Stjarnan - 01.01.1949, Blaðsíða 2
2
STJARNAN
IX KAPITÚLI (Frh.)
“UNDIRBÚIST
EÐA FYRIRFARIST”
Fyrsta sporið til undirbúnings. Vér
verðum að snúa oss til Guðs, segja honum
að vér séum orðnir þreyttir á syndinni, og
fyrir náð hans fúsir til að hætta misgjörð-
um vorum. Þetta er ekki erfitt. Hver sem
vill getur það hvar sem er og hvernær sem
er. Hvorki aldur né hörundslitur, þjóðerni
né staða leggja þar stein á leið. Hver sem
vill getur það, en viljinn er áríðandi. Guð
getur ekki byrjað að hjálpa oss nema vér
viljum láta hann gjöra það. Hann segir:
“Sjá eg stend við dyrnar og kný á, ef ein-
hver heyrir raust mína og opnar dyrnar
þá mun eg ikoma inn.” Op. 3:20. Vér verð-
um að opna dyrnar.
Annað sporið er eins auðvelt eins og það
fyrsta. Vér verðum að biðja Guð að fylla
hjarta vort með sínum heilaga anda. Þann-
ig fæst sú algjörða breyting hugarfarsins,
ástríðanna, sjálfselskunnar og viðhorfsins,
sem Jesús kallaði endurfæðing. Hann
sagði við Nikódemus: “Sannlega sannlega
segi eg þér, enginn getur séð Guðs ríki
nema hann endurfæðist.” Og þegar Nikó-
demus lét í ljósi að hann efaðist um að
þetta væri mögulegt þá svaraði Jesús:
“Undrast þú ekki að eg.sagði þér: Yður ber
að endurfæðast. Vindurinn blæs hvar sem
hann vill, og þú heyrir þytinn í honum, en
ekki veist þú hvaðan hann kemur eða
hvert hann fer, eins er farið hverjum sem
af andanum er fæddur.”
Svona er það auðvelt. Vér opnum dyr
hjarta vors og heilagur andi kemur inn í
skyndi eins og vindurinn. Vér getum ekki
séð hann fremur en vindinn, en vér vit-
um að hann er þar, vér vitum það af áhrif-
um hans, þeirri gjörbreytingu sem verður
á hugsunarhætti vorum og líferni.
Þriðja sporið í undirbúningnum er að
sækjast eftir að þekkja Guðs vilja. Ef vér
vitum ekki hvers Guð væntir af oss þá er
erfiðleikum bundið að geta þóknast hon-
um. Vér verðum því að snúa oss að Biblí-
unni þar opinberar Guð vilja sinn fyrir
oss. Vér ættum að verja miklum tíma til
að lesa þessa blessuðu bók, lesa hana og
ígrunda efni hennar, bera saman kapítula
við kapítula og vers við vers. Vér ættum
að læra vissa kafla utanbókar eins og t.d.
23. sálminn, Faðir vor, fjallræðuna og tíu
boðorðin. Vér ættum að verja miklum tíma
til að lesa spádómana þangað til vér skilj-
um hina guðlegu ráðstöfun og getum rakið
spor Guðs í sögunni frá syndafallinu alt
til þess tíma að Eden verður endurreist, og
gefin hinum endurleystu. Um fram alt
ættum vér að kynna oss líf og kenningar
Jesú, sem endaði með dauða hans, upprisu
og himnaför og mun verða dýrð og sigri
krýnd við endurkomu hans.
Þegar vér þannig lifum á Guðs orði,
sem í raun og sannleika er lífsins brauð,
þá verður sál vor stöðugt nærð á andlegri
fæðu. Vor innri maður styrkist og þroskast
og vér verðum færari til að mæta hverju
sem að höndum ber á ókomnum tíma.
Fjórða sporið er að gjöra Guðs vilja
eins og hann er opinberaður oss í orði hans.
Að lesa Biblíuna en fylgja ekki kenningum
hennar og boðum væri léleg aðferð til
þess að búa sig undir að mæta Guði, sann-
leikurinn er sá að megingagnið sem vér
höfum af að lesa Biblíuna er eyðilagt ef
lestrinum ekki fylgir tilsvarandi 'hlýðni.
Þegar vér lesum tíu boðorðin þá er ekki
nóg að segja: Hvílíkar fyrirtaks kenningar,
en láta svo þar við sitja. Heldur ættum vér
að segja við sjálfa oss: þetta er það sem
Guð vill eg blýði. Lifi eg í samræmi við
þessi boðorð? Ef ekki, hvað er þá skylda
mín að gjöra?
Ef svo skyldi fara, þegar þú lest og
hugsar um fyrsta og annað boðorðið, að
heilagur andi þá hvíslar að þér að þú sért
of hneigður fyrir auðsöfnun eða skemtanir
og verjir til þeirra þeim tíma og áhuga,
sem þú ættir að helga Guði, að peningar og
skem'tanir iséu þínir aðal gUðir. Ef svo er þá
þarftu að biðja Guð um hjálp og leiðbein-
ingu til að bæta í líf þitt svo það verði í
samræmi við vilja hans, gef honum hjarta
þitt í fullkominni undirgefni, auðmýkt og
tilbeiðslu.
Þegar þú lest boðorðið sem segir: “Þú
skalt iekki leggja nafn Guðs þín við
hégóma,” þá sér þú ef til vill að það for-
dæmir orðbragð þitt, að þú hefir ekki verið
gætinn í orði, heldur svarið og notað blóts-
yrði og þannig brotið boðorðið.
Þegar þú athugar hvíldairdagsboðorðið,
þá má vera að augu þín opnist alt í einu
svo þú sjáir að þú hefir ekki haldið hvíld-
ardaginn heilagan. Þú gætir jafnvel séð