkvun og
gjafmildi.
Hver 'sem maðurinn er og hvar sem
hann er, þá finnur hann hvorki hvíld né
sanna gleði nema í Guði. Sama hvað það
er, sem vér njótum í lífinu, vér getum ekki
öðlast frið nema í honum. Eins og börn
erum vér óánægðir ef vér erum hungraðir.
Vér verðum að hafa lífsins brauð til að
vera hamingjusamir.
R. L. Hubbs.
Sœlir eru þeir hverra yfirtroðslur eru
fyrirgefnaf, hverra syndir eru huldar. Sæll
er sá maður sem Drottinn ekki tilreiknar
syndina og sá í hvers anda er ekki flærð.
Sálm. 32:1.2.
4 4 4
Skapa í mér hreint hjarta ó Guð og
endurnýja í mér stöðunga anda. Kasta mér
ekki burt frá þínu augliti, og tak ekki þinn
heilaga anda frá mér. Gef mér aftur fögnuð
þíns írelsis, útbú mig með öruggan anda.
Sálm. 51:10-12
4 4 4
Smávegis
I Ameríku eru 253,762 kirkjur. Meðlima-
tala jó'kst um nærri 33 hundruðustu á tíma-
bilinu frá 1926 til 1944, en þó eru rúmlega
47 hundruðustu Ameríkumanna, sem ekki
tilheyra neinni kirkju.
4 4 4
Yfir 200 þúsund pottar af blóði, eða svo
sem svarar öllu blóðmagni 40 þúsund
manna, voru notaðir, til að viðhalda lífi
særðra hermanna í Evrópu áður en lokið
var 'síðasta alheimsstríði.
4 4 4
England hefir bygt 110,438 hús síðan
stríðinu linti, en þetta er langt frá að full-
nægja þörfinni. Húsabygginganefndin kalíL-
ar eftir að 491,924 hús eða íbúðir verði bygð.
4 4 4
Búnaðardeild Bandaríkjanna segir að
'kartöflur séu ekkert meira fitandi heldur
en brauð. Kartafla af meðal stærð, og
þykk brauðsneið hafa hér um bil sama nser-
ingargildi.
4 4 4
Peningar í Argentínu hafa lækkað svo
mikið í verði að járnbrautarþjónar, sem
vinna á járnbrautum þeirn, sem tilheyra
Bretum, hafa beðið um að kaup þeirra
væri borgað í gulli en ekki í pappírspen-
ingum.
4 4 4
Vindlinga framleiðsla var hærri í
Bandaríkjunum árið 1945 heldur en nokkru
sinni fyr. En í 1946 voru 6,800,000,000 fleiri
framileiddir, eða alls 340,000,000,000 — þrjú
’hundruð og fjörutíu biljónir.