Stjarnan - 01.01.1949, Page 8

Stjarnan - 01.01.1949, Page 8
8 STJARNAN STJARNAN Authorized as second class mail, Post Office Depart- ment, Ottawa. Published monthly. Price $1.00 a year. Publishers: The Can. Union Conference of S. D. A., Oshawa, Ontario. No papérs are sent out except on paid subscription Ritstjðrn og afgTeiðslu annast: MISS S. JOHNSON, Lundap, Man„ Can. læknirinn til hennair fór nú út á veggs- valirnar til að hlífa stólunum fyrir rigning- unni. Hún sá nú gamlan mann koma upp stiginn, hann var sjáanlega rennandi vot- ur. Hann tók ofan hattinn og spurði á ensku, en með útlenskum hreim: “Frú mín, má eg sitja hér á veggsvölunum þangað til það hættir að rigna?” Hún benti honum þegjandi á stól fór svo inn og lokaði dyrum og gluggum fyrir rigningunni. Henni datt ekki í hug að bjóða manninum inn. Litlu seinna sá hún vagn keyra upp að dyrunum og keyrslumaðurinn hljóp í flýti upp á veggsvalirnar með regnhlíf og kápu. Hann lagði kápuna yfir herðar gamla mannsins, svo flýttu þeir sér út að vagninum og keyrðu burt. Konan gaf þessu lítinn gaum, en þegar kvöldblaðið kom út sagði það frá að hinn nafnkunni læknir hefði heimsótt borgina og hann hefði setið um kyrt á veggsvölum einum meðan á hríðinni stóð. Þess var get- ið að tvisvar hefði farið hrollur um hann, fyrst af hinu kalda regni og svo frá viðmóti konunnar sem bjó í húsinu . . . Hún kast- aði frá sér blaðinu og flýtti sér yfir á veit- ingahúsið þar sem læknirinn hafði hald- ið til. En þegar þangað kom var hann rétt nýfarinn af stað með járnbrautarlest til New York og ætlaði að halda þaðan heim tiL sín. Þetta var meira en hún gat afborið. Þegar hún ^ar tekin þaðan æpti hún aftur og aftur: “Ef eg aðeins hefði vitað. Guð sendi hann sem svar uppá bæn mína en eg tók ekki á móti honum.” Jesús býður þér hjálp, fyrirgefning synda þinna og ikraft til að lifa nýju, heilögu lífi. Viltu meðtaka hann og þiggja tilboð hans? E. VALDE ------------'ÍC---------- Bandaríkin hafa radio fyrir hverja 2% manneskju, Bretland hefir radio fyrir hverja sjö og Rússland fyrir hverja 48 af fólki sínu. SMÁVEGIS Svo telst til að fimti hver maður í Bandaríkjunum hafi bíl. Á Englandi er einn bíll fyrir hverja 31 persónu. Á Frakk- landi ein bíll fyrir hverja 32 íbúanna, og á Rússlandi .er aðeins einn bíll fyrir hverja 1130 íbúanna. 4- ♦ ♦ Hveiti uppskera í Bandaríkjunum 1948 var lítið eitt minni en árið áður. Vonast er eftir að stjórnin geti haft 400 miljón mælira (bushels) til útflutnings þangað sem þörf- in er mest. 4- 4- + Gufubátur sem nú er notaður fyrir framan Genoa á ítalíu er hið fyrverandi skemtiskip “Mayflower”, sem var smíðað 1896 og var notað af sex af forsetum Banda- ríkjanna. 4-4-4- “Kappkostið því bræður mínir að stað- festa yðar köllun og útvalningu . . . því þá mun yður veitast ljúfur inngangur í hið eilífa ríki Drottins vors frelsara Jesú Krists.” 1 Pet. 1:10.11. -----------*----------- “Gleðjið yður ávalt í Drotni; og enn aftur segi eg gleðjið yður. Yðar hóg- værð verði öllum kunnug, Drottinn er ná- lægur. Verið ekki hugsjúkir um nokkurn hlut, heldur látið í öllum hlutum yðar ósk- ir koma fyrir Guð í bæna áballi, með þakk- argjörð. Þá mun friður Guðs sem er öllum skilningi æðri halda yðar hjörtum og hugs- unum stöðuglega við Jesúm Krist.” Fil. 4:4-7. 4-4-4- Ef aðrir gleyma þér, þá minstu þess að þú hefir að líkindum ekki gjört nógu mikið fyrir þá til að gjöra þig ógleymanlegan. Ef aðrir hrósa þér þá mundu eftir því að af sjálfum þér getur þú ekkert gott gjört. Guði ber allur heiðurinn. Ef aðrir gjöra þér ilt á einhvern hátt, þá minstu þess að “þeir vita ekki hvað þeir gjöra,” og fyrirgefðu þeim. C.O.G. 4-4-4- Vinir mínir, það flýtir fyrir mér ef þið setjið fulla utanáskrift yðar á bréfin til mín, eg man svo fáar án, þess nema eg fletti þeim upp. S. JOHNSON

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.