Stjarnan - 01.09.1954, Page 1
STJARNAN
SEPTEMBER, 1954 LUNDAR, MANITOBA
Áframhald íífs, og hiýðni
Þeir einir munu öðlast áframhaldandi
og eilíft líf, sem fyrir trú á Jesúm og í
krafti hans lifa í samræmi við Guðs heil-
aga vilja, eins og hann er framsettur í
lögmáli Guðs og lífi og kenningum Krists,
Guðs sonar. „Sá sem gjörir Guðs vilja
varir að eilífu“. 1. Jóh. 2.T7.
Þetta leiðir oss til að athuga lögmál
Guðs og afstöðu þess gagnvart fagnaðar-
erindi Krists. Það sem Biblían segir um
þetta er alvarlega umhugsunarvert og
áríðandi.
Lögmál Guðs er sá hluti opinberunar
hans, sem hann sjálfur talaði til fólksins
frá Sínaí-fjalli, og skrifaði með sinni eigin
hendi á tvær steintöflur. Þetta lögmál var
sanngjarnt, réttlátt og gott. (Nehem. 9:13.).
Það er fullkomið. Jesús kom ekki til að
afnema lögmálið. (Matt. 5:17.). Það er
frelsisins lögmál. (Jak. 2:12.). Vér stað-
festum það með trúnni. (Róm. 3:31.). Lög-
málið er andlegt, heilagt, réttlátt og gott.
(Róm. 7:12.—14.). Það nær til allra manna
og felur í sér allar skyldur þeirra. (Préd.
12:13.). Það er hið konunglega lögmál.
(Jak. 2:8.). Hlýðni við það er skilyrði fyrir
eilífu lífi. (Op. 22:14.). Það lögmál verður
lagt til grundvallar í dóminum. (Jak. 2:12.).
Getur lömálið frelsað manninn? Svarið
er ákveðið nei. Getur syndarinn áunnið
sér sáluhjálp með hlýðni við lögmálið?
Nei og aftur nei. Sáluhjálp fæst aðeins
gegn um fagnaðarerindið fyrir trú á Krist.
Sannkristinn maður heldur ekki Guðs
boðorð til þess að öðlast sáluhjálp. Hann
heldur þau og hlýðir þeim af því að hann
hefir öðlast sáluhjálp fyrir trúna á Krist.
Hlýðni er ekki meðal til sáluhjálpar held-
ur ávöxtur frelsandi trúar. Líf og andi
Krists sem veitist hinum trúaða leiðir
hann til að lifa í samræmi við Guðs vilja
og í hlýðni við hans heilaga lögmál.
Vér þurfum að rannsaka hvað gleði-
boðskapurinn er og hvað honum er ætlað
að framkvæma í heiminum.
„Fagnaðarboðskapurinn er kraftur
Guðs til sáluhjálpar". Róm. 1:16. Kraftur,
guðdómlegur kraftur kom inn í heiminn.
Hann nefnist fagnaðarboðskapur. Tilgang-
ur hans er sáluhjálp manna. Og hann er
vel fær um að framkvæma hlutverk sitt.
Þessi sáluhjálp er frelsun frá synd.
(Matt. 1:21.). Fagnaðarerindið er gefið til
að frelsa mann frá synd og „Synd er yfir-
troðsla lögmálsins“. 1. Jóh. 3:4.
Eftir þessu er fagnaðarerindið kraftur
Guðs til að frelsa menn frá hegningu og
vernda þá frá að syndga framvegis, leiða
þá til að lifa í hlýðni við Guðs boðorð. Þeir
sem kenna að lögmálið sé úr gildi numið,
rangsnúa fagnaðarerindinu og afneita því.
Róm. 4:15.
Svo ef ekkert lögmál er, þá er engin
synd, þá er engin þörf fyrir fagnaðar-
boðskapinn.
„Allir hafa syndgað og skortir Guðs
dýrð“. Róm. 3:23. Fagnaðarerindið er
nauðsynlegt af því að allir hafa syndgað.
Þess vegna þurfa allir fagnaðarerindið.
Þeir þurfa Jesúm til að fyrirgefa drýgðar
syndir og kraft hans til að sigra synd og
freistingar framvegis.
Athugið þetta vel. Kraftur Guðs til að
halda boðorð hans fæst ekki frá lögmál-
inu. í lögmálinu er engin frelsunarvon
fyrir syndarann. Það getur ekki íyrirgefið
heldur fyrirdæmt. Það veitir ekki líf held-
ur dæmir til dauða. Það er Jesús sem er
lífgjafinn og frelsarinn. Aðeins í gleði-
boðskap hans er fyrirgefning, frelsi og
lausn, ekki frá því að hlýða, heldur frá
fordæmingunni, ekki frá því að halda boð-
orðin, heldur frá því að brjóta þau.
Svo þegar vér komum til Krists og