Stjarnan - 01.11.1951, Side 4

Stjarnan - 01.11.1951, Side 4
84 STJARNAN kirkjan kölluð Babýlon. Báðar gjöra þær kröfu til að hafa andlegt vald og neyða menn til hlýðni. 5. Allar þjóðir eru drukknar af víni hennar. „Fallin er, fallin er Babýlon hin mikla, sem byrlað hefir öllum þjóðum af víni saurlifnaðar síns“. Op. 14:8. „Ég mun sýna þér dóminn yfir skækjunni miklu . . . sem kon- ungar jarðarinnar hafa drýgt saur- lifnað með, og þeir sem á jörðinni búa hafa orðið druknir af saurlifn- aðarvíni hennar“. Op. 17:2. 6. Fjöldinn af íbúum heimsins munu fylgja henni (tilbiðja dýrið). „Allir sem á jörðinni búa munu tilbiðja það, hver og einn sá, er ekki á nafn sitt ritað í lífsbók lambsins“. Op. 13:8. 7. Hún verður aS lokum algjörlega eySilögS. „Og hornin tíu, sem þú sást og dýrið, munu hata skækjuna, og gjöra hana einmana og nakta og eta hold hennar og brenna hana í eldi . . . . og konan sem þú sást er borgin mikla, sem heldur ríki yfir konungurr^ jarðarinnar11. Op. 17: 16,—18. IV. BoSskapur þriSja engilsins er fjór- föld aSvörun. 1. Menn eru varaðir við því að tilbiðja dýrið. 2. Móti því að tilbiðja líknesi þess. 3. Móti því að taka merki dýrsins. 4. Þeir sem ekki gefa gaum þessum aðvörunum munu leiða yfir sig reiði Guðs. Og annar engiíl, hinn þriðji kom á eftir þeim og sagði hárri röddu: „Ef einhver tilbiður dýrið og líkneski þess og fær merki á enni sitt eða hönd sína, þá skal hinn sami drekka af reiðivíni Guðs, sem byrlað er óblandað í reiðibikar hans og hann mun kvalinn verða í eldi og brennist'eini í augsýn hei- lagra engla og lambsins“. Op. 14:9.-10. V. Tíu airiði einkenna hinn síSasla söfnuð Guðs. 1. Hann flytur öllum þjóðum boð- skapinn að tími Guðs dóms er kom- inn. Op. 14:6.—7. 2. Hann auglýsir fall Babýlonar. Op. 14:8. 3. Hann aðvarar móti dýrinu, líkneski þess og merki. Op. 14:9.—10. 4. Hann hvetur menn til að tilbiðja skapara alheimsins. Op. 14:7. 5. Hann varðveitir boðorð Guðs. Op- 14:12. 6. Hann trúir á Jesúm og tilbiður hann „Hér reynir á þolgæði hinna hei- lögu, þeir er varðveita boð Guðs og trúna á Jesúm“. Op. 14:12. 7. Hann heldur sér við vitnisburð Jesú — anda spádómsins. „Og drekinn reiddist við konuna og fór burt til að heyja stríð við hina aðra afkomendur hennar, þá er varðveita boð Guðs og hafa Jesú vitnisburð". Op. 12:17. „Vitnisburður Jesú er andi spá- dómsgáijjinnar". Op. 19:10. 8. Hann mun verða að líða illvilja og ofsóknir. Op. 12:17. 9. Hann mun gefa gaum að skipun Guðs og ganga út úr Babýlon. „Gangið út mitt fólk, út úr henni (Babýlon), svo að þér eigið engan hlut í syndum hennar og hreppið ekki plágur hennar“. Op. 18:4. 10. Hann mun fylgja Jesú, vinna með honum og fyrir hann. „Farið út um allan heiminn og pré- dikið gleðiboðskapinn allri skepnu“. Mark. 16:15. „Ég heyrði rödd af himni sem sagði: Rita þú Sælir eru dánir, þeir sem í Drotni deyja upp frá þessu, já, segir andinn, þeir skulu fá hvíld frá erfiði sínu, því að verk þeirra fylgja þeim“. Op. 14:13. -----------☆----------- „Verið í bróðurkærleikanum ástúðlegir hver við annan, og verið hver öðrum fyrri til að veita hinum virðingu. Verið ekki hálfvolgir í áhuganum, ver- ið brennandi í andanum, þjónið Drotni. Verið glaðir í voninni, þolinmóðir í þján- ingunni, staðfastir í bæninni. Takið þátt í þörfum heilagra, stundið gestrisnina. Fagnið með fagnendum, grátið með grátendum. Ef óvin þinn hungrar gef honum að éta, ef hann þyrstir gef honum að drekka. Lát ekki hið vonda yfirbuga þig, heldur sigra þú ilt með góðu“.

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.