Stjarnan - 01.05.1954, Qupperneq 1
STJARNAN
MAÍ, 1954 LUNDAR, MANITOBA
Alheims starf Sjöunda dags Aðventista
Sjöunda dags Aðventistar hafa mikinn
áhuga fyrir trúboðsstarfi. „Farið út um
allan heim og prédikið gleðiboðskapinn
allri skepnu“, bauð Jesús lærisveinum sín-
um, og þeir hlýða þeirri skipun.
Þeir eru sannfærðir um, að endurkoma
Krists er í nánd, en áður en hann kemur
verður að flytja öllum þjóðum fagnaðar
erindið.
Félagsskapur Sjöunda dags Aðventista
var stofnaður árið 1863 með 3,500 með-
limum. í lok ársins 1951 var meðlimatalan
803,720. Guð hefir haldið hendi sinni yfir
starfi sínu, sem nú er útbreitt um allan
heim. Þeir sendu út fyrsta trúboða sinn
árið 1874. En í síðastliðin 5 ár hafa þeir
sent út 1,263 trúboða. Áform þeirra er að
flytja gleðiboðskapinn til allra þjóða,
tungumála og fólks. í lok ársins 1951 höfðu
þeir bækur og blöð prentuð á 197 tungu-
málum, auk þess prédika þeir munnlega
á 519 tungumálum, svo þeir hafa starf á
716 tungumálum.
Fagnaðar erindi Krists er það, sem
heimurinn þarfnast framar öllu öðru, því
„það er kraftur Guðs til sáluhjálpar hverj-
um þeim sem trúir“. Reynsla liðinna ára
hefir sannfært söfnuðina um að trúboðs-
starf borgar sig. Þeir sem áður sátu í
myrkrinu fagna nú í því lífsins ljósi, sem
fagnaðar erindið hefir fært þeim. Þeir
sem áður voru þrælar vondrar venju, hjá-
trúar og hleypidóma, hafa nú öðlast frelsi
Guðs barna. Þar sem áður bjuggu mann-
ætur, þar eru nú kirkjur kristinna safnaða,
sem hafa meðtekið Jesúm fyrir frelsara
sinn. Einungis almættiskraftur Guðs í
fagnaðarerindinu getur ummyndað mann-
ætur og djöfladýrkendur svo þeir verði
sannkristnir menn og konur.
Fyrir framan mig liggur bréf frá Nýju
Guineu, sem segir: „Fagnaðar erindið ryð-
ur sér til rúms í mannætulandinu Ramu
á miðbiki Nýju Guineu. Hundruð manna
taka skírn. Leikmenn prédika til að mæta
þörfum þessa spilta en skynsama þjóð-
flokks“.
Það kostar um 20 dollara fyrir hverja
mínútu að halda uppi starfinu út um
heiminn. Vér metum mikils rausnarleg til-
lög og gjafir frá nágrönnum og vinum,
sem leggja fram fé í viðbót við tíund og
fórnir, sem söfnuðir vorir leggja fram.
Það er dásamlegt, hve vel gengur með
starfið fyrir hina holdsveiku í Afríku, og
eins með líknarstarfið í Brazilíu, þar sem
trúboðsskipin ferðast fram og aftur um
fljótin og flytja fólkinu bæði líkamlega og
andlega lækningu. Söfnuðirnir horfa með
gleði og eftirvæntingu fram til þess tíma,
þegar starfinu er lokið og Jesús kemur til
að taka heim í sitt eilífa dýrðar ríki alla
þá, sem hér hafa kannast við hann og
þjónað honum.
—W. B. OCHS
•----------☆------------
Varanlegur friður
Er friður í heiminum mögulegur? Get-
um vér notið hans á vorum dögum? Milj-
ónir manna leggja fram slíkar spurningar.
Leiðtogar þjóðanna gjöra alvarlegar til-
raunir til að stofna frið og halda honum
við, en það er erfitt viðfangsefni.
Áður en Jesús lauk starfi sínu á jörð-
inni, kallaði hann saman lærisveina sína
og útskýrði enn einu sinni fyrir þeim
grundvallar atriði ríkis síns. Hans var ríki
friðarins og sá friður yrði ekki stofnsettur
með stríðsvopnum. Hann lofaði að senda
lærisveinum sínum heilagan anda og end-
aði með þessum orðum: „Frið læt ég eftir
hjá yður, minn frið gef ég yður, ekki gef
ég eins og heimurinn gefur. Hjarta yðar