Stjarnan - 01.09.1954, Page 3
STJARNAN
67
Til að minna oss á þetta og láta oss
stöðugt finna til hins lífgefandi, skapandi
kraftar sem frelsar frá synd og gjörir oss
að nýjum mönnum svo vér göngum á hans
vegi, gjörum hans vilja, höldum hans boð-
orð, þá hefir hann gefið oss eilíft, óum-
breytanlegt minnismerki til blessunar og
hughreystingar fyrir sína útvöldu, Hvíld-
ardag Drottins.
Sumum finst það einkennilegt og ó-
skiljanlegt að Sjöunda dags Aðventistar,
sem trúa á Jesúm og friðþægingu hans
sem aðalatriði fagnaðarerindisins, skuli
halda heilagan sjöunda dag vikunnar frá
sólarlagi á föstudögum til sólarlags á
laugardögum.
Þeir álíta þennan tíma heilagan fyrir
blessun Guðs og - nálægð hans, svo að
þessi tími á að vera notaður til Guðsþjón-
ustu, líknarverka og Biblíulesturs og
þeirrar hvíldar og endurnæringar, sem
fæst einungis í samfélagi við Guð.
Ástæðan fyrir þessu er, að Guð ákvað
að þessi tími sérstaklega tilheyrði honum
og tilbeiðslu hans. Hann blessaði og helg-
aði þennan dag svo hann yrði eilíft minn-
ingarmerki fyrir allar þjóðir um hans
skapandi og frelsandi kraft.
Guð skapaði heiminn á sex dögum, svo
lauk hann því starfi og hvíldist sjöunda
daginn, og blessaði og helgaði þann dag
fyrir allar komandi kynslóðir. Þetta var
meðan maðurinn var hreinn og ósaurg-
aður af synd.
En maðurinn féll í synd og varð þræll
satans og syndarinnar. Táknmynd upp á
þetta var þrældómur ísraelsbarna á
Egyptalandi.
Guð notaði aftur sinn skapandi kraft
tii að leiða sitt fólk út af Egyptalandi.
Hann gjörði hvert kraftaverkið eftir ann-
að bæði á Rauðahafinu, í eyðimörkinni og
við inngöngu þeirra inn í fyrirheitna
landið.
Hann leiddi athygli þeirra aftur að
hvíldardeginum, sem þeir áttu að halda
heilagan bæði til minningar um sköpunar-
verkið og kraft Guðs til að frelsa þá undan
valdi óvinanna, er hann leiddi þá út úr.
þrælahúsinu.
Guð framkvæmir hinn sama skapandi
kraft gegn um fagnaðarerindið, er hann
ummyndar spilta synduga menn, leiðir þá
frá dauðanum til lífsins, veitir þeim frið
og frelsun frá yfirvofandi dauðadómi. Til
endurminningar um þennan dýrðlega
skapandi kraft, sem endurreisir glatað
mannkyn, hefir hann aftur leitt athygli
manna að helgihaldi hans heilaga hvíldar-
dags, svo þeir geti minst almættis hans
og kærleika, er hann ummyndar og frels-
ar þá, sem vilja þiggja frelsi, svo þeir
geti hvílst frá verkum sínum og notið
hans fullkomna frelsis.
Á þennan hátt verður hvíldardagurinn
innsigii lifandi Guðs, tákn hans og minn-
ingarmerki um sköpun, frelsun og helgun
mannsins. Hann hefir verið og verður það
alt í gegn um aldirnar.
Þetta minnismerki um skapandi kraft
Guðs, hvort sem hann kemur fram í sköp-
unarverkinu eða í endurlausn mannsins, er
hvíldardagur fjórða boðorðsins.
Helgihald sjöunda dagsins, sem skipað
er fyrir í fjórða boðorðinu var fyrir alla
menn á öllum öldum í sögu mannkynsins,
og jafnvel í komandi heimi verður hann
haldinn. (Jes. 66:22.—23.). Hann er eilift
minnismerki um hinn skapandi og frels-
andi kraft Guðs, sem sýnir sig í alheimin-
um og í lífi barna hans, þau hafa með-
tekið þennan kraft og fyrir hann öðlast
eilíft líf.
Hvíldardagurinn var gefinn, ekki fyrir
stutt tímabil, heldur sem eilíft minnis-
merki. Sjöundi dagurinn verður eilíílega
hinn blessaði, heigaði hvíldardagur Drott-
ins.
Verk hans handa eru sannleiki og rétt-
indi, réttsýn eru öll hans boðorð, þau eru
óbifanleg um aldur og eilífð, gjörð með
sannleika og einlægni.
Jafnvel á hinni nýju jörð munu hinir
endurleystu frá öllum tímum og kyn-
slóðum halda Guðs blessaða heilaga
hvíidardag.
„Því eins og hinn nýi himinn og hin
nýja jörð, sem ég skapa, munu standa
stöðug fyrir mínu augliti,“ segir Drottinn,
„eins mun afsprengi yðar og nafn standa
stöðugt, og á mánuði hverjum, tungl-
komudaginn, og á viku hverri, hvíldar-
daginn, skal alt hold koma til þess að falla
fram fyrir mér, segir Drottinn“. Jes.
66:22.-23.
Það er Jesús sem frelsar og helgar þá,