Stjarnan - 01.01.1949, Síða 1

Stjarnan - 01.01.1949, Síða 1
STJARNAN JANÚAR, 1949 LUNDAR, MANITOBA GLEÐILECT NÝÁR 1949 Ó hvað það léttir erfiðleika lífsins og eykuir mani bæði andlegan og líkamlegan styrk að bafa eitthvað sem maður getur hlakkað til, og horft með vonargleði fram á ókomna tímann. Þessi hamingja istendur þér til boða vinur minn, sem les eða heyrir þessar línur lesnar. Nú erum vér enn fyrir 'Guðs náðarríku handleiðslu komnir að nýj- um áramótum. Ef þér hafið valið Jesúm fyrir leiðtoga yðar og hans orð fyrir leið- arljós á hinu nýja ári, þá getið þér fangn- andi litið fram á ókomna tímann, því Guð hefir sjálfur sagt: “Eg skal ekki sleppa þér né yfirgefa þig.” Heb. 13:5. Og Jesús hefir lofað fylgendum sínum: “Sjá eg er með yð- ur alla daga alt til veraldarinnar enda.” Matt. 28:20. Mann tala mikið um ófriðarhorfur í heiminum, dýrtíð og fleira, en vér höfum Jesúm með oss og hann hefir alt vald á himni og jörðu, svo vér höfum engu að kvíða. Hann er það lífsins brauð sem af himnum er bfan komið og heiminum gefur líf. Hinum þyrstu, sem biðja hann um það gefuir hann lífsins vatn. Vér vitum hvað góðum foreldrum er ant um velferð barna sinna og hvað það gleður þau að geta gefið börnunum það sem þeim er til gagns eða gleði. En Jesús, segir: “Ef þér sem vondir eruð tímið að gefa börnum yðair góðar gjafir, hvað miklu framar mun þá ekki fað- ir yðar á himnum gefa þeim heilagan landa sem hann biðja. Luk. 11:13. Með gjöf heil- ags ianda öðlumst vér alla þá blessun og hamingju sem hægt er að njóta, því “ávöxt- ur andans er kærleiki, gleði, friðsemi, lang- lundairgeð, góðlyndi, góðvild, trúmenska, hógværð, bindindi.” Gal. 5:22. Nú kann einhver að segja að þetta snerti ekki líkam- legar þarfir vorar svo sem fæði, klæði, húsnæði o.s.frv. en þá skulum vér fni þess að allar þessar náðargjafir fást ein- ungis fyrir trú á Jesúm Krist og samfélag vort við hann, og hlýðni við hans heilaga vilja og sá sem lifir slíku 'lífi í trú og hlýðni við Guðs orð getur gjört kröfu til loforðsins í Jóh. 15:7. “Ef þér eruð stöðugir í mér og mín orð hafa stað hjá yður, þá megið þér biðja hvers þér viljið og það mun yðuir veitast.” Þetta fyrirheit tekur yfir bæði tímanlegar og 'andlegar þarfir sem vér get- um beðið um. Eg veit af þeim sem ennþá eru lifandi, sem hafa tileinkað sér þessi fyrir heit og fengið reynslu fyrir áreiðan- legleika þeirra. Guð fer ekki í manngrein- arálit, svo ef þú mætir skil yrðinu sam Guð setur, getur þú verið fullviss um bæn- heyrslu hvort sem þú biður um tímanleg eða andleg efni. Gefið Guði hjörtu yðar, lesið Guðs orð og hlýðið því, biðjið svo um það sem yður liggur á hjarta og þér munuð fá eigin reynslu fyrir því að Guðs loforð bregðast ekki. Guð gefi yður öllum blessunarríkt og gleðilegt ár í Jesú nafni. S. JOHNSON -----------*----------- Jesús minn eg þrái þig, þú munt komia að sækja mig; Biðin er mér orðin löng, Erfið leiðin grýtt og þröng. Jesús minn eg þarfnast þín, Þú ert leiðarstjarnan mín. Alt er valt í heimi hér, Hjá þér vera kýs eg mér, Þar hinn sanna frið eg finn, Frelsari og Drottinn minn. Jesús minn eg þarfnast þín, Þú ert eina vonin mín. n IíÖEÍSBÓKASAFN i 7 7 81 b ÍSIAKDS P. SlGURÐSON

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.