Stjarnan - 01.10.1952, Qupperneq 3

Stjarnan - 01.10.1952, Qupperneq 3
STJARNAN 75 Guð er kærleikur „En sækist eftir náðargáfunum, þeim hinum meiri og nú bendi ég yður á ennþá miklu ágætari leið.“ Þetta er eini staðurinn í Ritningunni þar sem mælt er með því að sækjast eftir eða girnast, meira að segja mönnum er skipað það, og þeir hvattir til að sækjast alvarlega eftir, það er, hafa ákveðið áform um að öðlast það sem sótt er eftir. Það er til tvens konar eftirsókn, önnur æskileg og virðingarverð, hin er vond og fyrirdæmd í Guðs orði eins og afguða- dýrkun. Tíunda boðorðið bendir á hvað menn skuli ekki sækjast eftir, það eru sýnilegir jarðneskir hlutir, sem tilheyra náunganum. Það meinar löngun eftir að ná í annara eignir, með réttu eða röngu á hvern hátt sem mögulegt er, þetta lýsir eigingirni og getur leitt til ráns og annara glæpa. Að hinu leytinu er eftirsókn eftir and- legum hlutum æskileg og heiðursverð, að öðlast meiri þekking og framför í siðferðis- og menningarlegu tilliti, það getur ekki skaðað náungann á nokkurn hátt, þess hátt- ar gæði jafnvel aukast með því að miðla öðrum af þeim með sér. Jafnvel í þéssu lífi er hið ósýnilega og eilífa dýrmætasti fjársjóðurinn. Páll postuli sagði: „Vér horfum ekki á hið sýnilega heldur hið ó- sýnilega, því hið sýnilega er stundlegt en hið andlega eilíft.“ 2 Kor. 4:18. Hver getur metið sem vert er hinar varanlegu dygðir: Kærleika, trú, von, gleði, vizku, þekkingu og göfugt innræti, en alt þetta er ósýnilegt. Allir kristnir menn ættu að girnast og sækjast eftir þess- um dygðum, sem ekkert tímanlegt eða jarðneskt getur jafnast við. Nemandinn sem sækist eftir þekkingu og aflar sér hennar rænir alls ekki kennara sinn sem hjálpar honum við námið. Kennarinn sjálfur-tekur framförum er hann miðlar öðrum af þekkingu sinni. Það er æskilegt að girnast og keppa eftir að líkjast Jesú í hugarfari og líferni. Áminning Páls postula um að sækjast eftir náðargáfunum meinar gjafir andans, sem talað er um í 1. Kor. 12:28.—29. versi. Þessar gjafir eru nauðsynlegar fyrir vel- ferð og þroska Krists safnaðar. Án þeirra gæti söfnuðurinn ekki fullnægt skyldu sinni. Sumar af þessum náðargjöfum and- ans eru taldar upp í Efes. 4:11.—15. „Frá honum er sú gjöf komin að sumir eru postular, sumir spámenn, sumir trúboðar, sumir hirðar og kennarar, til þess að full- komna hina heilögu, til að láta þeim þjón- ustu í té Krists líkama til uppbyggingar, þangað til vér verðum allir einhuga í trúnni og þekkingunni á Guðs syni, svo vér náum aldurshæð Krists fvllingar." Tilgangur allra þessara gjafa er að vér komumst til einingar 1 trúnni og þekking- ar á Guðs syni og náum „vaxtartakmarki Krists fyllingarinnar.“ Þessi andlegi þroski er nauðsynlegur svo að menn ekki hrekist frá trú sinni fyrir hvern kenningarþyt slægra, afvegaleiðandi manna. Það er ekki hægt að leggja of mikla áherzlu á nauðsyn þessara náðargjafa, þær eru svo nauðsyn- legar fyrir líf og þroska safnaðarins að postulinn hvetur menn til að sækjast al- varlega eftir þeim. Seinna nefnir hann spádómsgáfuna. „Keppið eftir kærleikan- um. Sækist eftir andagáfunum, en einkum eftir því að geta spáð.“ 1. Kor. 14:1. „En nú bendi ég yður á ennþá miklu ágætari leið.“ 1. Kor. 12:31. Þessi miklu ágætari leið, sem er mikil- vægari öllum öðrum gjöfum andans, er vegur kærleikans, án kærleikans eru aðrar gjafir lítils virði. Allar gjafir andans eru eftirsóknarverðar, en af þeim er kærleik- urinn mestur. Hann er hornsteinninn í grundvelli kristilegs innrætis, aðrar dygð- ir fylgjast með að sjálfsögðu. Kærleikur- inn er miðpunktur og lífæð kristindóms- ins. Páll postuli hafði án efa meiri andans gjafir heldur en nokkur annar að Kristi undanteknum. En hann áleit þær einkis virði ef kærleikurinn var ekki með. Aðrar gjafir líða undir lok en kærleikurinn varir eilíflega. Verðmæti gjafanna er mikið komið undir vilja og viðleitni þeirra, sem öðlast þær. Fáir nota þær til fullnustu, og sumir láta þær ónotaðar, eða grafa pund sitt í jörðu eins og maðurinn í dæmisögunni. Kærleikurinn er starfssamur, ávalt öðrum til blessunar, svo þeir sem láta stjórnast af honum eru eins og ritað bréf, þekt og lesið af öllum mönnum. Gæzka er sönn mikilmenska, og helzta áhugamál allra kristinna manna ætti að vera að líkj-

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.