Stjarnan - 01.01.1949, Side 7

Stjarnan - 01.01.1949, Side 7
STJARNAN 7 en þeir fóru út af Egyptalandi. Páll post- uli te'kuir þessu skýrt fraim er hann segir: “Því að páskalambi voru er slátrað sem er Kristur.” 1. Kor. 5:7. Fórn Krists er fyrir oss það sem páskalambið var fyrir fsraelsbörn. Getið þér ímyndað yður tilfinningar ísraelsbarna þá nótt. Guð hafði skipað þeim að slátra lambi fyrir hverja fjöl- skyldu og rjóðra blóðinu á dyrastafi sína. Það var 1 j ós í hverju húsi, fólkið hélt há- tíð en var alveg ferðbúið. Þetta var nóttin sem allir frumburðir Egypta dóu en Guðs fólk komst hjá eyðileggingunni. Blóðinu var rjóðrað á dyrafstafi þess. Drottinn hafði sagt við þá: “Þessa sömu nótt vil eg fara um Egyptaland og deyða alla frumburði í Egyptalandi. .. blóðið skal vera yður tákn á þeim húsum þar sem þér eruð, er eg sé blóðið mun eg ganga framhjá yður.” Ex. 12:12.-13. Öll heimili sem dkki voru blóði stökt mistu frumburði sína. En í öllum húsum sem voru blóði rjóðruð voru menn óhultir ef þeir héldu sér inni til morguns. Vér verðum að standa undir merki blóðsins en ekki sleppa oss út í náttmyrkur syndar- innair. Gyðingar neyttu páskalambsins. Jesús er vort lífsins brauð. Ef vér daglega lesum og íhugum Guðs orð og biðjum til Guðs þá þroskast vort andlega líf. Gæti nokkur maður haldið heilsu og kröftum ef hann hefði aðeins éina máltíð á viku? Það er heldur ekki nóg fyirir vort andlega í líf að hafa aðeins lítið eitt af andlegri fæðu einu sinni á viku. Vér þurfum daglega að neyta af því brauði, “sem af himnum er ofan komið og heiminum gefur líf.” Páskarinir meintu líka undirbúning fyr- ir langa ferð til hins fyrirheitna landsins. Þeir voru að yfirgefa Egyptaland. Vér ættum að undirbúa oss fyrir vort fyrir- heitna land. Líf vort breytist þegar vér meðtökhm Krist. Með hverju árinu ættum vér að komast nær voru fyrirheitna landi, líkjast Jesú betur og betur. “Ef vér göng- um í ljósinu eins og hann er sjálfur í ljós- inu, þá höfum vér samfélag innbyrðis og blóðið Jesú Krists hans sonar, hreinsar oss af allir synd.” 1. Jóh. 1:7. Sagt er frá lítilli stúlku þessa páska- nótt fyrir löngu síðan. Hún var elst syst- kina sinna og spurði föður siinn hvort blóð- inu hefði verið rjóðrað á dyrastafina. Faðir hennar fullvissaði hana um það því þjónn- inn væri áreiðanlegur, sem átti að gjöra það. Litlu seinna spuirði hún föður sinn aftur. Hann bað hana vera örugga því alt væri í lagi. Enn leið nokkur stund, það var komið fast að miðnætti. Hún tók hönd föð- ur síns og bað hann leiða sig svo hún sjálf sæi blóðið. Hann lét það eftir henni, slengdi hurðinni opinni og sagði: “Líttu —en orð- in frusu á vörum hans. Það hafði gleymst að rjóðra blóðinu á dyrastafina. *Hann greip í flýti skálina með blóðinu og dreifði því á dyrastafina rétt um miðnættið, þegar ópin heyrðust yfir alt landið. Þau voru nú óhult. Blóð Krists gagnar oss ekki nema því sé dreift á hjörtu vor og það er einungis gjört ef vér iðrumst synda vorra og við- urkennum trú vora á frelsarann. Það er hægt að tala um þetta og prédika um það en það er ekki nóg. Vér verðum að iðrast synda vorra, viðurkenna þær og biðja um fyrirgefningu fyrir Krists forþénustu, og um leið trúa loforði hans um fyrirgefning og frelsun fyrir Jesú úthelta dýrmæta blóð. Látum oss meðtaka Jesúm, trúa á hann og fylgja honum. Honum sem elskaði oss og þvoði oss af vorum syndum með sínu blóði.” Auðugur maður í Ameríku skrifaði hin- um fræga lækni Adolph Lorenz í Vienna og bað hann koma til Ameríku til að lækna dóttur sína sem þjáðist af veiki í beinun- um. Læknirinn kom og meðan hann dvaldi í Ameríku fékk hann mörg þúsund beiðnir um að koma til sjúklinga og hjálpa þeim. Eitt bréfið var frá rífcri konu í austurhluta Chicago borgar. Hún var reiðubúin að borga hvað sem upp vair sett ef hann vildi koma og lækna barn hennar. Eftir að hún sendi bréfið hélt hún daglega bænafund með vinum sínum þar sem hún bað Guð að senda þennan læknir heim til hennar. Hún treysti fullkomlega að bænum sínum yrði svarað. Það var siður læknisins að taka göng- utúr á hverjum degi seinni hluta dagsins hvernig sem veður var. En hann bað keyr- slumann sinn ef óveður kæmi að sækja sig þá. Einu sinni er hann var á gan-gi kom fyrst hæggjörð rigning og svo helliskúr. Konan sem var að biðja Guð að senda

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.