Stjarnan - 01.10.1949, Blaðsíða 4

Stjarnan - 01.10.1949, Blaðsíða 4
76 STJ'ARNAN himni segjandi: Þetta er tjaldbúð Guðs meðal mannanna, hjá þeim mun hann bú- stað hafa og þeir skulu vera-hans fólk, og Guð sjálfur mun vera hjá þeim, og vera þeirra Guð.“ Op. 21:3. Þeir sem hafa nöfn sín skrifuð í lífsins bók. „Ekkert óhreint, enginn sem fremur viðurstygð eða fer með lýgi mun þangað inn koma, heldur þeir einir sem skrifaðir eru í h'fsbók lambsins.“ Op. 21:27. Þeir sem halda Guðs boðorð. „Sælir eru þeir sem breyta eftir hans boðorðum, svo þeir nái að komast að lífstrénu, og megi inn ganga um borgarhliðin inn í borgina.“ Op. 22:14. Hinir hógværu. „Sælir eru hógværir því þeir munu jarðríkið erfa.“ Matt. 5:5. Sá, sem sigrar. „Þann sem sigrar skal ég láta sitja hjá mér í mínu hásæti eins og ég að unnum sigri settist hjá mínum Föður í hans hásæti.“ Op. 3:21. ______________+______________ Hluttakendur í dýrð Krists Þetta er áform frelsara vors Jesú Krists, að lærisveinar hans skuli verða hluttakendur í hans eilífu dýrð í hinum komanda heimi, þar sem allar þarfir þeirra og óskir verða uppfyltar í heimkynnum friðarins, og þeir verða synir og dætur hans sem er konugur alheimsins. Þeir hafa fyrir kraft hans gengið sigrandi gegn um þennan heim, og munu um alla eilífð bera vitnisburð sinn um kraft og kærleika hans, sem frelsaði þá. Það var fyrir þann fögnuð að sjá menn frelsaða og hamingjusama með honum um alla eilífð, að Jesús sté niður til jarðar og leið píslir óg krossfestingu. Vér erum ámintir um að„ beina sjónum vorum til Jesú, höfundar og fullkomnara trúarinnar, til hans sem í stað gleði þeirrar, er hann átti kost á, leið þolinmóðlega á krossi, mat smán einkis, og hefir sest til hægri handar hástóli Guðs.“ Hebr. 12:2. Það er sagt um hina endurleystu að þeir séu „Guðs börn, en ef vér erum börn þá erum vér líka erfingjar, og það erfingj- ar Guðs en samarfar Krists, því að vér líðum með honum, til þess að vér einnig verðum vegsamlegir með honum.“ Róm. 8:16—17. í Opinberunarbókinni er þeim sem sigra synd og freistingar gefið loforð um hlutdeild í hásæti Krists. „Sá sem sigrar, hann mun ég láta sitja hjá mér í hásæti mínu, eins og ég sjálfur sigraði og settist hjá Föður mínum í há- sæti hans.“ Op. 3:21. Jafnvel í þessu lífi er hamingja hins sannkristna óumræðileg gleði. „Þá munuð þér fagna, þótt þér nú um skamma stund, ef svo verður að vera hafið hrygst í margs- konar raunum, til þess að trúarstaðfesta yðar, langt um dýrmætari heldur en for- gengilegt gull, sem þó stenst eldraunina, geti orðið yður til lofs, dýrðar og heiðurs við opinberun Jesú Krists. Þér hafið ekki séð hann en elskið hann þó, þér hafið hann ekki nú fyrir augum yðar, en trúið samt á hann, þér munuð fagna með óumræði- legri dýrðlegri gleði, þegar þér náið tak- markinu fyrir trú yðar, frelsi yðar sálna.“ 1 Pét. 1:6—9. Hvílíkur fögnuður það verður um alla eilífð, hvílík dýrð. Þar verður hvorki sjúkdómur, sorg eða dauði, heldur sífeld gleði, sem ljómar og lýsir upp ásjónu manna. og brýst út í háróma fagnaðar söngvum. Þessi dýrðlega fullvissa um komandi líf heldur hinum sannkristna uppi, jafnvel á dauðastundinni, eins og sjá má af eftir- fylgjandi atviki í æfisögu ihins mikla pré- dikara Moody. Það var meðan borgarastríð- ið stóð yfir, eftir hinn voðalega bardaga við Shilo. Moody var á leið niður Tennessee fljótið á skipi sem hlaðið var særðum mönnum. Þeir voru sífelt að kalla eftir vatni. Hann gaf þeim að drekka og bauð þeim um leið hfsins vatn, þeim til sálu- hjálpar. Loks kom hann að þar sem ungur hermaður lá, sem ekki gat svarað þegar hann talaði til hans. Læknirinn sagði að honum hefði blætt svo mikið að það væri engin lífs von. En Moody sagði hann gæti ekki vitað nafn hans, og væri leitt ef hann dæi án þess menn vissu nafn hans. Hvort ekki mundi mögulegt að hjálpa honum til meðvitundar. Meðan lifgunartilraunir voru gjörðar sagði hermaður sem nærstaddur var að pilturinn héti William Clarke. Loks opnaði sjúklingurinn augun og Moody spurði hann: „William, veistu hvar þú ert?“ Drengurinn leit í kring um sig nokk-

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.