Stjarnan - 01.07.1949, Qupperneq 3
S T J A R N A N
51
þeirra er óguðlegt og hversu djúpar rætur
syndin hefur fest í sálum þeirra. Þeir byrja
að fá nokkurn skilning á réttlæti Krists
og hrópa: “Hvílík er syndin, er slíkrar
fórnar var þörf til þess að endurleysa synd
arana! Var allur þessi kærleikur, öll þessi
þjáning og niðurlæging nauðsynleg til
þess, að vér ekki skyldum fyrirfarast, held-
ur hafa eilíft líf?
E. G. W.
______________+______________
III. Endurkoma Krists
1. Kemur Jesús aftur? Hann lofaði þvi
og hans orð bregðast ekki.
“Hjarta yðar skelfist ekki; trúið á Guð
og trúið á mig. í húsi Föður míns eru mörg
hýbýli; væri ekki svo hefði ég sagt yður
það. Ég fer burt til að tilbúa yður stað, og
þegar ég er burt farinn og hefi tilbúið
yður stað, þá mun ég koma aftur og taka
yður til mín, svo að þér séuð þar, sem ég
er.” Jóh. 14:1—3.
2. Hvernig mun hann koma?
“Sjá hann kemur í skýjunum, og hvert
auga mun sjá hann, eins þeir, sem hann
gegn um stungu, og allar kynkvíslir jarð-
arinnar munu fyrir honum skelfast.”
Op. 1:7.
„í því hann sagði þetta varð hann upp-
numinn að þeim ásjáandi, og ský nam hann
frá augum þeirra. Nú sem þeir störðu til
himins, þá hann fór frá þeim, sjá þá stóðu
tveir menn hjá þeim í hvítum klæðnaði,
þeir sögðu: Galíleisku menn, hví standið
þér og horfið til himins? Þessi Jesús, sem
upp numinn er frá yður til himins, mun
koma á sama hátt og þér sáuð hann fara
til himins.” Jóh. 14:1—3.
“Þá mun teikn Mannsins Sonar birtast
á himni, og allar þjóðir jarðarinnar kveina,
og þær munu sjá hann komandi í skýjum
með veldi og dýrð mikilli.” “Þó einhver
segi yður þá að Kristur sé hér eður þar, þá
skuluð þér ekki trúa . . . Því eins og eld-
ingin gengur frá austri og skín alt til vest-
urs, eins mun verða tilkoma Mannsins
Sonar“. Matt. 24:30.
Vér munum heyra hann. „Þá mun
hann senda engla sína með hvellum lúðri,
og þeir munu saman safna hans útvöldum
úr öllum áttum, frá einu heims skauti til
annars.” Matt. 24:31. “Því sjálfur Drott-
inn mun með ákalli, með höfuðengilsraust
og með Guðs lúðri af himni niður stíga, og
þeir sem í Kristi eru dánir munu fyrst upp
rísa.” 1 þess. 4:16.
Hann kemur í dýrð. “En þegar manns-
ins Sonur kemur 1 dýrð sinni og allir
englar með honum, þá mun bann sitja í
sínu dýrðar hásæti.” “Því hver sem lætur
sér minkun þykja að mér og mínum orð-
um, að þeim mun og mannsins Syni mink-
un þykja, þegar hann kemur í dýrð sinni
og Föður síns og helgra engla.” Lúk. 9:26.
“Himininn hvarf eins og samanvafið
bókfell, og hvert fjall og ey færðist úr
stöðvum sínum; konungar jarðarinnar,
höfðingjar og herforingjar, auðmenn og
ríkismenn, þegn og þræll, fólu sig í hell-
um og hömrum fjalla, og sögðu til fjall-
anna og hamranna: hrynjið yfir oss og
felið oss fyrir ásjónu þess, sem í-hásætinu
situr, og fyrir reiði lam^sins, því að nú
er kominn sá mikli dagur hans reiði. hver
fær nú staðist?“ Op. 6:14—17.
Hann mun koma óvörum. „Verið þér
því viðbúnir, því Mannsins Sonur mun
koma þegar þér síst ætlið“. Matt. 24:44.
„En þann dag og tíma veit enginn fyrir,
og ekki englar á himnum, nema Faðirinn
einn“. Matt. 24:36.
3. Hvað mun hann gjöra þegar hann
kemur?
„Sjálfur Drottinn mun með ákalli, með
höfuðengils raust og með Guðs lúðri af
himni niður stíga, og þeir sem í Kristi
eru dánir munu fyrst upp rísa, síðan
munum vér, sem eftir erum lifandi, verða
hrifnir til skýja ásamt þeim, til fundar
við Drottinn í loftinu, og munum vér síð-
an með Drottni vera alla tíma“. Iþess.
4:16—17.
„Því vort föðurland er á himni, hvaðan
vér væntum lausnarans, Drottins Jesú
Krists, sem mun ummynda líkama vorrar
lægingar, svo hann verði líkur hans dýrð-
arlíkama, eftir þeim krafti sem hann hefir
til að leggja alt undir sig.“ Fil. 3:20—21.
„Þá mun ég koma. og taka yður til mín
svo að þér séuð þar sem ég er“. Jóh. 14:3.
„Faðir, ég vil að þeir, sem þú gafst mér
séu hjá mér þar sem ég er, svo þeir sjái
mína dýrð sem þú gafst mér, því þú elsk-