Stjarnan - 01.09.1954, Qupperneq 5

Stjarnan - 01.09.1954, Qupperneq 5
STJARNAN 69 verða að lokum. Tilgangurinn með komu Krists í heiminn var að eyðileggja hann sem hafði vald yfir dauðanum, það er djöfullinn. Heb. 2:14. „Til þess birtist Guðs sonur, að hann niður bryti djöfulsins verk“. 1. Jóh. 3:8. Yerk djöfulsins er synd, sorg og dauði. Þetta ásamt höfundi þess verður eilíflega eyðilagt. Hvergi í Biblíunni er vikið að því, að stríðið milli Krists og satans endi öðru- vísi heldur en með algjörðri eyðileggingu þessa óvinar Guðs og manna. En lærisveinum Krists verður öllum saman safnað undir merki hans. „Þetta var ásetningur hans, sem hann hafði með sjálfum sér ákveðið að framkvæma, er fylling tímans kæmi, að hann ætlaði að safna öllu því, sem er á himnum og því sem er á jörðu undir eitt höfuð í Kristi“. Efes. 1:9,—10. Páll postuli lýsir því þegar hið ófull- komna tekur enda, en það fullkomna birtist. Þegar hinir réttlátu verða reistir upp og ummyndaðir eftir Jesú dýrðar- mynd. „Síðan kemur endirinn“, segir hann, „er hann selur ríkið Guði Föðurnum í hendur, er hann hefir að engu gjört, sér- hverja tign, sérhvert veldi og kraft. Því honum ber að ríkja, unz hann leggur alla féndurnar undir fætur hans. Dauðinn er síðasti óvinurinn, sem verður að engu gjörður“. 1. Kor. 15:24.—26. Pétur postuli lýsir líka komu Drottins og eyðilegging óguðlegra í eldhafinu, þegar „himnarnir sundurleysast í eldi og frumefnin bráðna í brennandi hita“. En svo bætir hann við: „En vér væntum eftir fyrirheiti hans nýs himins og nýrrar jarðar þar sem réttlæti býr“. 2. Pét. 3:12.-13. í síðustu bók Biblíunnar er lýst enda- lokum óguðlegra þar sem alt hið illa er barist hefir móti Kristi og Guði verður algjörlega eyðilagt, en réttlæti, friður og hamingja mun fylla alla tilveruna, allan alheiminn. Þar er oss sýndur dómarinn á hinu mikla hvíta hásæti, fyrir augliti hans hverfur himin og jörð. Hinir dauðu, smáir og stórir standa frammi fyrir hásætinu, bókunum er lokið upp, og hver og einn er dæmdur eftir verkum sínum. Önnur bók er opnuð. Það er lífsins bók. Hver sem ekki hefir nafn sitt ritað í lífsins bók, honum er kastað í eldhafið sem fyrirbúið er djöflinum og englum hans. Þetia er hinn annar dauði. Frá honum er engin aftur- koma engin upprisa. Dauðanum og helju er líka kastað í eldhafið. Þannig endar saga syndarinnar. Eftir það byrjar og viðhelzt eilífur friður. Jóhannesi postula var leyft að líta inn í eilífðina, og hann hefir lyft fortjaldinu, svo vér getum séð það með 'honum. Þar sjáum vér dýrð hins eilífa ríkis. Vér sjáum nýjan himin og nýja jörð. „Því hinn fyrri himin og hin fyrri jörð var horfin“. Vér sjáum hina nýju Jerúsalem koma niður af himni frá Guði, með veggina úr jaspis steini, hliðin úr skínandi perlum, göturn- ar úr gulli og fljót lífsvatnsins renna frá hásæti Guðs og lambsins. Beggja vegna fljótsins er lífsins tré, sem einu sinni var í Eden aldingarði, það ber ávöxt sinn á hverjum mánuði. Þar er enginn engill með brugðnu sverði til að verja mönnum aðgang að lífsins tré, því allir sem þangað koma hafa rétt til að neyta ávaxtanna. Hliðum borgarinnar verður aldrei lok- að. Þar er aldrei nótt. Vér sjáum þar hina útvöldu endurleystu íklædda hvítum skrúða, með kórónur á höfði og hörpur í höndum sér, til að syngja og spila og veg- sama Guð og frelsara sinn. Bölvun verður ekki framar til. Þar verður hvorki dauði, sorg né kvein. „Því hið fyrra er farið“. Lambið, sem er fyrir miðju hásætinu, mun fæða þá og leiða þá til lifandi vatns- strauma, Guð mun þerra hvert tár af aug- um þeirra. Þeir munu sjá auglit hans og nafn hans mun vera á ennum þeirra. Hann verður hjá þeim eilíflega. Þar verður aldrei nótt, engin þörf á ljósi tungls né sólar, því dýrð Guðs upp- ljómar borgina og lambið er hennar Ijós. Þeir útvöldu munu ríkja eilíflega. Þetta hefir Guð opinberað oss til upp- örfunar og trúarstyrkingar, það hríiur huga vorn og fyllir oss fögnuði vonarinn- ar. En hvað verður það þá þegar vér kom- um þangað, sjáum alla dýrðina og njótum hennar, og alls þess sem Guð hefir oss fyrirhugað fyrir Jesúm Krist. „Auga hefir ekki séð né eyra heyrt hvað Guð hefir þeim fyrirbúið, sem hann

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.