Stjarnan - 01.12.1948, Side 7

Stjarnan - 01.12.1948, Side 7
STJARNAN 95 “Aldrei hefir maður talað eins og þessi maður” Æðstuprestarnir og farisear höfðu sent menn til að handtaka Jesúsm. Þegar þeir komu án hans spurðu hinir skrift- lærðu: “Hví komuð þér ekki með hann?” Sendimennirnir höfðu orðið svo hrifnir af orðum Krist. Þeir höfðu aldrei heyrt slíka ræðu, svo þeir svöruðu: “Aldrei hefir mað- ur talað eins og þessi maður.” Jesús talaði ekkert líkt því sem hinir andlegu leiðtogar þeirra tíma. “Hann tal- aði eins og sá sem vald hafði.” Hann talaði ákveðið af því hann vissi um hvað hann talaði. Hann talaði af sannfæringu. Hann talaði sannleikann. Þegar hann var 12 ára að aldri undr- uðust fræðimennirnir yfir þekkingu hans og skilningi. Hinar ákveðnu skýru kenn- ingar hans vöktu trú og von og hugrekki í hjörtum manna. Þær, veita mönnum huggun og hughreysting enn í dag, á tím- um hörmunga efa og vantrúar. Enginn sem einungis var maður gat með sanni sagt: “Eg hefi stigið niður af hinini” Joh. 6:38. “Eg er sonur Guðs.” Joh. 10:36. “Áður en Abraham varð til er eg.” Joh. 8:58. “Eg er upprisan og lífið.” Joh. 11:25. “Eg og faðirinn erum eitt.” Joh. 10:30. “Eg legg líf mitt í sölurnar til að taka það aftuir.” Joh. 10:17. “Eg er ljós heimsins.” Joh. 8:12. Enginn jarðneskur maður, gat sagt og látið það verða að áhrínsorðum — Við hinn líkþráa: “Eg vil, vertu hreinn.” Matt 8:3. Við lærisveinana: “Læknið sjúka vekið upp dauða, hreinsið líkþráa, rekið út ílla anda, ókeypis hafið þér meðtekið, ókeypis skuluð þér af hendi láta.” Matt. 10:8. Til hins látna: “Lazarus kom þú út.” Joh. 11:43. Við ílla andann: “Þú óhreini andi far þú út af manninum.” Mark. 5:8. Við vindinn: “Þegi þú, haf hljótt um þig.” Mark. 4:39. Við lama mannin: “Syndir þínar eru fyrirgefnar . . . statt upp tak sæng þína og far heim til þín.” Mark 2:5-11. Við Gyðingana: “Brjótið þetta musteri og á þrem dögum mun eg reisa það”. Joh. 2:19. Enginn sem einungis var jarðneskur maður gat opnað augu hins blinda með því að snerta þau, eða fætt þúsundir manna á fáum brauð-um, vísað Pétri á pening í munni fisksins til að borga með skattinn, læknað hinn mál og heyrnarlausa, rekið peningavíxlarana út úr musterinu eða lof- að: “Eg kem aftur og mun taka yður til mín.” Sjúkdómar, dauði, vindur, bylgjur vatnsins, íllir andar, skepnur og vondir menn heyrðu rödd hans og hlýddu skipun- um hans. Hann talaði eins og enginn ann- ar meður hefir talað. Hann talaði sem Guð en ekki maður. Og það er hann sem innan skams mun opinberast frá himni sem kon- ungur konunganna og Drottinn drotnanna. Guð hefir gefið honum nafn sem er öllum nöfnum æðra, til þess að fyrir nafni Jesú skuli hvert kné beygja sig . . . og sérhver tunga viðurkenna að Jesús Kristur sé Drottinn Guði föður til dýrðar.” Sendimennirnir höfðu rétt fyrir sér er þeir sögðu: “Aldrei hefir maður talað eins og þessi maður talar.” W. R. FRENCH Lögregluþj ónninn Eftir O. L. JACQUES William, lögregluþjónn sem hafði verið í stjórnarþjónustu víða í Tanganyika hér- aðinu þar skírður fyrir 6 mánuðum síðan. Nokkrum dögum seinna sá eg hann standa við dyrnar á trúboðstöðinni. Eg gat ekki annað en dáðst að honum með sjálfum mér þar sem hann stóð, hreinn, hraustur og unglegur í einkennisbúningi sínum. “Kennari, eg hef sagt upp lögregluþjóns stöðunni,” sagði hann. “Hvernig stendur á því William, vilja þeir ekki gefa þér frí á hvíldardögunum?” spurði eg. “Það stendur ekki í vegi”, svar- aði hann rólega. “Geðjast þér ekki að starfinu eða fær þú of lítið kaup?” “Mér geðjast að starfinu og fæ gott kaup.” “Hvers vegna hættir þú þá?” “Eg verð að vinna fyrir Guðs ríki. Eg verð að fara heim til ættingja minna og

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.