Stjarnan - 01.09.1954, Page 6
70
STJARNAN
elska“. Það er mikil fegurð að sjá víða í
þessum heimi. Vér verðum hrifnir af
fögru útsýni, fegurð skóga, fossa, fjalla og'
dala, fegurð hafsins, himinhvolfsins, blóma
og blaktandi akra. Vér höfum heyrt söng-
hljóð sem virtust yfirnáttúrleg að fegurð
og styrkleika, alt þetta leiðir huga vorn til
hins himneska, svo hinn komandi heimur
sýnist færast nær. En svo dásamlegt og
yndislegt sem alt þetta getur verið, þá
kemst það ekkert í samjöfnuð við það
sem Guð hefir sínum elskuðu fyrirbúið.
Nýja jörðin verður eilífðarheimili Guðs
barna. „Þeir munu byggja hús og búa í
þeim, planta víngarða og eta ávöxtu
þeirra“. Jes. 65:21. Það er indælt að eiga
von á þessu. Alt verður svo verulegt og
áþreifanlegt. Öll þessi dýrð og fegurð er
náðargjöf Guðs fyrir Jesúm Krist.
Þegar vér skiljum alt þetta, hvernig
getum vér þá annað en kepst eftir að
þekkja Jesúm og þjóna honum með öllum
kröftum sálar og líkama. Hjörtu vor verða
hrifin af gæzku Guðs og kærleika, er
hann opnaði oss veginn til eilífs lífs fyrir
Jesúm Krist vorn Drottinn.
„Andinn og brúðurin segja: „Kom þú.
Og sá sem heyrir segi: Kom þú. Og sá
sem þyrstur er hann komi. Hver sem vill
taki ókeypis lífsvatnið“. Op. 22:17.
Þetta boð er til þín persónulega. Synd
er eina hindrunin frá því að eignast eilíft
líf. Jesús vill afmá synd þína og veita þér
réttlæti sitt, ef þú aðeins vilt játa synd
þína fyrir honum og snúa frá henni. Kom
til Jesú nú strax. Þú mátt engan tíma
missa. Maðtak fagnandi hið eilífa lífið sem
hann býður þér og svaraðu honum: „Kom
Drottinn Jesús“.
—C. B. HAYNES
------------☆------------
— ALICE —
Hér er lítil stúlka, sem hefir engan að
leika sér við, en hún er fullkomlega ham-
ingjusöm. Hún dansar, syngur og hlær að
bergmálinu frá sínum eigin málrómi. Hún
leikur sér við lömbin og týnir blóm.
Alice er svo hamingjusöm að hún gæti
ekki verið hamingjusamari þó heimili
föður hennar væri höll og hann ætti alt
landið. —X. X. X.
Hvaða dagur er hvíldardagur?
„Sjöundi dagurinn er hvíldardagur
Drottins guðs þíns“. 2 Mós. 20:10.
Hvers vegna var sjöundi dagurinn á-
kveðinn fyrir hvíldardag?
„Og Guð blessaði hinn sjöunda dag og
helgaði hann, því að á honum hvíldist Guð
af verki sínu, sem hann hafði skapað og
gjört“. 1. Mós. 2:3.
Hver hvíldist einnig sjöunda daginn?
Jesús, því hann skapaði alla hluti.
Guð hefir „í lok þessara daga til vor
talað fyrir Soninn, sem hann setti erfingja
allra hluta, og hann líka hefir gjört
heimana. fyrir“.
„í upphafi var Orðið og Orðið var hjá
Guði og Orðið var Guð .... allir hlutir
eru gjörðir fyrir það og án þess varð
ekkert til, sem til er orðið .... Og orðið
varð hold og hann bjó með oss fullur
náðar og sannleika og vér sáum hans dýrð,
dýrð sem eingetins sonar frá föður“.
Jóh. 1:1,—3. 14.
Hvað sagðist Jesús þess vegna vera?
„Og hann sagði við þá, hvíldardagurinn
varð til mannsins vegna og eigi maðurinn
vegna hvíldardagsins, svo mannsins sonur
er jafnvel herra hvíldardagsins“. Mark.
2:27.-28.
Upp á hvað er hvíldardagurinn tákn
eða merlji?
„Ég gaf þeim og hvíldardaga mína að
þeir væru sambandstákn milli mín og
þeirra, til þess að menn skyldu viður-
kennar að ég Drottinn er sá, sem helgar
þá“.
, „Haldið helga hvíldardaga mína, og séu
þeir sambandstákn milli mín og yðar, til
þess að menn viðurkenni að ég er Drott-
inn Guð yðar“. Ez. 20:12.—20.
Hvað á hvíldardagurinn altaf að vera?
„Sex daga skal verk vinna. en sjöundi
dagurinn er algjör hvíldardagur helgaður
Drotni .... fyrir því skulu ísraelsmenn
gæta hvíldardagsins, svo þeir haldi hvíld-
ardaginn heilagan frá kyni til kyns, sem
æfinlegan sáttmála“.
Hverjir eru sannir ísraelsmenn eða
Abrahams niðjar?
„Ef þér tilheyrið Kristi, þá eruð þér
niðjar Abrahams, erfingjar eftir fyrir-
heiti“. Gal. 3:29.