Stjarnan - 01.02.1951, Síða 6
14
STJARNAN
Forðist hættuna
Fjöldi fólks safnaðist saman til að sjá
dýrasýninguna. Formaður sýningarinnar
vissi hvað skemti fólkinu bezt, og seinast
á hverjum degi sýndi hann það. Einn af
dýratemj endum hans endaði venjulega
sýningu dagsins með því að stinga höfð-
inu inn í opinn kjaftinn á ákaflega stóru
ljóni. Fólkið var hrifið mjög að horfa á
þetta. Ljónið hafði verið æft í þessu og
manninum fanst ekkert til um það.
Mánuðir liðu. Dýrasýningin hélt á-
fram í hverjum stað meðan aðsókn var
góð, svo fluttu þeir í annan bæ. En einn
dag þegar temjandinn var að því kominn
að stinga höfðinu inn í ljónskjaftinn, þá
tók hann eftir manni sem hann var viss
um að hafa séð í þorpinu þar sem þeir
voru næst á undan. Hví skyldi hann vera
hér. Hann hefir líklega gaman af að sjá
til mín, hugsaði hann með sér, svo stakk
hann höfðinu inn í ljónskjaftinn eftir
vanda.
Dagarnir liðu, og á hverju kvöldi sá
hann þennan sama mann standa rétt hjá
ljónsbúrinn til að horfa á hann ljúka við
dagsverk sitt. Hann ásetti sé nú að komast
eftir hvers vegna þessi maður var þar
altaf viðstaddur, og næsta kvöld er hann
kemur yfir að búrinu segir hann við mann-
inn: „Hef éf ekki séð þig áður?“
„Jú, og það margsinnis11.
„Fylgir þú dýrasýningunni úr einu
þorpi í annað?“
„Já, ég gjöri það“.
„Hvers vegna ertu altaf á eftir okkur?“
„Af því ég veit að sá tími kcmur að
ljónið lokar kjaftinum og endar sögu þína,
og þá ætla ég að vera viðstaddur", svaraði
maðurinn.
Sem betur fór hætti sýningarmaðurinn
þessum hættulega og heimskulega leik, að
setja líf sitt í hættu .....
Gamall Indíáni fann nýfæddan ljóns-
hvolp á veiðum sínum og tók hann heim
og ól hann upp og tamdi hann. En einn dag
eftir að hvolpurinn var orðinn fullvax-
inn drap hann húsbónda sinn. Það er
hættulegt að leika sér við villidýr, jafn-
vel þó tamin séu, það getur valdið slysi.
En margfalt meiri hætta er að ala synd í
hjarta sínu, því fyr eða seinna steypir
hún í glötun þeim sem heldur við hana.
Það er óhjákvæmileg afleiðing, því laun
syndarinnar er dauði. Því verður ekki
breytt. Svo eina ráðið til að forðast hinar
skelfilegu afleiðingar syndarinnar er að
snúa sér frá henni og flýja til Jesú, hann
sem kom til að „frelsa sitt fólk frá synd-
um þess“. Guðs dýrmæta loforð er þetta:
„Ef vér játum syndir vorar, þá er hann
trúr og réttlátur svo hann fyrirgefur oss
syndirnar og hreinsar oss af öllu rang-
læti“. lJóh. 1:9.
Vér þekkjum ekkert fyrirheit um fyrir-
gefningu syndanna og eilíft líf fyrir þá
sem vísvitandi halda við synd, afsaka hana
og álíta að nákvæm hlýðni við Guðs orð
sé ekki nauðsynleg. Þeir sem halda við
þá skoðun og fylgja þeirri stefnu eru
staddir í voðalegri hættu. Þeir stofna sálu
sinni í voða.
„Leitið Drottins meðan hann er að
finna, kallið á hann meðan hann er ná-
lægur“. C. O. G.
------------☆------------
Til athugunar fyrir foreldra
Unglings drengur var kallaður fyrir
rétt, sakaður um þjófnað. Dómarinn var
vingjarnlegur, góður maður, sem vildi
reyna að komast að orsökinni til brotsins,
í þeirri von að hann gæti hjálpað unga
manninum á réttan veg, svo að hann kall-
aði föður drengsins til að tala við hann.
Faðirinn var niðurbrotinn og sagðist hafa
gjört alt sem hann gat fyrir drenginn.
Hann hafði hvatt hann til frítímavinnu,
keypt smíðatól og vélar fyrir hann, og
reynt að hugsa upp alt sem hann hélt að
yrði honum að gagni. Hann skildi ekkert-
í hvernig sonur hans gat freistast til að
taka það sem hann átti ekki.
Dómarinn bað um leyfi til að heim-
sækja foreldrana. Hann kom þangað ein-
mitt þegar móðirin var að hengja út þvott.
Eitt var það sem dróg að sér athygli dóm-
arans. Öll handklæðin á snúrunni báru
nafnið á einu eða öðru veitingahúsi. Ein-
hver annar í fjölskyldunni hafði auðsjá-
anlega stolið. Drengurinn lærði það sem
var fyrir honum haft.
Vér heyrum mikið í útvarpinu um
spilta unglinga. Vér lesum um þá í dag-
blöðunum, og prestar vorir tala um þá í
ræðum sínum. Vér kveinum yfir afvega-
leiðslu þeirra. Margir af þeim eru lög-
leysingjar sem fyrirlíta bæði lög heimilis-
ins og lög landsins. Hví er æskulýður-
inn nú öðruvísi en hann var fyrir 30—40
árum síðan?