Stjarnan - 01.12.1948, Blaðsíða 4

Stjarnan - 01.12.1948, Blaðsíða 4
92 STJARNAN dómsfult. Synd á móti heilögum anda er að standa stöðugt móti áhrifum hans og hliðra sér hjá að hlýða, þegar hann knýr mann til að iðrast syndanna og snúa sér til Krists. Ef þú neitar að trúa á Jesúm þá elskar þú myrkrið meir en ljósið, þá velur þú lofstlagið sem umkringdi hinn fyrsta uppreisnar anda í stað þess að lifa í samfélagi við Föðurinn og soninn. Guð leyfir þér að kjósa.” MRS. E. G. WHITE IX KAPÍTULI “Undirbúist eða fyrir farist” “Vér verðum að herbúast eða farast.” Þetta var aðalkjarnin'n í skýrslu George C. Marshalls til Patterson hermálaritara 9. október 1945 eftir að hann hafði rannsak- að sumar af þeim ægilegu hættum sem leynast í ástandi heimsins nú á dögum. Marga hrylti við orðum hans. Hví skyldi hann tala þannig þegar Bandamenn höfðu unnið hinn mesta sigur, sem mann- kynsagan getur um? Þegar þeir hölðu keypt frið fyrir afarverð í blóði og fjár- munum. Hví var hann þá að kalla og hrópa um þörf á nýjum herbúnaði? Var það mögulegt að eftir allar siguirvinningarnar á landi, sjó og í lofti, að nú yrði að byrja nýjan leik og búa sig undir eitt stríðið enn á móti einhverjum óvin, sem enginn þorði að nafngreina? Var það mögulegt eftir allar fórnirnar, hörmungarnar og sorgirnar, sem ríkt höfðu undanfarin ár, að ennþá væri voði á ferðum og ennþá yrðu menn að vera á verði um líf sitt og limi. Til þess að leggja enn meiri áherslu á þessa viðvörun skoraði Marshall herfor- ingi á H. H. Arnold herforingja að lýsa sum- um hinna nýju vopna sem þegar væru í smíðum bæði hér á landi og annarstaðar. Arnold svaraði: “Vér getum stjóirnað flugeldum til vissra staða með rafmagni og nýum áhöld- um, isem beina þeim nákvæmlega að upp- sprettum hita, ljóss og seglumagns. Þessir flugelda drekar stefna þráðbeint á verk- smiðjur knúðir af eigin mætti og aðdrátt arafli frá eldfærum verksmiðjanna. Þeir eru svo vísindalega úr garði gjörðir og svo nákvæmir, að í stóru herbergi stefna þeir af sjálfsdáðum á mann sem kemur inn með aðdráttarafli því sem hitin frá manninum framleiðir. “Innan fárra ára verða búnar til flug- vélar sem þeytast áfram með 500 til 600 mílna hraða á klukkustundinni til staða í 1,500 mílna fjarlægð, 40 þúsund fet uppi í loftinu. Nú þegar eru afarstórar flugvélar í undirbúningi, sem flutt geta yfir 100,000 pund og ferðast með ofsa hraða. Þessar flugvélar hafa svo mikið úthald að þær geta farið hvert semier ætlað í ver- öldinni og komist heim aftur til sinna upp- haflegu stöðva. Einmitt nú erum vér að búa til sprengju sem vigtar 45,000 pund, svo hún verði til reiðu á sama tíma sem hin tröllaukna flugvél er fullgjörð. Vís- indamenn hafa þegar í undirbúningi risa- sprengju sem verður 100,000 pund”. Loksins sagði Marshall herforingi í endir skýrslu sinnar: “Uppgötvun atóm- sprengjunnar getur orðið mannkyninu til hinnar mestu blessunar eða til gjörsam- legrar eyðileggingar.” Svo bætti hann við: “Það er á móti þeirri mögulegu eðlilegg- ingu, sem þessi þjóð þarf að undirbúa sig eða fyrirfarast. Hann skýrði ekki frá því hvaða þjóð eða þjóðir það væru sem ef til vill mundu búa til samskonar sprengjuir, eða hvernig þeim gæti orðið beitt gegn Bandaríkjunum. En athugasemdir hans gáfu til kynna að hann bar í huga sér djúpan ótta, og þess vegna hrópaði hann; “Undirbúist eða fyr- irfarist,” og þetta hróp verður endurtekið hvað eftir annað á komandi tíma. Það mun berast út fyrir Ameríku og yfir allan heim, aðrar þjóðir munu heyra það og fylgja iráðum þess. Þetta getur leitt til hins mesta kapps í hernaðar framleiðlsu sem nokkru sinni hafa farið sögur af. En þessi aðvörun á sér dýpri þýðingu í sambandi1 við þau alvörumál sem vér horfumst í augu við. Vér þurfum meir ett efnalegan og vísindalegan undirbúning til þess að mæta því sem framundan er. Vér þurfum líka andlegan undirbúning. Þær skelfingar sem Marshall herfor- ingi óttaát í niðdimmu framtíðarinnar er enn ein sönnunin fyrir því að öll hrófatyld- ur liðinna daga í menningarlegu tilliti eru að því komin að hrynja. Þær eru tákn, sem samkvæmt orðum spámannanna benda á að endir mannkynsögunnar er þeg- ar fyrir höndum. Og á þeim degi dómsins

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.