Stjarnan - 01.02.1951, Qupperneq 4

Stjarnan - 01.02.1951, Qupperneq 4
12 STJARNAN „Þess þjónar eruð þér, sem þér hlýðið, hvort heldur er syndar til dauða eða hlýðni til réttlætis“. Róm. 16: Í6. IV. Hvað er áselnings synd? Þegar menn vísvitandi með ásettu ráði breyta móti betri vitund. 1. Nadab og Abihú tóku eld fyrir reykelsisbrennslu annars staðar heldur en Guð hafði skipað fyrir. 3Mós. 10:1. 2. „Ananías og Saffíra sögðu ósatt um verð eignarinnar sem þau höfðu lofað að gefa“. Post, 5:1.—11. 3. Fólkið á Nóa dögum og nú í dag. „Ilska mannsins var mikil á jörð- inni, og allar hugrenningar hjarta hans voru ekki annað en ilska alla daga“. lMós. 6:3.—7. Lúk. 17:26.-27. V. Geiur maðurinn vitað þegar hann hefir drýgi hina ófyrirgefanlegu synd? 1. Margir munu drýgja þá synd án þess að vita að þeir hafa gjört það. „Ekki mun hver sá er við mig segir: Herra, herra, innganga 1 Guðs ríki, heldur sá er gjörir vilja föður míns sem er á himnum. Margir munu segja við mig á þeim degi: Herra, herra, höfum vér ekki spáð með þínu nafni, og höfum vér ekki rekið út illa anda með þínu nafni, og höf- um vér ekki gjört mörg kraftaverlc með þínu nafni, og þá mun ég segja þeim afdráttarlaust, aldrei þekti ég yður, farið frá mér þér sem fremjið lögmálsbrot“. Matt. 7:21.—23. 2. Margir munu of seint sækjast eftir Guðs orði. „Sjá, þeir dagar munu koma segir herrann Drottinn að ég mun senda hungur inn í landið, ekki hungur eftir brauði, né þorsta eftir vatni, heldur eftir því að heyra orð Drottins, svo að menn skulu renna frá einu hafinu til annar og renna frá norðri til austurs til þess að leita eftir orði Drottins. En þeir skulu ekki finna það“. Amos. 8:11.—12. 3. Öllum sem í einlægni koma til Jesú nú veitir hann viðtökur. „Alt sem Faðirinn gefur mér mun koma til mín, og þann sem til mín kemur mun ég alls ekki burt reka“. Jóh. 6:37. VI. Ásetnings synd er að gjöra það sem oss sýnist þó vér vitum það sé gagn- stætt Guðs orði, og treysta því að Guð sé svo góður að hann muni fyrirgefa það. Þetta leiðir til þess að maður slekkur andann og drýgir hina ófyrirgefanlegu synd. Boðskap Nóa var hafnað og fólkið fórst. Það er hættuieg villa að vænta þess að réttlátur, góður Guð muni fyrirgefa allar syndir undir öllum kringum- stæðum. E. G. W7 -----------☆------------ Líttu upp; en ekki umhverfis þig Maður frá New York, ókunnugur mér, sat á móti mér við borðið í matsöluhúsi einu í borginni. Eftir að við höfuðum tal- að saman um stjórnmál, fjármál og félags- lífið sagði hann: „Það er alt annað en hug- hreystandi að líta í kringum sig. Ég er hættur að lesa dagblöðin og hlusta á út- varpið. Það er alt í slíkri óreiðu að taugar mínar þola ekki að heyra það“. Nokkrum dögum seinna staddur í Vest- urríkjunum var ég á járnbrautarstöð að bíða eftir að mæta kunningja mínum. Þá heyrði ég verkamann tala við einn af yfir- mönnum járnbrautarfélagsins. Fyrst töl- uðu þeir um stjórnmál þjóðarinnar. Svo sagði járnbrautarþjónninn við vin sinn: ,„Það gleður mig, að ég er orðinn eins gam- all og ég er, Jim. Ég vildi ógjarnan hafa önnur tuttugu ár fyrir framan mig eins og alt nú lítur út“. Hálfum mánuði seinna sat bankastjóri við hlið mér í flugvél frá Utah til San Francisco. Eftir að hafa talað um fjár- hagsvandræði heimsins sagði hann: „Það eru hættulegir dagar framundan. Það skelfir mig að hugsa um hvað næstu fimm árin geta fært með sér. Mér er skapi næst að hætta við starf mitt“. Ég var dálítið hissa yfir þessum hugs- unarhætti sem alment var látinn í ljósi frá hafi til hafs. Hann sýnir óvissu, ótta og vonleysi nútíðarmanna. Það virðist eins og mannkynið um miðbik þessarar aldar hafi tapað bæði trú og hugrekki. Ef hinir hraustustu brautryðjendur liðinnar aldar gætu séð hugarástand barna sinna mundu þeir verða for- viða. Nútíðarmenn erfðu heilbrigðan hugs- unarhátt og hraustan líkama frá hinum hugrökku forfeðrum sínum, sem voguðu sér yfir hafið á lélegum seglbátum, ferð- uðust yfir eyðimerkur, mættu alls konar torfærum, og þurftu að berjast við Indí-

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.