Stjarnan - 01.12.1948, Page 1
STJARNAN
DESEMBER, 1948
LUNDAR, MANITOBA
Elskar þú mig?
Fyrir nokkrum mánuðum síðan ferð-
aðist eg með stóru gufuskipi gegn um
sundið milli eyjarinnar Madagascar og
meginlands Afríku. Þá kom mér til hugar
saga sem eg hafði lesið nokkrum árum
áður um kristna unga stúlku sem átti heima
á eyjunni nærri hundrað árum áður.
Heiðna drotningin á Madagascar sem
þá réði ríkjum ásetti sér að uppræta
kristnu trúna. Trúboðar voru reknir í burt
og kristnar guðsþjónustur bannaðar.
Árið 1848 voru margir kristnir menn
líflátnir samkvæmt konunglegri skipun.
Ein aðferðin var að hrinda hinum kristnu
niður fyrir klettahamra fyrir ofan höfuð-
borgina.
Hinir kristnu voru látnir standa á
klettabrúninni og horfa ofan fyrir. Þeim
var boðið líf ef þeir vildu hylla hina
heiðnu guði eyjarinnar, annars var þeim
hrint fram af klettabrúninni.
Á þessu tímabili bjó kristin ung stúlka
á eyjunni sem var af konungs ættinni.
Drotningin vildi frelsa hana frá lífláti. En
bænir og loforð, hótanir og ofbeldi höfðu
engin áhrif, hún stóð stöðug með Kristi.
Ásamt fleiru kristnu fólki var hún tekin
upp á klettabrúnina. Hún var sett þar sem
hún gat séð þegar hinum var hrint niður
fyrir. Yinir hennar, einn eftir annan létu
líf sitt fyrir frelsara sinn. Yfirmennirnir
reyndu ennþá að fá hana til að afneita
Kristi. Faðir hennar grátbændi hana að
snúa baki við Kristi til að frelsa líf sitt,
en hún lét ekki bugast. Svo var hún leidd
fram á brúnina svo hún gæti séð lík vina
sinna, og ennþá reyndu menn að fá hana
til að afneita trú sinni. Hún svaraði ein-
ungis: “Lofið mér að fylgja vinum mínum.”
, Þessi unga stúlka elskaði frelsara sinn
meir en sitt eigið líf. Ungi maður u n g a
kona, ef þú ættir að velja milli Guðs og þíns
eig'in lífs, hvað mundir þú velja? Hvað
mikið elskar þú Drotinn Jesum Krist?
Það er dýrmætt að hafa hjörtu vor svo
fylt af kærleik til Krists að vér séum fúsir
að deyja fyrir hann, en það er margfalt
meira vert að elska hann svo mikið að
vilja lifa honum. Þeir sem á liðnum tím-
um hafa látið líf sitt fyrir Krist hafa fyrst
verið fúsir til að lifa fyrir hann. Þess
vegna var það að þeir stóðust reynsluna
þegar að því kom að láta líf sitt fyrir hann.
Guð hefir starf fyrir alla, sem gefa
honum umráð yfir lífi sínu, hvort sem
þeir eru ungir eða gamlir. Páll postuli
segir:“ Lát engan líta smáum augum á
æsku þína, en ver þú fyrirmynd í hrein-
leika . . . stunda þetta ver allur í þessu.
1. Tim. 4:12-15.
Um leið og vér leggjum oss alla fram,
verðum vér að reiða oss á Drottinn vorn
Jesúm Krist. Vér eigum að ráðast í mikið
fyrir hann og vænta mikils af honum. Hann
hefir nóg starf fyrir alla, unga og gamla,
óreynda jafnt sem æfða. Vér eigum að vera
fyrirmynd trúaðra í öllum greinum, það
meinar Guði helgað lífemi. Pétur postuli
segir: “Þér skuluð víðfrægja dáðir hans,
sem kallaði yður frá myrkrinu til síns und-
ursamlega ljós”. Jesús er sá sem hefir kall-
að út úr myrkrinu inn í dýrðlega ljós fagn-
aðarerindisins.
Yfirstandandi tími er mentunar og
framfara tímabil, en spillingin er á háu
stígi. Myrkraveldið vinnur með meiri
krafti heldur en nokkru sinni fyr. Skemt-
anafýsnin og heimselska útrýmir elskunni
til Guðs. Æskulýðurinn, og hinir eldri líka,
eru umkringdir á allar hliðar af freistingu
hins vonda. Johannes postuli segir: “Djöf-
ullinn er stíginn niður til yðar í miklum
móð, því að hann veit að hann hefir naum-
an tíma.” Op. 12:12. Bæði ungir og gamlir