Stjarnan - 01.09.1954, Side 8
72
STJARNAN
STJARNAN Authorized as second class
mail, Post Office Depart-
ment, Ottawa. Published monthly. Price
$1.00 a year. Publishers: The Can. Union
Conference ,of S. D. A., Oshawa Ontario.
Ritstjórn og afgreiSslu annast:
MISS S. JOHNSON, Lundar, Man. Can.
„Frá aftni til aftans skuluð þér halda
hvíldardag yðar“. 3. Mós. 23: 32. „En er
kvöld var komið, þegar sól var sezt
færðu þeir til hans alla sem sjúkir voru
og þjáðir af illum öndum og allur bærinn
var samankominn við dyrnar“.
Hver er vor fyrirmynd?
„Sá, sem segist vera stöðugur í honum
(Kristi) honum ber sjálfum að breyta eins
og hann breytti“. 1. Jóh. 2:6.
-----------☆-------------
Verið ávalt viðbúnir
Fyrir nokkru síðan heimsótti ég söfn-
uði vora í Alberta. Þegar ég keyrði gegn
um litla þorpið Frank, þá sá ég voðalega
eyðileggingu, sem þar hafði komið fyrir.
Eftirfarandi segir frá hvað átti sér stað:
Snemma um morguninn, 29. apríl 1903,
féllu klettar 1300 feta háir og 4000 fet á
breidd niður frá Turtle-fjallinu og eyði-
lögðu þorpið Frank. Milljónir skippunda
af grjóti þöktu tvær mílur af dalnum,
sviftu 66 manns lífinu og eyðilögðu mörg
heimili ásamt járnbrautinni og námunum,
3200 ekrur af frjósömu akurlendi var þakið
100 feta þykku lagi á aðeins fáeinum mín-
útum.
Þegar ég leit á þessa voðalegu eyðilegg-
ing, sem orsakaðist af því að klettarnir
féllu niður úr fjallinu, þá datt mér í hug
dagurinn sem kemur, þegar Biblían segir
að viss flokkur manna muni óska eftir að
fjöllin og klettarnir falli yfir þá til að
fela þá fyrir ásjónu þess sem í hásætinu
situr.
Þá mintist ég þess líka að annar flokk-
ur manna mun fagnandi líta upp og segja:
„Sjá, þessi er vor Guð, vér vonuðum á
hann að hann mundi frelsa oss. Þessi er
Drottinn, vér vonuðum á hann. Fögnum
og gleðjumst yfir hjálpræði hans“. Jes.
25:9.
Ég gat ekki látið vera að hugsa um það,
sem ég hafði séð. Alt er tiltölulega rólegt
nú sem stendur, en látið ekki villa yður.
Voðaleg eyðilegging mun innan skamms
falla yfir hina óguðlegu. Þá munu eyjar
hverfa niður í hafið og fjöllin færast úr
stað. Hvert geta menn þá flúið sér til
varnar?
Vinir mínir, tíminn sem vér lifum á
er svo áríðandi og alvarlegur, að vér þurf-
um hvern dag og hverja stund að vera í
lifandi samfélagi við Guð, svo vér getum
verið öruggir og fullvissir um varðveizlu
hans fyrir oss og ástvini vora hvað sem
fyrir kemur í þessum heimi.
—R. J. CHRISTIAN
------------☆------------
Skylda vor gagnvart Guði
Æðsta boðorðið: „Þú skalt elska Drott-
inn Guð þinn af öllu hjarta þínu og allri
sálu þinni og af öllum huga þínum“. Þetta
er hið mikla og fyrsta boðorð.
En hið annað er líkt: Þú skalt elska
náunga þinn eins og sjálfan þig“. Matt.
22:36.-40.
Hvernig sýnir maðurinn kærleika sinn
til Guðs?
„Ef þér elskið mig, þá haldið þér mín
boðorð“. Jóh. 14:15.
1. „Þú skalt ekki hafa aðra Guði en
mig“.
2. „Þú skalt engar líkneskjur gjöra þér,
þú skalt ekki tilbiðja þær og ekki dýrka
þær“.
3. „Þú skalt ekki leggja nafn Drottins
Guðs þíns við hégóma“.
4. „Minstu þess að halda hvíldardaginn
heilagan. Sex daga skaltu erfiða og vinna
alt þitt verk, en sjöundi dagurinn er hvíld-
ardagur helgaður Drotni Guði þínum“.
2. Mós. 20:3.-11.
Hvernig sýnir maðurinn kærleika sinn
til náungans?
5. „Heiðra föður þinn og móður“.
6. „Þú skalt ekki morð fremja“.
7. „Þú skalt ekki hórdóm drýja“.
8. „Þú skalt ekki stela“.
9. „Þú skalt e'kki bera ljúgvitni gegn
náunga þínum“.
10. „Þú skalt ekki girnast .... nokkuð
það sem náungi þinn á“. 2. Mós. 20:12.—17.
„Óttastu Guð og haltu hans boðorð, því
það á hver maður að gjöra“. Préd. 12:13.