Stjarnan - 01.02.1951, Síða 3

Stjarnan - 01.02.1951, Síða 3
STJARNAN 11 II. Hvað er synd gegn heilögum anda? Það er að spyrna á móti og hafna starfi og áhrifum andans. III. Hvað er hið iífalda verk heilags anda? 1. „Hann sannfærir menn um synd“. Jóh. 16:8. „Syndin er lagabrot“. lJóh. 3:4. „Það er synd að hafna Kristi, sem er hinn eini frelsari frá synd“. Jóh. 16:9. 2. „Hann sannfærir menn um réttlæti“. Jóh. 16:8. „Réttlætiskröfu lögmáls- ins á að verða fullnægt hjá oss, sem ekki göngum eítir holdi heldur eft- ir anda“. Róm. 8:1.—4. 3. Hann sannfærir um dóm. „Höfðingi þessa heims er dæmdur“. Jóh. 16:11. „Menn verða dæmdir eftir lögmál- inu“. Jakob 2:10.—12. „Óttastu Guð og haltu hans boðorð, því það á hver maður að gjöra, því Guð mun leiða sérhvert verk fyrir dóm yfir öllu sem hulið er, hvort sem það er gott eða ilt“. Préd. 12:13.-14. Kristur verður dómarinn. „Guð . . . hefir ákveðið dag, á hverjum hann mun láta mann, sem hann hefir fyr- irhugað, dæma heimsbygðina með réttvísi, og hefir hann veitt öllum fullvissu um það með því, að hann reisti hann frá dauðum“. Post. 17:31. 4. Andinn huggar og hughreystir. „Huggarinn, andinn heilagi, sem Faðirinn mun senda í mínu nafni, hann mun kenna yður alt og minna yður á alt, sem ég hefi sagt yður“. „Hann vitnar um að vér erum Guðs börn“. Róm. 8:16. „Hann býður okkur að koma til Krists“. Op. 22:17. 5. Hann endurfæðir menn. „Ef mað- urinn fæðist ekki af vatni og anda getur hann ekki Tcomist inn í Guðs ríkið“. Jóh. 3:5. Hann endurfæðir þá sem koma til Krists. „Öllum þeim sem tóku við honum gaf hann rétt til að verða Guðs börn, þeim sem trúa á nafn hans spm ekki eru af blóði, né af holds vilja, né af manns vilja, held- ur af Guði getnir“. Jóh. 1:12.—13. 6. Hann dvelur hjá mönnum og er í þeim. Jóh. 14:17. Hann ritar lögmál Guðs í hjarta mannsins. „Þér eruð augljósir orðn- ir sem bréf Krists, sem vér höfum unnið að, ekki skrifað með bleki heldur með anda lifandi Guðs, ekki á steinspjöld heldur á hjartaspjöld úr holdi“. 2Kor. 3:3. „Ég mun gefa lög mín í hugskot þeirra og rita þau á hjörtu þeirra“. Hebr. 8:10. Jesús dvelur í hjörtum vorum fyrir sinn heilaga anda. „Hvílíkur er dýrðarríkdómur þessa leyndardóms meðal heiðinna þjóða, sem er Krist- ur í yður von dýrðarinnar“. Kol. 1:27. 7. Hann biður fyrir mönnum. „Vér vitum ekki hvers vér eigum að biðja eins og ber, en sjálfur andinn biður fyrir oss með andvörpunum, sem ekki verður orðum að komið“. Róm. 8:26. 8. Hann gefur mönnum djörfung til vitnisburðar. „En þér munuð öðlast kraft er heilagur andi kemur yfir yður, og þér munuð verða vottar mínir í Jerúsalem og í allri Júdeu og Samaríu, og til yztu endimarka jarðarinnar“. Post. 1:8. „Og er þeir höfðu beðist fyrir hrærð- ist staðurinn þar sem þeir voru, og þeir fyltust allir heilögum anda og töluðu Guðs orð með djörfung“. „Með miklum krafti báru postul- arnir vitni um upprisu Jesú og mikil náð var yfir þeim öllum“. Post. 4:31.-33. 9. Hann leiðbeinir mönnum sem vilja meðtaka leiðbeiningu. „Allir þeir sem leiðast af anda Guðs, þeir eru Guðs synir“. Róm. 8:14. „Þegar hann sá sannleiksandinn kemur mun hann leiða yður 1 allan sannleika“. Jóh. 16:13—12. „Guðs orð er sannleikur“. Jóh 17:17. 10. Hann innsiglar menn..„Hryggið ekki Guðs heilaga anda, sem þér eruð innsiglaðir með til endurlausnar- dagsins“. Efes. 4:30. „1 honum (Kristi) hafið og þér eftir að vera orðnir trúaðir, verið inn- siglaðir með heilögum anda sem yður var fyrir heitinn, og er partur arfleifðar vorrar“. Efes 1:13—14. „Vinnið ekki jörðinni grand, og ekki heldur hafinu né trjánum, þar til vér höfum innsiglað þjóna Guðs vors á ennum þeirra“. Op. 7:3. Vér erum þjónar þess er vér hlýðum.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.