Stjarnan - 01.01.1949, Side 6

Stjarnan - 01.01.1949, Side 6
6 STJAKNAN “En ríkið, waldið og yfirráðin yfiir öll- um ríkjum sem undir himninum eru, munu gefin verða hinu heilaga fólki hins hæðsta.” Dan. 7:27. Hér reynir á þolgæði heilagra, sem varð- veita boðorð Guðs og tirúna á Jesúm.” Op. 14:12. Endurkoma Krists er í sannleika bless- uð von. Hér sjáum vér heim sem er á barmi eyðilegingarinnar. Þeir eru í vandræðum sem eiga að leiða þjóðirnar til friðar og öryggis. Fjöldi fólks þjáist af örvænting og ótta fyrir því hvað koma muni yfir dag- inn. En vér, Guðs börn, þurfum ekki að vera eins og þeir sem enga von hafa. Vór ættum daglega að hefja augu vor og hjörtu til himins og biðja: “Kom Drottinn Jesús.” Vér þurfum ekki að hengja niður höfuðin vegna þess menn spá óförum. “Þegar þetta tekur að koma fram,” seg- ir Jesús, “Þá lítið upp og upphefjið yðar höfuð, því lausn yðar er í nánd.” Lúk. 21:28. FREDERICK LEE ------------*------------ FRELSUN MANNKYNSINS Hver var itilgangurinn með komu Krists í heiminn? “Hann kom til þess að leita þess sem glatað var og frelsa það?” Hversvegna yfirgaf Guðs sonur dýrð himinsins og sté niður til þessarar syndsplitu jarðar? Svarið finst í Hebr. 2:9. “En han.n sem litlu einu var gjörður englunum lægri, það er að segja Jesús, bann sjáum vér vegna þján- ingar dauðans krýndan vegsemd og heiðri, til þess bann a:f Guðs náð skyldi dauðann smakka fyrir alla.” Jesús dó fyrir mennina. Guð gjörir ekkert að óþörfu eða tilgangslaust. Fórn- færing frelsara vors var eina vonin fyrir glatað mannkyn. Allir hafa syndgað og laun syndarinnar er dauði. En Guð opm- beraði kærleika sinn til vor er hann gaf oss soninn, eins og skrifað stendur: “En Guð auðsýnir kærleika sinn til vor þar sem Kristur er fyrir oss dáinn, meðan vér enn vorum í syndum vorum.” Róm. 5:8. Menn geta ekki gjört kröfu til þeirrar skuldar, sem þegar hefir verið borguð. Vegna þess að frelsari vor hefir borgað vora skelfilegu skuld með dauða sínum á ikrossinum, þá getur Guð verið réttlátur er hann réttlætir hinn trúaða iðrandi synd- ara. Rét'tlæti Krists er tilreikniað oss fyrir trúna, og þetta er gjört til þess að Guð “geti sjálfuir verið réttlátur og réttlætt þann, sem hefir Jesú trú.” “Syndin er lagabrot,” 1 Jóh. 3:4., og vér höfum allir syndgað. Annaðhvort varð að afnema lögmál Guðs til að kornast hjá dauðahegningunni eða hinn hei-lagi, rétt- láti sonur Guðs varð að íklæðast mannlegu holdi og líða hegningu syndarinnair í vorn stað, og þetta er einmitt það sem vor elsk- aði frelsari gjörði. Þetta sýnir miskun og kærleika Guðs, og einnig heilagleika, dýrð og hátign Guðs lögmáls. Jesús dó fyrir manninn af því maðurinn hafði brotið Guðs lögmál. Ef hægt hefði verið að breyta lögmálinu eða afnemia það þá hefði Jesús ekki þurft að deyja. Gegnum eilífar a-ldir stendur kross- inn sem vitni um það að Guðs lögmál er í öllu óumbreytanlegt. Blóð Krists staðfesti lögmálið og aug- lýsir um leið Guðs eilífa kærleika. Lögmál Guðs og kærleiki hans verður ekki aðskil- ið. “Guð elskaði svo heiminn að hann gaf sinn eingetinn son.” Og Jesús elskaði okk- uir og “gaf sjálfan sig fyrir syndir vorar til þess að frelsa oss frá hinni yfirstand- andi vondu öld, samkvæmt vilja Guðs vors og Föður. Gal. 1:4_ í Róm. 8:35 spyr postulinn: “Hver mun gjöra oss viðskila við kærleika Krists? Hvört þjáning eða þrenging, eða ofsókn, eða hungur, eða nekt, eða háski eða sverð?” Hann svarar því sjálfur: “I öllu þessu vinn- um vér meir en sigur fyrir hann isem elsk- aði o.ss. Því eg er þess fullviss að hvorki dauði né líf, né englar né tignir, né hið yfiristandandi, né hið ókomna, né kraftar, né hæð né dýpt, né nokkur önnur skepna muni geta gjört oss viðskila við kærleika Guðs, sem birtist í Jesú Kristi Drotni vor- um.” Róm. 8:37-39. Kærleikur vekur kærleika. Sá sem í raun og veru skilur kærleikia Krists hlýt- ur að elska hann, er elskaði okkur að fyrra bragði. Fórn Krists á krossinum ber stöð- ugan vott um kærileika hans og Föðursins til vor svo óveirðugir sem vér erum. “Svo elskaði Guð heminn að hann gaf sinn eingetinn son til þesis hver sem á hann trúir ekki glatist heldur hiafi eilíft líf.” > Jóh. 3:16. Fórn Krists var fyrirmynduð með pásakþjónustu Gyðinga nóttina áður

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.