Stjarnan - 01.05.1954, Síða 4
36
STJARNAN
bæði hafa hlustað á og haldið guðsþjón-
ustur, og bætti því við, að hann væri Sjö-
unda dags Aðventisti eins og Powell.
Nýlega var tjaldbúðarsamkoma haldin
í Meridian, Alabama, safnaðarsystkyni
Lees höfðu þar þá ánægju að bjóða þennan
trúbróður sinn velkominn. Þegar Mr. og
Mrs. Lee fóru upp á ræðupallinn í stóra
tjaldinu, þá var ekkert lófaklapp né annar
hávaði, sem heilsaði hinum afturkomna
hermanni. Söfnuðurinn stóð með hneigðu
höfðu meðan R. R. Figuhr flutti þakklætis-
bæn til Guðs. Svo var sungið „Vegsamið
Guð, sem veitir allar góðar gjafir“. Svo
gekk „presturinn“ fram á ræðupallinn og
sagði:
„Ég meðtók fagnaðar erindið og var
skírður aðeins þrem mánuðum áður en ég
fór héðan til Kóreu. Þér sjáið, bræður
mínir, að ég er ekki prédikari. Ég hef verið
hermaður í meir en 10 ár. Ég er eins og
barn í trúnni. Ég þakka Guði fyrir hvernig
hann hefir blessað mig; það sem ég hef
getað gjört er aðeins það, sem hann hefir
gjört fyrir mig. Ég þakka yður fyrir bænir
yðar. Ég veit, að Guð getur frelsað til hins
ýtrasta alla, sem koma til hans í trú“.
—W. H. BERGHERM
*
-----------*-----------
Eilíft líf stendur þér til boða
„Þekking á Guði, sem sýnir sig í hlýðni
við boðorð hans, er eilíft líf.“ Jóh. 17:3. og
1 Jóh. 2:3,—4.
Nú skulum vér rifja upp fjórða boð-
orðið: „Minstu þess að halda hvíldardag-
inn heilagan. Sex daga skaltu erfiða og
vinna alt þitt verk, en sjöundi dagurinn er
hvíldardagur helgaður Drotni Guði þínum,
þá skalt þú ekkert verk vinna, og ekki
sonur þinn eða dóttir þín, þræll þinn eða
ambátt þín, eða skepnur þínar, eða nokkur
útlendingur sem hjá þér er innan borgar-
hliða þinna, því að á sex dögum gjörði
Drottinn himin, jörð, hafið og hafið og
alt sem í þeim er og hvíldist sjöunda dag-
inn, fyrir því blessaði Drottinn hvíldar-
daginn og helgaði hann“.
Hér er ákveðin skipun um að halda
hvíldardaginn heilagan, og því er eins
skýrt tekið fram, að sjöundi dagurinn er
sá hvíldardagur, sem oss ber að halda. Það
er alveg eins ákveðin skipun til vor að
vinna hina sex daga vikunnar.
Jesús reis upp snemma fyrsta dag vik-
unnar, og það er alment viðurkent að hann
reis upp á sunnudag, svo út frá því er ekki
hægt að villast á hver sé sjöundi dagurinn,
það er sá dagur, sem vér nefnum laugar-
dag. Sá dagur ætti að vera haldinn heil-
agur hjá öllum, sem játa kristna trú.
Jesús sagði við ríka unglinginn: „Ef
þú vilt innganga til lífsins, þá hald boð-
orðin“. Mat. 18:19. í Matt. 5:18., segir
hann: „Þangað til himin og jörð líða undir
lok, mun ekki einn smástafur eða einn
stafkrókur lögmálsins undir lok líða, unz
alt er komið fram“.
Jesús sagði fyrir • eyðileggingu Jerú-
salemsborgar og ráðlagði lærisveinum sín-
um hvað þeir ættu að gjöra til að forða
lífi sínu. Hann sagði við þá: „Biðjið að
flótti yðar verði ekki um vetur né á hvíld-
ardegi“.
Páll postuli sagði: „Umskurnin er
ekkert og yfirhúðin ekkert, heldur það
að varðveita boðorð Guðs“. 1 Kor. 7:19.
Þegar menn eru kallaðir til að mæta
fyrir rétti, þá eru þeir dæmdir samkvæmt
lögum landsins. „Allir hljótum vér að
birtast fyrir Krists dómstóli“, þá verður
Guðs lögmál mælikvarðinn, sem dæmt
verður eftir. Allir hafa syndgað og brotið
Guðs boðorð, en Jesús kom til að frelsa
sitt fólk frá þess syndum, frelsa sitt fólk frá
yfirtroðslu Guðs boðorða. Þeir, sem hafa
meðtekið frelsun hans frá synd fyrir trú
■ og hlýðni við Guðs orð, sá sem það hefir
gjört „kemur ekki til dóms, heldur hefir
hann stigið yfir frá dauðanum til lífsins“.
Sá, þar á móti, sem ekki vill þiggja
frelsun frá synd heldur kýs, eða ræður
það af, að halda áfram að lifa í yfirtroðslu
Guðs boðorða, hann verður að taka af-
leiðingunum. „Laun syndarinnar er dauði“.
„Guð vill ekki dauða syndarans heldur
að hann snúi sér og lifi“.
Vinir mínir, gefið Guði hjörtu yðar,
látið í öllu leiðast af hans heilaga orði og
anda, svo þér getið með fögnuði litið fram
til þess tíma, þegar Jesús kemur til að
„gefa sérhverjum eftir því sem hans verk
verða“.
—S. J.