Stjarnan - 01.02.1951, Blaðsíða 7
STJARNAN
15
*
Æskulýðurinn er öðruvísi af því for-
eldrarnir eru öðruvísi, og heimilin eru
ekki það sem þau voru þá.
Þegar faðirinn skipar syni sínum að
horfa út um -bakgluggann á bílnum og
gjöra sér aðvart ef hann sér lögregluþjón
á reiðhjóli, svo hann geti keyrt 75 mílur
á klukkustund, þar sem leyft er að keyra
aðeins 55 mílur, hvaða virðingu mun sá
drengur læra að béra fyrir lögum rík-
isins?
Einmitt í dag sá ég, föður og móður
með tvo efnilega litla drengi sitja í bif-
reið sinni. Bæði hjónin voru að reykja
vindlinga. Þurfa þessir foreldrar nokkuð
að furða sig á því ef litlu drengirnir þeirra
reyna til að reykja. Þegar móðir við mið-
dagsborðið stærir sig af því að hún hafi
svikið nokkur cent út úr búðarmanninum
meðan hún var að verzla í búðinni, hvaða
áhrif getur hún búist við að það hafi á
börnin?
Ungur maður stóð fyrir rétti, dæmdur
fyrir fölsun. Dómarinn var vinur fjöl-
skyldunnar, og hafði þekt drenginn síðan
hann var barn. Faðir unga mannsins hafði
verið vel þektur meðal lögfræðinga og
hafði ritað bók um lög. Það var einhver
hin bezta bók sem til var um það efni.
„Manst þú eftir föður þínum?“ spurði
dómarinn alvarlega, „föður sem þú hefir
smánað með breytni þinni?“
„Já, ég man vel eftir honum“, svaraði
pilturinn. „Ég fór oft til hans með við-
fangsefni mín og bað um ráðleggingu
hans. Ég bað hann oft að koma með mér
þangað sem mig langaði að fara. Ég fékk
altaf sama svaraði: „Hlauptu nú út dreng-
ur, ég á annríkt. Ég er að skrifa bók“.
Pabbi lauk við bókina og er íarinn . . . en
hér er ég í höndum réttvísinnar. Alt hefði
getað gengið öðruvísi“.
Þessi nafnkunni lögfræðingur vann sér
inn frægð og fé, en hann misti dýrmæt-
asta fjársjóðinn — drenginn sinn.
Það gleður mig að barnfóstrur vóru
ekki komnar í móð á æskuárum mínum.
Ef börnin gátu ekki farið út með for-
eldrunum þá sátu foreldrarnir heima, eða
ef annað þeirra varð að fara út þá var
hitt kyrt heima til að líta eftir dýrmæt-
asta fjársjóðnum sem þau áttu.
Maður nokkur var einu sinni staddur
í Tiffanys gimsteinabúð í New York og
heyrði afgreiðslumann segja við konu sem
var að verzla þar að perlan sem hann
sýndi henni væri 17,000 dollara virði. Það
var aðeins ein perla. Manninum datt nú í
hug hvað hann mundi gjöra ef allir gim-
steinar Tiffanys væru skildir eftir á heim-
ili hans og honum boðið að ábyrgjast þá.
Hann hélt hann mundi strax síma yfir-
manni lögreglunnar og biðja um nokkra
valda lögregluþjóna til að standa á verði
kringum húsið. Alt í einu datt honum í
hug að hann hefði 9 ára gamlan son heima,
sem var miklu dýrmætari heldur en allir
gimsteinar í New York. Hann undraðist
yfir að hann hafði ekki íundið meira til
hinnar miklu ábyrgðar sem á honum hvíldi
að varðveita þennan dýrmæta fjársjóð.
Jane Adams sagði: „Heimilin og skól-
arnir ákveða framtíð Ameríku!"
Calvin Coolidge hafði rétt fyrir sér er
hann sagði: „Framtíð og frægð Ameríku
er undir heimilunum komin“.
Sá dagur kemur að vér foreldrar verð-
um spurð: „Hvar er sú hjörð, sem þér var
fengin, þín fagra hjörð?“ Hvernig getum
við farið til húsa föðursins án þeirra?
C. L. Paddock
------------------------
Guði helgað líf
Mikið hefir verið talað og ritað um
einfalt líf, atorkusamt líf, nægtalíf, en nú
er mörgum farið að verða umhugað um
Guði helgað líf. Helgun ér verk heilags
anda í lífi hins trúaða sem frelsaður er
frá synd og hefir gefið Guði líf sitt. Sama
hugtak og helgun felst í orðunum endur-
fæddur, umventur, frelsaður, guðrækinn.
Hinn dýrmætasti ávöxtur helgunarinn-
ar er auðmýkt, þar með fylgir stöðug von
og traust til Guðs og undirgefni undir vilja
hans. Sá sem auðmjúkur er stærir sig al-
drei af neinu. Guðs andi sem helgar mann-
inn veitir honum stöðugan kraft til að
stjórna sjálfum sér.
Heilagt líf er ekki gleðisnautt líf i
einveru, heldur er það í samrærni við Guðs
opinberaða orð í trúmensku við kristileg-
ar skyldur mannsins. Það er líf hafið yfir
heimsins siði þó menn lifi í heiminum.
Helgun er kristileg starfsemi, tru sýnd
í verkinu. Hún er guðdómlegur kraftur
sem kemur fram í breytninni, til að létta
sorgir meðbræðra vorra og biðja fyrir
þeim.
Stríðið milli ljóssins og myrkravalds-