Stjarnan - 01.06.1953, Side 3

Stjarnan - 01.06.1953, Side 3
STJARNAN 43 Hann skorti eitthvað. Honum var áhuga- mál að 'finna veginn til eilífs lífs. Jesús- leit á hann og elskaði hann. Hann langaði til að hjálpa honum. „Eins er þér enn vant,“ sagði Jesús vin- gjarnlega við hann, „far þú og sel allar eigur þínar og gef fátækum, og munt þú fjársjóð eiga á himni, kom síðan og fylg' mér.“ En hann varð dapur í bragði við þau orð og fór burt hryggur, því hann átti, miklar eignir. Jesús horfði á eftir honum, ég held með tár í augunum. Hvílíkur starfsmaður þessi maður hefði getað orðið fyrir Guðs ríki,. og öðlast heiðursstöðu meðal hinna út- völdu. Hann hefði getað orðið hluttakandi úthellingar heilags anda á hvítasunnu- daginn. Hann hefði getað orðið höfundur einhverra bóka Nýja Testamentisins. En, það fór öðruvísi, vér heyrum ekkert meira um hann. Hið æðsta markmið að keppa eftir fyrir alla, sem óska eftir að vera með Jesú í hans dýrðarríki, er að fylgja dæmi hans í öllum hlutum. Vér ættum að rannsaka og íhuga nákvæmlega kærleiks og náðar- verk hans. Erum vér að stofna oss í þá hættu að missa vora himnesku arfleifð með eigingirni og sjálfselsku vorri? Vera má vér gefum örlátlega af fé voru, en gef- um vér þeim sem niðurbeygðir eru kær- leika vorn og samhygð? Höldum vér oss í fjarlægð við þá sem eru aumingjar eða, fallnir? Jesús elskar og ber umhyggju fyrir þeim fátæku og aumu. Hann dó líka fyrir þá. Þar er tækifæri fyrir þá sem betur eru settir að sýna Jesú hugarfar. Davíð segir: „Sæll er sá, sem gefur gaum. að bágstöddum, á mæðudeginum bjargar Drottinn honum. Drottinn varðveitir hann og lætur hann halda lífi. Hann mun gæfu njóta í landinu.“ Sálm. 41:1.—2. —KATHLEEN BARRON --:-----☆-------- Guð gefur oss sinn heilaga anda bæði oss til verndar og hughreystingar. Hugsið yður Davíð Livingstone, sem hjálpaði negrafólkinu í Afríku svo það fengi skiln- ing á, að lífið hafði betra að bjóða heldur en þá fávisku, spilling og eymd sem þeir lifðu í. Hann var svo fyltur af Guðs heil- aga anda að hann óskaði eftir að fara þangað, sem neyðin og þörfin var mest, fara án konu sinnar og dóttur, án þess að hafa nokkurn félaga af sinni eigin þjóð, og mæta alskonar hættum og erfiðleikum. Hann var 45 sinnum veikur af hitasótt. Hvers vegna var hann fús til að leggja alt þetta á sig? Það var af því hjarta hans var fylt af kærleika Krists, og hann vildi að sem flestir aðrir fengju að njóta þeirrar blessunar, sem fæst í samfélaginu við Guð og frelsara vorn Jesúm Krist. Guðs andi uppörfaði og hughreysti hann, annars hefði hann að líkindum gefist upp og látið negrafólkið deyja án þekkingar á frelsar- anum. Livingstone var hamingjusamur, Guðs heilagi andi var hans vinur og huggari. Þó vér værum fjarlægir öllum vinum og vandamönnum, ef vér höfum samfélagl við Jesúm og erum leiddir af hans heilaga anda þá þurfum vér aldrei að finna oss: einmana, því Jesús segir sjálfur: „Sjá, ég' er með yður alla daga , alt til veraldar- innar enda.“ —M. V. KIT, 1953 -------☆------- Varðveisla Guðs í þeim hluta Suður-Ameríku þar sem satan reyndi sitt ýtrasta til að hindra pré- dikun fagnaðar erindisins, þar var trú- boðinn Westphal að ferðast úr einum stað í annan til að flytja fólkinu gleðiboðskap- inn. Eitt kvöld eftir samkomu bað fólkið hann að vera þar um nóttina og fara ekki til næsta þorps fyr en daginn eftir. Það vissi, að vondir menn ætluðu sér að sitja fyrir honum um nóttina á stígnum yfir fjallið. En Westphal sagðist vera óhrædd- ur, því hann vissi að Guð mundi verndai sig. Svo fór hann af stað. Hann fánn sig als ekki einmana, er hann gekk þessa sjaldförnu götu yfir fjallið. Hann vissi að hann var ekki einn á ferð. Hann heyrði bergmálið af fótataki sínu' er hann gekk yfir þennan steinótta götuslóða. Þegar hann kom yfir á fjallshlíðina hinum megin heyrði hann hávaða eins og fældir hestar væru að flýja. En hann var óhræddur og vissi að þar voru engir hestar, en aðeins: Lamas, en þeir gátu ekki verið nógu marg- ir til að gjöra slíkan hávaða. Hann vissi, að Guð var með honum svo það var ekkert að óttast. Seint um nóttina kom hann í næsta þorp og fór á heimilið þar sem hon-

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.