Stjarnan - 01.12.1948, Qupperneq 3

Stjarnan - 01.12.1948, Qupperneq 3
STJARNAN 91 fyrir börn hans. Jesús hefir bæði frá Guðs og manna hálfu fullkominn rétt til allra umráða í hjarta mannsins. “Allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð.” Vér erum allir fæddir í synd og af náttúrunni reið- innar börn. (Efes. 2:3) Annar hefir sest í hásæti það sem með réttu tilheyrir Kristi. Önnur sorgleg afleiðing syndarinnar er að maðurinn misti kraftinn til að istjórna sér sjálfur. En hann misti ekki frjálsræðið til að velja. “Kjósið þá í dag hverjum þér viljið þjóna”. Jós. 24:15. “Komið til mín”. segir Jesús, “allir þér sem erfiði og þunga eruð hlaðnir, eg vil gefa yðuir hvíld.” Matt. 11:28. Jesús gekk fram og kallaði segjandi: “Ef nokkurn þyrstir, þá komi sá til mín og drekki.” Jóh. 7:37. Það er ótvírætt að maðurinn hefir frjálsræði til að velja, noti hann það frjálsræði rétt þá getur hann öðlast aftur kraftinn til að stjórna sjálfum sér. Til að byrja með verður hann að gefa sig og vilja sinn á vald Kristi Drotni vorum og frels- ara. Vér verðum skilýrðislaust að vera undirgefin Drotni vorum til að geta öðlast hinn sjálfstjórnandi kraft. “Vitið þér ekki að þeim sem þér ljáið yður sjálfa fyrir þjóna til hlýðni, þá eruð þér þess þjónar sem þér hlýðið, hvort heldur það er syndar til dauða eða hlýðni til réttlætis.” Eftir að maðurinn misti yfirráðin yfir sjálfum sér með því að hlýðnast uppreist- arforingjanum, sem reyndi að ná yirráð- um í heiminum, þá var það eini vegurinn fyrir maninn að meðtaka fagnaðarerindi Krista til þess aftur að öðlast kraftinn til að stjórna sjálfum sér. Freslunar áformið er í því innifalið að Sonur Guðs “tók á sig þjóns mynd og varð mönnum líkur,” og hann “bar vorar syndir á sínum líkama upp á tréð, svo vér skyldum skilja við syndirnar og lifa réttlætinu.’* Fil. 2:7. 1. Pét. 2:24. Eftir hinn smánarlega dauða á kross- inum og hina dýrðlegu upprisu sté Jesús til himins og gjörðist talsmaður vor hjá föðurnum. Svo sendi hann mönnunum sinn heilaga anda til jarðar til þess að halda áfram starfi hans. Heilagur andi á að laða og leiða menn að koma til Krists, en Jesús biður til Föðursins fyrir þeim sem iðrandi koma til hans. Meðan heilagur andi heldur áfram að hnýja á hjörtu manna og Jesús heldur áfram að tala máli þeirra fyrir föðurnum, þá er tækifæri fyrir syndaranp til að brjóta af sér hlekkina sem syndin og satan hefir bundið hann með, ef hann aðeins vill ein- læglega gefa sig Kristi og hylla hann sem konung sinn. Jesús neyðir engan til að veita sér viðtökur. Hann segir: “Sjá, eg stend við hurðina og drep á dyr, sá sem heyrir raust mína og lýkur upp fyrir mér, til hans mun eg inn ganga og við skulum eta kvöldverð saman,” Op. 3:20. Hann bíður þess að hon- um sé boðið inn. Hann stendur við hurðina °g ber að dyrum, hann þráir að fá inn- göngu. Hann knýr á hjarta syndarans og segir “Snúið yður, snúið yður frá yðar vondu breytni. Hví viljið þér deyja, Israels- menn”. “Þar eð hann ekki vill að nokkur fyrirfarist heldur að allir komist til sinnis- betrunar.” Ez. 33:11; 2, Pét. 3:9. Miskun og kærleikur eru eiginlegleik- ar Guðs, en þó mun innan skams koma sá tími að náð hans verður ekki lengur fram- boðin syndurum. Guðs andi yfirgefur menn að lokum ef þeir áframhaldandi þverskall- ast gegn .honum. “Degi hallar og kveld- skuggarnir lengjast.” Jer. 6:4. Innan skams verður það of seint að búa sig undir að mæta frammi fyrir kon- unginum. Ó hve nauðsynlegt það er að vér nú þegar komum til Jesú og meðtökum friðþægingu hans, svo vér ekki með að slá því á frest hryggjum heilagan anda “í hverjum vér erum innsiglaðir til endur- lausnardagsins, Efes. 4:30. Jesús segir: “Gangið í ljósinu meðan þér hafið ljósið svo myrkrin yfirfalli yður ekki.”'Fylgið ljósinu, gangið í ljósinu. Hlýð- ið öllum sannleikans boðorðum. Lifið af, og samkvæmt hverju orði sem framgengur af Guðs munni, og þá munuð þér fylgja Jesú hvert sem hann fer . . . Guð gefur sinn heilaga anda þeim sem biðja um hann. Þegar Guðs andi sannfær- ir samvisku þína um synd, þá veittu því athygli, og gef gaum að því sem guðs andi talar til þín. Hvert skifti sem vér drögum oss í hlé og sláum á frest að hlýða, þá gjörum vér oss erfiðara fyrir að meðtaka hið himneska ljós og að lokum fer svo að vér heyrum ekki lengur áminningar og aðvaranir Guðs anda . . . Enginn þarf að ímynda sér að synd á móti heilögum anda sé eitthvað leyndar-

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.