Stjarnan - 01.09.1954, Page 7
STJARNAN
71
Hvernig munu hinir endurleystu meta
hvíldardaginn? Þeir munu halda hann
heilagan á hinni nýju jörð.
„Því að eins og hinn nýi himin og hin
nýja jörð sem ég skapa, munu standa
stöðug fyrir mínu augliti, segir Drottinn,
eins mun afsprengi yðar og nafn standa
stöðugt.Og á mánuði hverjum tunglkomu-
daginn og á viku hverri hvíldardaginn
skal'alt hold koma til að tilbiðja frammi
fyrir mér, segir Drottinn“. Jes. 66:22.—23.
-----------A-----------
Ástand mannsins milli
dauðans og upprisunnar
Hvernig talar ritningin um hina dánu?
„Ekki viljum vér bræður láta yður vera
ókunnugt um hina burtsofnuðu“. 1. Þess.
4:13.
„Þetta talaði hann og eftir það segir
hann við þá, Lazarus vinur vor er sofn-
aður, en ég fer nú til þess að vekja hann.
Lærisveinarnir sögðu þá við hann: Herra,
ef hann er sofnaður þá mun honum batna.
En Jesús hafði talað um dauða hans, en
þeir héldu hann ætti við hvíld svefnsins“.
Jóh. 11:11.-13.
Geta hinir dauðu vegsamað Guð?
„Eigi lofa andaðir menn Drottinn, né
heldur neinn sá, sem hniginn er í dauða-
þögn“. Sálm. 115:17.
Hafa þeir dauðu meðvitund?
„Frelsa sálu mína, hjálpa mér sakir
elsku þinnar. Því að enginn minnist þín
í dánarheimum, hver skyldi lofa þig hjá
helju?“ Sálm. 6:5.—6.
Hvað verður um hugsanir hinna dánu? '
„Treystið eigi tignarmennum, manni,
sem enga hjálp getur veitt, andi hans
líður burt, hann verður aftur að jörðu, á
þeim degi verða áform hans að engu“.
Sálm. 146:3.-4.
Geta þeir dánu tekið þátt í nokkrum
framkvæmdum?
„Þeir sem lifa vita að þeir eiga að deyja,
en hinir dauðu vita ekki neitt, elska þeirra
og hatur og öfund er fyrir löngu farið, þeir
eiga aldrei framar hlutdeild í neinu því,
sem við ber undir sólunni". Préd. 9:4.—6.
„í dánarheimum þangað sem þú fer er
hvorki starfsemi, hyggindi, þekking né
vizka“. 10. vers.
Er nokkur mismunur milli manna og
dýra í dauðanum?
„Því að örlög manna og örlög skepn-
unnar — örlög þeirra eru hin sömu; eins
og skepnan deyr, svo deyr og maðuripn,
og alt hefir sama andann“. Préd. 3:19.
------------------------
Skilyrði fyrir eilífu lífi
„Ef þú vilt innganga til lífsins þá hald
boðorðin“. Matt. 19:17.
Hvað mörg af boðorðunum eigum vér
að halda?
„Þá mun ég ekki til skammar verða, er
ég gef gaum að öllum þínum boðorðum“.
Sálm. 119:6.
Hversu lengi verður lögmálið í gildi?
„Þangað til himin og jörð líða undir
lok, mun ekki einn smástafur eða staf-
krókur lögmálsins undir lok iíða, unz alt
er komið fram“. Matt. 5:18.
Hvað sekur er sá, sem brýtur aðeins
eitt boðorð?
„Þótt einhver héldi alt lögmálið en
hrasaði í einu atriði, þá er hann orðinn
sekur við öll boðorð þess“. Jak 2:10.
Hverjir, segir Guðs orð, að séu sælir?
„Sælir eru þeir, sem breyta eftir hans
boðorðum“. Op. 22:14.
„ Sæll er sá maður, er eigi fer að
ráðum óguðlegra .... heldur hefir yndi
af lögmáli Drottins, og hugleiðir lögmál
hans dag og nótt“. Sálm. 1:12.
-----------☆------------
Dæmi upp á hvíldardagshald
Hvaða dag hélt Jesús?
Jesús „gekk á hvíldardeginum eins og
hann var vanur inn í samkunduhúsið og
stóð upp til að lesa“. Lúk. 4:14.
Hvaða dag hélt Páll postuli?
Og eftir venju sinni gekk Páll inn til
þeirra og þrjá hvíldardaga átti hann tal
við þá út af Ritningunum“. Post. 17:2.
Hvaða dag héldu aðrir eftirfylgjendur
Krists?
Konurnar „bjuggu út ilmjurtir og
smyrsl og hvíldardaginn héldu þær kyrru
fyrir samkvæmt boðorðinu“. Lúk. 23:56. og
24:1.
Hvenær á sólarhringnum byrjar hvíld-
ardagurinn?