Stjarnan - 01.05.1954, Page 2

Stjarnan - 01.05.1954, Page 2
34 STJARNAN skelfist ekki né hræðist“. Jóh. 14:27. Friður hans er gjöf. Vér þurfum ekki að berjast til að öðlast hann. Jesús veitir sinn frið hverjum þeim, sem gefur Guðs heilaga anda full umráð yfir lífi sínu. Þegar syndin kom inn í heiminn, þá hvarf friðurinn, maðurinn varð hræddur við skapara sinn. Eftir því, sem mann- kyninu fjölgaði jókst syndin, þangað til „Jörðin er full af glæpaverkum þeirra“, sagði Guð við Nóa, er hann bauð honum að smíða örkina. Manndráp og þjáningar fóru í vöxt, jafnvel skepnurnar breyttust að eðli og urðu grimmar. Þar sem alt hafði áður verið friður voru nú blóðsúthellingar og eyðilegging. Vonin um frið hefir dofnað með tímanum. En það verður breyting á þessu. Varan- legur friður mun komast á aftur. Sonur Guðs yfirgaf hásæti föðursins til þess að fórna sjálfum sér fyrir synd mannsins, til þess friður gæti aftúr orðið hlutskifti manna. Höfundur og viðhaldari alheims- ins íklæddist mannlegu holdi til þess hann með dauða sínum gæti afplánað synd mannsins og endurreist í heiminum frið og fögnuð Eden aldingarðs. Já, hann lét líf sitt, en hann reis upp aftur, og er nú á himnum til að tala máli voru. Innan skamms kemur hann aftur og tekur til sín þá, sem hér hafa trúað á hann og fylgt honum. Spámenn Gamla Testamentisins litu í anda fram til þess tíma, er Jesús mundi stofna sitt eilífa friðar ríki. Þeir undruðust yfir hvernig hinn almáttugi gæti liðið slík glæpaverk, sem áttu sér stað. Guð sá alt, sem fram fór og hann gaf mönnunum full- vissu um, að sá dagur kæmi að synd og syndarar yrði alt eyðilagt, og að „jörðin mun verða full af þekking á dýrð Drottins eins og djúp sjávarins er vötnum hulið“. Þá mun þjáning, sorg og dauði ekki verða framar til. Upphafsmaður syndarinnar, satan, verður algjörlega afmáður. Vand- ræðin milli þjóðanna munu hverfa fyrir dýrð og fegurð frelsara vors, sem mun koma í veldi og dýrð mikilli. Napóleon fór vilt, er hann sagði, að Guð væri þeim megin, sem mestur her- búnaður væri. Það reyndist ósatt þá, og það er ranghermt enn í dag. Guð er með þeim, sem kjósa að láta leiðast af hans heilaga anda. Guð kallaði Daníel spámann til að opinbera framtíðar áform sitt fyrir 'Nebúkanesar, konungi Babýlonar. Eftir að hann hafði í fáum orðum gefið aðaldrætt- ina af áformi Guðs með ríki heimsins í framtíðinni, þá bætti hann við: „Þeir (stjórnendur ríkjanna) munu með kvon- föngum saman blandast, og þó ekki sam- þýðast hvorir öðrum, eins og járnið sem lagar sig ekki við leirinn". Dan. 2:43. Ein- kennileg orð, en hve sönn þau eru. Eins vissulega og það er ómögulegt að sjóða saman járn og leir, eins ómögulegt er að sameina þær þjóðir, sem nú eru uppi undir nokkra mannlega stjórn. Hversu göfugar sem tilraunir manna eru, þá er von heimsins ekki í því inni- falin hvað stjórnfræðingar, hershöfðingjar eða löggjafar geta framkvæmt, heldur þetta: „Á dögum þessara konunga mun Guð himnanna hefja ríki, sem aldrei skal á grunn ganga, og það ríki skal engri ann- ari þjóð í hendur fengið verða“. Dan. 2:44. Þetta verður ekki sambland ríkja, sem uppi eru í dag. Það verður ekki stofnað með stríði og herferðum jarðneskra manna, ekki gegn um uppeldisfræði. Sameining mismunandi trúflokka mun ekki grund- valla það ríki. Það ríki verður stofnað þegar Jesús kemur, og allar hersveitir englanna með honum, þá ferst sá heimur sem nú er. Sjá Opinb. 21. kap. og Jes. 65. kapítula. Allir borgarar þess ríkis verða þar af því þeir hafa kosið að meðtaka Jesús sem frelsara sinn og herra. Friður Guðs fyllir hjörtu þeirra hér og nú, náð og kraftur Guðs hefir gefið þeim sigur yfir synd. Þar verða hinir frelsuðu frá öllum tímum og kynslóðum, þeir hafa þvegið skikkjur sínar og hvít- fágað þær í blóði lambsins. Þeir verða með Guði feilíflega í hans dýrðar ríki, þar sem harmur kvein eða mæða verður aldrei framar til. Þetta er Guðs ríki. íbúar þess eru ódauðlegir og eilífur friður ríkir þar. Lifandi trú á Jesú frelsandi kraft hjá þeim, sem hafa gefið honum hjarta sitt, veitir þeim hér og nú ævarandi frið þrátt fyrir alskonar óróleika hjá þjóðum og ein- staklingum. Þetta er loforðið, sem Jesús gaf: „Frið læt ég eftir hjá yður, minn frið gef ég yður“. Vonin um Guðs komandi dýrðar ríki stjórnar áformum og fram-

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.