Stjarnan - 01.05.1947, Síða 4

Stjarnan - 01.05.1947, Síða 4
44 STJARNAN XXVII. -- “Farið og segið lærisveinum mínum það” Af því, sem Lúkas skrifaði í guðspjalli sínu, sjáum vér glöggt, að hinar guðhræddu konur, er voru viðstaddar, þegar Jesús var krossfestur, héldu hvíldardaginn. Hann segir: “Og þær sneru aftur og bjuggu út ilm- jurtir og smyrsl; og hvíldardaginn héldu þær kyrru fyrir samkvæmt boðorðinu.” (Lúk. 23, 56). Frelsarinn var greftraður á föstudag- inn, sjötta dag vikunnar. Konurnar bjuggu út ilmjurtir og smyrsl til að smyrja með líkama drottins síns, en þær lögðu það til hliðar og héldu kyrru fyrir, þar til hvíldar- dagurinn var liðinn. Þær vildu ekki einu sinni gjöra svo mikið, sem að smyrja lík- ama Jesú á hvíldarlegi. “Og er hvíldardagurinn var liðinn, . . . komu þær til grafarinnar mjög árla, hinn fyrsta dag vikunnar, um sólaruppkomu.” (Mark. 16, 1. 2). Þá er þær komu í nánd við garðinn, sáu þær, sér til mikillar undrunar að himin- inn var allur uppljómaður, og fundu að jörðin skalf undir fótum þeirra. Þær flýttu sér til grafarinnar og urðu nú enn meir undrandi, er þær sáu að steininum var velt frá gröfinni, og að hinir rómversku verðir voru farnir. María Magðalena kom til grafarinnar á undan hinum. Þegar hún sá að steinn- inn var tekinn burt, hljóp hún burt og sagði lærisveinunum það. Þegar hinar kon- urnar komu til grafarinnar, sáu þær að birta skein kringum gröfina, og er þær gægðust inn í hana, sáu þær að hún var tóm. En þær komu skyndilega auga á fagurt ungmenni í skínandi klæðum, er sat við gröfina. Það var engillinn, er hafði velt steininum burt. Hann sagði við þær: “Óttist eigi! Því að eg veit, að þér leitið að Jesú, hinum krossfesta. Hann er eigi hér, því að hann er upprisinn, eins og hann sagði. Komið, sjáið staðinn, þar sem drott- inn lá. Og farið nú með skyndi og segið lærisveinum hans: Hann er upprisinn frá daúðum; og sjá, hann fer á undan yður til Galíleu; þar munuð þér sjá hann.” (Matt. 28, 5—7). Og konurnar gægðust aftur inn í gröf- ina og sáu annan engil, er sagði við þær: “Hví leitið þér hins lifandi meðal hinna dauðu? Hann er ekki hér, heldur er hann upprisinn, minnist þess, hvernig hann ta'l- aði við yður. meðan hann var enn í Galíleu, og sagði að mannsins sonur ætti að verða framseldur í hendur syndugra manna og verða krossfestur og upprísa á þriðja degi.” (Lúk. 24, 5—7). Engillinn talaði við þær, um dauða Krists og upprisu. Hann vakti athygli þeirra á þeim orð- um, er Jesús hafði talað við þær, þá er hann sagði þeim frá dauða sínum og upp- risu. Og nú skildu þær þýðinguna í orðum Jesú, og með nýrri von og nýju hugrekki, flýttu þær sér af stað, til að segja þessi fagnaðartíðindi. María var ekki viðstödd, er þetta skeði, en hún kom litlu síðar og með henni Pétur og Jóhannes. Þegar þeir, sem við gröfina voru, sneru aftur til Jerúsalem varð María eftir við gröfina. Hún gat ekki yfirgefið þenna stað, fyr en hún fékk að vita hvað v orðið væri af líkama drottins Og er hún stóð þarna og grét, heyrði hún rödd, er spurði: “Kona, hví grætur þú? Að hverjum leitar' þú?” Augu hennar voru svo þrútin af tár- um, að hún sá ekki, hver það var sem tal- aði við hana. Hún hélt það væri graðgarðsvörðurinn, og sagði við hann í bænarróm: “Herra, hafir þú borið hann burt, þá segðu mér, hvar þú hefir lagt hann, og eg mun taka hann.” Hún hugsaði, að ef gröf þessa ríka manns væri álitin of heiðarlegur staður fyrir drottinn hennar, þá mundi hún sjálf finna stað fyrir hann. En nú hljómaði Jesú eigin rödd fyrir eyrum hennar. Hann sagði: “María!” Hún þerraði burtu tárin og sá nú Jesúm. I gleði sinni gleymdi hún að hann hafði verið krossfestur, og rétti hendurnar móti honum og sagði: “Rabbúní!” (meistari). Jesús sagði við hana: “Snert þú mig ekki, því að enn þá er eg ekki uppstiginn til föður míns; en far þú til bræðra minna og seg þeim: Eg stíg upp til föður míns og

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.