Stjarnan - 01.01.1949, Side 5

Stjarnan - 01.01.1949, Side 5
S T J A R N A N 5 ust. Án efa verður það hinn mesti fögnuður að fá að sjá Jesúm augliti til auglitis. Hann er uppfylling allra Guðs fyrir heita, allra hans náðargjafa. Það er fórn hans og kær- leikur hans, sem hefir veitt oss endurlausn. Jafnvel nú getum vér að nokkru leiti skilið Guðs undra, verðu miskunsemi, en hans óútmálanlega kærleika getum vér ekki skilið til fulls fyr en vér frelsaðir frá þreng- ing hinna síðustu daga stöndum frammi fyrir hans hátign. Sá fagnaðarfundur mun eiga sér stað þegar Jesús kemur aftur. Vor sigri hrósandi frelsari kemur þá í skýjum himins og allra augu munu sjá hann. Þá koma fram dirð postulans: “Nú sjáum vér gegn um gler í ráðgátu, en á síðan augliti til auglitis. Nú þekki eg að nokkru leyti, en þá mun eg sjálfur þekkja eins og eg er sjálfur þektur.” 1. Kor. 13:12. Önnur von sem þá verður uppfylt eir að lifa í návist Guðs. Jesús sagði: “Sælir eru hreinhjartaðir því þeir munu Guð sjá” Þegar Jesús kemur tekur hann lærisveina sína til bústaða föðursins. Þar ríkja þeir með honum í þúsund ár. Slíkurn fögnuði er ekki unt að lýsa eða skilja hann til fulls. Vér vitum hvílík hrifn- ing það er að standa frammi fyrir hátt- standandi manni. En hve miklu fremur ef vér getum sagt: “Hann er vinur minn og hefir boðið mér að vera hjá sér.” En slíkt er einkisvert í samanburði við þann sigur- sæla fögnuð sem hinir frelsuðu njóta þegar þeir standa frammi fyrir Guði og hann býður þá velkomna til hinna himnesku bústaða. Auk þessa eru aðrar framtíðarvonir. Vér höfum loforð um að Guðs börn muni jarðríkið erfa Eden verður enduTreist og gefin mönnum. Frelsunar áformið verður ekki fullkomnað fyir en syndin og upphafs- maður hennar er algjörlega áfmáð, og all- ar menjar syndarinnar. Þá fær mannkynið bústað í nýjum heimi þar sem verður eilífur friður og fullsæla. Það er erfitt að gjöra sér hugmynd um tiiveru vora á himnum gegn um þúsund árin, en þegar vér hugsum til nýju jarðarinnar, berum vér hana saman við hina núverandi jörð, 'nema hvað hún verður í öllum greinum fegri og fullkomnari. Ritningin gefur oss dálitla hugmynd um lífið á hinni nýju jörð. Þar verður enginn ótti fyirir sjúkdómi eða dauða. Op. 21:4. Þar verður engin mis- klíð, ekkert stríð. Þar verður tilveran örugg og hættulaus vinnan ánægjuefni og öll dýr friðsöm. Þar mun dýrð Guðs uppljóma alt. Op. 22:5. Þar verður ævarandi líf og eilífur fögnuður. Páll postuli fer þessum orðum um fram- tíðar tilveru Guðs barna: “Auga hefir ekki séð, ekki eyra heyrt og í einkis huga komið það sem Guð hefir þeim fyrirbúið sem hann elska”, 1. Kor. 2:9. Það er í sannleika erfitt fyrir mann að gjöra sér hugmynd um hina nýju jörð. Hugsum oss hið besta sem njóta má í þessu lífi, fegurð skógi fclæddra hlíða, ár og lækir með tæru fersku vatni, blómum þaktar grasi vaxnar sléttur þar sem friðsamur fénaðuir1 er á beit, skrautlegir fuglar á flugi í loftinu, ham- ingjusamt heimili þar sem kærleikurinn ríkir og saklausu börnin leika sér, land þar sem friður, velmegan og réttlæti ríkir. Sannir óeigingjarnir vinir umhverfis, fjöldi söngradda sem allar hljóma í fullu samræmi, og svo margt fleira sem hugur- inn getur gripið, en alt þetta er aðeins lítið geislabrot af því sem Guð hefir fyrir oss. Þegar vér hugsum um þetta dýrðarland vaknar hjá oss þessi hugsun: “Hver fær inngöngu þangað?” Biblían tekur skýrt fram inngönguskilyrðin. “Andin og brúð- urin segja kom. Sá sem þetta heyrir hann segi kóm þú. Sá sem þyrstur er hann komi, hver sem vill hann taki gefins lífsins vatn”. Op. 22:17. En veirðið sem þarf að borga er hátt. Það er alt sem vér höfum. Sjá Matt. 13:45.- 46. “Guðs ríki er líkt þeim kaupmanni sem leitaði að góðum perlum, en er hann fann eina dýrmæta perlu fór hann og seldi alt hvað hann átti og keypti hana.” Hvað sem maður getur lagt í sölurnar, auð, heiðuir eða hvað annað, þá er það einkis virði í sam- anburði við það sem Guð mun veita oss í staðinn. Róm 8:18. Takið nú eftir eiginlegleikum þeirra sem munu erfa nýju jörðina: “Sælir eru hógværir því þeir munu jarðríkið erfa.” Matt. 5:5. “Bið Drottins og vertu stöðug- lega á hans vegi, þá mun hann hefja þig svo þú erfir landið”. Sálm, 37:34. “Sá rétt- láti fær umbun á jörðunni.” Orðsk. 11:31. “Sá sem sigrar skal öðlast þetta eg skal vera hans Guð og hann skal vera minn sonur.” Op. 21:7.

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.