Stjarnan - 01.05.1954, Blaðsíða 3

Stjarnan - 01.05.1954, Blaðsíða 3
STJARNAN 35 kvæmdum þeirra, sem nú hafa gefið Guði hjarta sitt. Þetta er fagnaðar boðskapur friðarins, sem Jesús lætur flytja öllum þjóðum heimsins áður en endirinn kemur. Þetta litla blað segir frá í stuttu máli hvað fá- einir menn og konur gjöra til að útbreiða boðskap friðarins. Þeir, sem gefa til þessa starfs, eru hlut- hafar í hinu víðtækasta og veglegasta starfi heimsins, því fyrirtæki sem borgar sig bezt, það er að undirbúa menn og konur, drengi og stúlkur til að verða borgarar þessa dýrðlega friðar ríkis, þar sem synd og sorg verður aldrei til, þar sem Guð sjálfur er konungurinn. Ef þú vilt getur þú tekið þátt í starfinu, og einnig átt heima í hinu dýrðlega friðar ríki. —R. A. ANDERSON ■---------------------- Hermaður í fangelsi hughreystir félaga sína með Guðs orði Ég hef nýlega talað við hermann, sem látinn var laus úr fangabúðum og nú var kominn heim. Félagar hans kölluðu hann ,„prestinn“, hann hafði fleiri áheyrendur heldur en nokkur annar í fangabúðum Norður- Kóreu. Eftirlitsmennirnir stóðu forviða og horfðu á. Þeir, sem útlögðu fyrir þá, sem ekki skildu málið, undruðust yfir hvernig þessu var varið. .Hvaða kraftur var í þessari bók, sem dró svo marga að sér? En þetta átti sér stað. Robert A. Lee, rauðhærður drengur frá Alabama, sem kveðst vera frændi Roberts Lee hershöfð- ingja, er kominn heim og sagði sögu sína. Lee hafði verið fangi nær því 29 mán- uði. Herdeild hans hafði verið aðskihn frá aðalhernum í fjóra daga og var um- kringd óvinunum. Þeir voru að reyna að ryðja sér braut og komast til félaga sinna. Lee var mikið særður á handlegg og tærn- ar voru frosnar, svo 8 af þeim voru sagaðar af með ryðgaðri sög. Til þess að geta prédikað þurfa menn að hafa Biblíu. En Lee hafði enga þegar hann kom í dauðadalinn. í tvo daga og tvær nætur voru fangarnir neyddir til að vaða í gegn um djúpan snjó. Meðan hann beið í húsi einu í Kóreu, ásamt fjölda annara, sá hann mennina deyja alt í kring um sig og hann langaði svo mikið að tala huggunarorð til þeirra. Hann mintist á 19 ára gamlan dreng frá Indiana, sem lagði höfuð sitt á kné hans og talaði um grænu slétturnar heima og foreldra sína og litlu systir. Svo leit hann upp á Lee og hvíslaði: „Getur þú ekki lesið eitthvað fyrir mig?“ En Lee hafði enga bók. Hann las upp 23. Davíðs sálm utanbókar fyrir þennan dreng. Þegar því var lokið brosti drengurinn, lok- aði augunum og sofnaði hinum síðasta svefni. Nokkru seinna bauðst ungur hermaður til að láta Lee hafa Biblíuna sína fyrir dá- lítið af brauðskamti hans. Kaupin voru gjörð. Til að byrja með notaði Lee tækifærið, þegar fangaverðirnir sofnuðu, að safna saman þremur eða fjórum á daglegan Biblíulestur. Opinberar samkomur voru bannaðar. Mr. Lee kvaðst viss um, að það var uppörfunin frá þessum daglegu Biblíu- lestrum, sem veitti mönnum í dauðadaln- um vilja og hugrekki til að lifa. Þeir vöktu nýtt líf og nýja trú. Hugleiðing Guðs orðs veitti mönnum hugrekki til að taka því sem að höndum bar. ^eir trúðu því, að Guð mundi leiða þá út. Það var þessi trú, sem styrkti þá, sagði hann mér, svo þeir létu ekki hugfallast, oft þegar það hefði verið miklu léttara að gefast upp. En kær- leikur Guðs knúði þá. Á páskunum og þakklætis hátíðinni, þá voru margir sem óskuðu eftir að guðs- þjónusta væri haldin. Leyfi var fengið til þess, en með því skilyrði, að ekkert væri talað um himnaríki eða helvíti, eða um endurkomu Krists. En kraftur Guðs yfir ræðumanninum var svo áhrifamikill, að hann varð að prédika eins og Guðs andi blés honum í brjóst. Ekkert var sett út á það og smám saman var prédikað með fullu frjálsræði á hverri viku. Prédikar- inn flutti orðið. Þetta fréttist þannig, að presturinn Evans frá áttundu herdeildinni sagði Powell, prestinum í læknadeildinni, að stríðsfangi sem væri prestur hefði fengið frelsi. Hann sagðist hafa spurt, hvort hann hefði hlustað á nokkrar guðsþjónustur í fangabúðunum. Ungi maðurinn kvaðst

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.