Stjarnan - 01.01.1949, Síða 3

Stjarnan - 01.01.1949, Síða 3
STJ ARNAN 3 að þú hefir blátt áfram haldið rangan dag. í stað þess að halda sjöunda daginn eins og' Guð hefir boðið, hefir þú ef til vill haldið einhvern annan dag. Ef svo er þá verður þú að breyta til í þessu efni og hlýða hinni einföldu, skýru skipun Guðs. Sama getur átt sér stað um fimta, sjötta, sjöunda, og öll hin boðorðin, að þeg- ar þú les þau og athugar þá sjáir þú með sorg að þú hefir svo lengi óhlýðnast Drotni þínum. Ef svo fer þá láttu samt ekki hug- fallast, segðu Guði að þetta hryggi þig og bið hann að fyrirgefa þér, snúðu svo al- gjörlega við og gjörðu það sem þú veist er rétt. Til að gjöra þetta með góðum árangri þarftu að læra að biðja og halda áfram að biðja, þetta er næsta sporið og mest um vert. Bænin heldur oss í sambandi við Guð, hún er undraverð hjálp til að geta lifað kristilegu lífi. Hinn sterkasti Guðs þjónn má ekki við því að vanrækja bænina einn einasta dag. Vér verðum að læra að gjöra það sem Páll postuli áminnir um: “Biðjið án afláts.” Þetta þýðir ekki að vér eigum altaf að liggja á hnjánum biðjandi, væri svo gætum vér ekki framkvæmt þau verk sem Guð væntir af börnum sínum. En það þýðir að lifa stöðugt í sambandi við Guð, snúa sér til hans og leita ráða hjá honum þegar eitt- hvert vandamál ber að höndum og spyrja sjálfa oss: “Hvað mundi Jesús gjöra?” Næsta sporið í undirbúningnum er að hefjast handa og gjöra eitthvað fyrir Guð. Enginn kristinn getur komist hjá þessu og haldið áfram að vera Kristinn maður. Hann getur ekki lifað einungis sjálfum sér hann verður að taka tillit til annara. Krist- inn maður verður að sýna hluttekningu þeim sem eiga bágt. Hann verður að gefa þegar þörf er á og gjöra það fúslega, hann verður að rétta hjálparhönd og vera sam- verkamður Guðs til að frelsa mannkynið. Sérstaklega á þessum hættutímum verður hann að taka höndum saman við aðra kristna menn til að útbreiða boðskapinn um endurkomu Krists, vitandi það að heimsendir er í nánd. Dr. Norman V. Peale skrifaði grein í ritið “Womans Home Companion” nýlega og sagði yndislega sögu um sannkristinn mann, sögu sem sýnir hvernig jafnvel þeir lítilmótlegustu geta gengið með Guði um leið og þeir gegna sínum daglegu störfum, jafnvel þar sem verslunar hávaðinn og kaupsýsluglaumurinn láta mest á sér bera. “Það var snemma morguns,” sagði Dr. Peale, “Eg var alveg nýkominn til New York eftir svenflausa nótt á járnbrautar- lest. Þegar eg náði í flutningsvagn varð eg hrifinn af vingjarnlegu við móti ökumanns- ins. Svo spurði hann mig, mér til mestu undrunar hvort eg vildi að hann syngi fyrir mig. Eg var ekki sérlega þyrstur í söng um þennan tíma dags, en eg sagði honum að byrja. Um leið og við ókum inn á fimtu götu byrjaði hann að syngja gamlan guð- ræknissálm. Hann hafði fallega millirödd og eftir fáein augnabiik hafði eg gleymt allri þreytu og öllum svefni og mig lang- aði til taka undir og syngja með honum. Þegar við komum á brautarenda spurði eg manninn hvort hann syngi altaf sálma fyrir þá sem hann flytti. “Ekki altaf,” svaraði hann, “það er eftir því hvað þeir vilja og hvað Guð segir mér að gjöra.” Síðan sagði hann mér að á, hverjum morgni þegar hann færi út með flutningsvagninn sinn þá hneygði hann höfuðið yfir hjólið og segði: “Drottinn, þeg- ar eg ek eftir götunum í New York í dag, flyt eg alskonar fólk. Sumum líður vel, sumir eru áhyggju fullir, sumir eiga við »rfið kjör að búa og líður illa. Drottinn vertu með mér og hjálpaðu mér til að opna hjörtu allra sem eg mæti fyrir þínum læknandi anda.” Þeir sem í raun og sannleika eru við því búnir að mæta guði lifa einmitt þess- konar lífi; þeir eru glaðir og ánægðir, þeir eru sannkristnir menn eins og þessi lítil- mótlegi ökumaður. Ekki svo að skilja að allir menn verði að vera syngjandi hvar sem þeir fara, menn geta frelsast án þess; þetta var aðeins sérstök aðferð sem þessi maður notaði til að láta í Ijósi sína innri gleði í Drotni. Sumir kristnir menn gætu ekki eða vildu ekki fylgja þessari reglu. Sumir vitna um Guð á einn og sumir á annan hátt. Sem betur fer veit Guð að vér erum öll mismunandi eins og smásteinarn- ir í mölinni, á sjávarströndinni, og hann ætlast ekki til að allir hagi sér eins hið ytra. Það er hinn innri imaður sem alt er undir komið, hugarfarið og einlægnin. Þegar maður í raun og veru hefir snúið sér til Guðs og alveg gefið sig honum á

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.