Stjarnan - 01.10.1952, Side 8
80
STJARNAN
STJARNAN Authorized as second class
mail, Post Office Depart-
ment, Ottawa. Published monthly. Price $1.00
a year. Publishers: The Can. Union Conference
of S. D. A„ Oshawa, Ontario.
Ritstjórn og aígreiðslu annast:
MISS S. JOHNSON, Lundar_ Man., Can.
Of seint
Járnbrautarstöðin var full af fólki, sem
var að tala saman og sumir notuðu tal-
símann. „Del Monte“, lestin frá San Fran-
cisco, California, hafði rétt staðnæmst í
San Jose. Aðrir farþegar ásamt mér voru
að flýta sér inn í lestina, sem var á suður-
leið. Ég fékk sæti við glugga þar sem að
ég hafði bezta útsýni yfir aldingarða, hæð-
ir og hóla á leið minni heim.
Ég náði í bók og fór að lesa þangað til
lestin hreyfðist, þá leit ég út um gluggann
og sá mann koma hlaupandi, með far-
seðilinn sem han hélt á lofti til þess járn-
brautarstjórinn sæi hann. Maðurinn vildi
fá að komast með „Del Monte“ lestinni, en
hrygð hans, vandræðasvipur og beiðni um
að komast með lestinni hafði engin áhrif.
„Konan mín er á lestinni.11 En alt var ár-
angurslaust. Járnbrautarstjórinn aðeins
hristi höfuðið og sagði að hann væri af
seinn.
Of seint. Ég horfði á landslagið gegn
um gluggann og var þakklátur mjög að
ég hafði komið í tíma til að ná lestinni.
Ég var svo rólegur og ánægður að ég var
á réttum stað, á leið heim til mín, og mundi
komast þangað til að borða miðdag.
Ég var að hugsa um vandræði manns-
ins sem misti af lestinni, og hversu miklu
ver þeir yrðu þó staddir, bæði menn og
konur, sem ekki yrðu viðbúin að mæta
Jesú þegar hann kemur.
Að tilheyra söfnuði^ verður ekki gildur
inngöngumiði, ef hjartað er ekki einhuga
með Guði, og maðurinn ekki þar sem Jesús
vill hann sé. Eiginkona og aðrir ástvinir,
sem eru reiðubúnir fara án hans.
Vér vitum ekki daginn né stundina
þegar Jesús kemur, en vér höfum ótal
merki þess að koma hans sé í nánd. Og
þar sem vér vitum þetta ættum yér þá ekki
stöðugt að vera viðbúin komu hans?
Jesús sagði: „Fyrir því skuluð og þér
vera viðbúnir, því manns sonurinn kemur
á þeirri stundu sem þér eigi ætlið.“
Matt. 24:44.
Frélsari minn, vér viljum ekki vera of
seinir eða óviðbúnir. Gef þú að allir sem
lesa þessa grein verði viðbúnir að fara
heim með þér.
LEILA GILHOUSEN
----------------------
Smávegis
Lífstími Ijóna er venjulega um 15 ár.
Það kemur fyrir að þau verða 20 ára.
☆ ☆ ☆
Árið 1951 voru 19 verzlunarfélög í
Bandaríkjunum sem seldu vörur upp á
eina biljón dollara á ári.
☆ ☆ ☆
í vesturhluta Bandaríkjanna eru ennþá
16 miljón ekrur af landi óræktaðar, sem
vel mætti nota með vatnsveitingum.
☆ ☆ ☆
Strútfuglafjaðrir eru aftur í móð af því
París fór áftur að skreyta hatta með þeim.
Árið 1882 seldu Suður-Afríkubúar strúts-
fjaðrir upp á 5 miljónir dollara. 1913 kost-
aði eitt pund af strútsfjöðrum 500 dollara.
1951 kostaði pundið 18 dollara, það var
einum tíunda hluta hærra en 1950.
☆ ☆ ☆
Átta miljón bækur eru árlega seldar í
Noregi.
☆ ☆ ☆
Það er hægara að fljúga yfir vatn held-
ur en land hvern tíma árs sem er. '
☆ ☆ ☆
Árið 1950 voru framdir 1,790,030 stór-
glæpir í Bandaríkiunum.
☆ ☆ ☆
Árið 1946 voru tiltölulega fleiri ógiftir
menn á írlandi heldur en í nokkru öðru
landi heimsins. Aðeins tveir af hverjum
fimm mönnum á aldrinum frá 30—34 ára
voru giftir.
☆ ☆ ☆
Álitið er að afkomendur einnar mel-
flugu geti étið 92 pund af ull á ári.
☆ ☆ ☆
Aðeins ein af hverjum 10 ungum stúlk-
um sem ganga á háskóla (College or Uni-
versity) í Bandaríkjunum taka upp hag-
fræði og heimilishald.