Stjarnan - 01.09.1954, Page 2

Stjarnan - 01.09.1954, Page 2
66 STJARNAN öðlumst fyrirgefning fyrir trú á hann og gleðiboðskap hans, þá erum vér frelsaðir. Syndir vorar eru fyrirgefnar og dauða- dóminum, sem yfir oss hvíldi. er af oss létt. Þá reynist það satt að vera að syndin (yfirtroðsla Guðs boðorða) hefir ekki lengur vald yfir oss, því vér erum ekki undir lögmáli (dauðadómi lögmálsins) heldur undir náð.“ Róm. 6:14. Þegar vér höfum meðtekið Krist og fagnaðarerindi hans, þá höfum vér stigið yfir frá dauðanum til lífsins, frá þrældómi til frelsis. Þetta frelsi er ekki leyfi til að brjóta Guðs boðorð, heldur frelsun frá bölvun lögmálsins. Það er frelsi í Kristi, sem veitir náð hans og kraft til að halda öll Guðs boðorð. Sá, sem brýtur lögmálið er undir lög- máli en ekki undir náð. Hann er undir fordæmingu lömálsins. Sá maður er undir náð, sem heldur lögmálið. Þegar hann brýtur lögmálið er hann afur kominn undir lögmálið. Guðs orð setur þetta skýrt fram: „Gjörum vér þá lögmálið að engu með trúnni? Fjarri fer því heldur stað- festum vér lögmálið“. Róm. 3:31. í Biblíunni eru spádómar, löggjöf, ljóð og saga þjóðanna, sérstaklega Gyðinga- þjóðarinnar. En í henni eru líka margar dæmisögur og líkingar, sem skýra fyrir mönnum sambandið milli lögmálsins og fagnaðarerindisins. Hér er ein þeirra: „En verið gjörendur orðsins en eigi að- eins heyrendur, svíkjandi sjálfa yður. Því að ef einhver er heyrandi orðsins en ekki gjörandi, þá er hann líkur manni sem skoðar andlitsskapnað sinn í spegli, því að hann skoðar sjálfan sig, fer burt og gleym- ir jafnskjótt hvernig hann var. En sá, sem skygnist inn í hið fullkomna lögmál frels- isins og heldur sér við það, og er ekki ofð- inn gleyminn heyrandi heldur gjörandi verksins, hann mun sæll verða af fram- kvæmdum sínum“. Jak. 1:22:—25. Hér er lögmálinu líkt við spegil. Vér notum hann til að vita hvernig vér lítum út. Ef andlit vort er óhreint þá sjáum vér það í speglinum. Hann segir sannleikann og sýnir að vér þurfum vatn og sápu, til að verða hreinir. Biblían líkir speglinum við lögmál Guðs, það bendir á synd í fari voru, en til að verða hreinir verðum vér að leita Krists. Vér getum ekki notað spegilinn til að þvo oss með, hann er ekki til þess ætlaður, heldur aðeins til að sýna oss að vér þurfum hreinsunar við. Það væri gagnslaust og heimskulegt að brjóta spegilinn, það mundi ekki gjöra andlitið hreint. Spegillinn getur alls ekki breytt útliti voru, heldur aðeins bent á hvernig vér lítum út, svo vér vitum að vér þurfum vatn og sápu til að þvo okkur. Þannig er því varið með lögmálið og fagnaðarerindið. Lögmálið bendir á hvað er synd, en fagnaðarerindið býður oss frelsun frá henni. Lögmálið bendir á þörf vora, en fagnaðarerindið bætir úr henni. Það er fullkomin samvinna. Vér þurfum hvorttveggja. Guð gaf bæði lögmálið og fagnaðarerindið til þess að syndugur maður gæti öðlast frelsun frá synd. „Sá, sem segir, ég þekki hann en heldur ekki boðorð hans, er lygari og sannleikur- inn er ekki í honum“. 1. Jóh. 2:4. „Af því þekkjum vér að vér elsk'um Guðs börn, þegar vér elskum Guð og breytum eftir hans boðorðum, því að í þessu birtist elskan til Guðs að vér höld- um hans boðorð og Hans boðorð eru ekki þung“. 1. Jóh. 5:2.—3. Langlífi og rósemi Vér höfum þegar bent á hvernig Guð hefir trygt oss áframhaldandi tilveru og eilíft líf fyrir Jesúm Krist og fagnaðar- erindi hans, ef vér aðeins viljum meðtaka Guðs framboðnu náð og laga líf vort eftir hans heilaga lögmáli. Vér ættum einnig að leggja áherzlu á hver áhrifin verða fyrir vort daglega líf, þegar vér meðtökum Jesúm og 1 honum og fyrir hann óendanlegt eilíft líf. Rósemi, hvíld og öryggi öðlumst vér þegar vér gefum oss Guði á vald, til að gjöra hans vilja ætíð og í öllu. Það er ekki nóg að viia að Guð hefir gefið manninum kost á eilífu lífi, menn verða að meðtaka gjöf hans og lifa í fúsri, fullkominni hlýðni við vilja hans. Þegar vér gjörum þetta þá öðlumst vér slíkan sálarfrið og öryggi sem aðeins getur orðið hlutskipti þeirra, sem trúa á Guð og lifa 1 fullkomnu samræmi við vilja hans.

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.