Stjarnan - 01.08.1955, Síða 1

Stjarnan - 01.08.1955, Síða 1
STJARNAN ÁGÚST, 1955 LUNDAR, MANITOBA Eiginleikar Guðs Fyrir mörgum árum var haldin virðuleg veizla í Lundúnaborg. Helztu vísinda- menn Englands voru þar og Dean Stanley stóð fyrir hátíðahaldinu. Menn stungu upp á að ræða þessa spurningu: Hver mun hafa yfirráðin í framtíðinni? Prófessor Huxley, hinn mikli vantrúar- maður, var sá fyrsti til að láta í ljósi skoðun sína, hann sagði: „Yfirráðin í fram- tíðinni verða í höndum þeirrar þjóðar, sem nákvæmast fylgir veruleikanum.“ Áheyrendurnir virtust hrifnir. Hann hélt því fram, að vísindi og verklegar fram- farir yrðu stefna framtíðarinnar. Svo varð augnabliks þögn. Næst kallaði Dean Stanley, Edward Miall þingmann og umsjónarmann mentamálanna til að láta í ljósi skoðun sína. Miall kvaðst hafa hlustað á síðasta ræðumann með miklum áhuga. Hann kvaðst vera honum sammála í því að yfirráðin í framtíðinni yrðu í hönd- um þeirrar þjóðar, sem nákvæmast fylgdi veruleikanum. „En ég vil bæta við einu orði, öllum veruleika, og hinn æðsti veru- leiki sögunnar er Guð", sagði hann. Þetta er sagtt. Guð er hinn mesti og æðsti veruleiki. SVo spyrjum vér í dag: Hverjir eru eiginleikar Guðs eins og þeir koma í ljós í orði hans og verkum hans? Nú skulum vér lesa nokkur vers, sem benda á eðli hans og eiginleika. Það eru tvö grundvallaratriði í eðli háns, sem vér lesum í Sálm. 145:17. „Drottinn er réttlátur í öllum sínum vegum og miskunnsamur í öllum verkum sínum.“ Hvort sem vér skiljum Guðs verk og aðferð hans eða ekki, þá segir orðið að hann sé ætíð réttlátur og heilagur. Finn- um vér sama eðli og eiginleika hjá Jesú Kristi? Sem svar skulum vér lesa Jes 53:11. Þetta er án efa spádómur um Krist. „Hann, hinn réttláti þjónn minn mun gjöra marga réttláta.11 Samkvæmt þessum spádómi er Kristur sonur Guðs réttlátur. Nú skulum vér lesa Post. 2:27. „Eigi heldur munt þú láta þinn heilaga sjá rotnun.“ Hér er Jesús kallaður heilagur, svo eins og Guð faðir er hann heilagur og réttlátur. Nú skulum vér lesa 5. Mós. 32:4. Þar er sagt um Guð: „Bjarg'ið, fullkomin eru verk hans, því að allir hans vegir eru rétt- læti, trúfastur Guð og tállaus, réttlátur og réttvís er hann.“ Vér lesum einnig í heilagri Ritningu að hann er voldugur, vitur og trúfastur. „Job segir: „Sjá, Guð er voldugur þó fyrirlítur hann engan, voldugur að andans krafti.“ Job. 36:5. Kristinn prestur einn hlustaði á stjörnu- fræðing og sagði vini sínum frá ræðunni. Hann hafði eftir ræðumanni að sólir væru til, sem væru svo langt í burtu að það tæki yfir miljón ár fyrir geisla þeirra að ná til jarðarinnar, með 186,000 mílna hraða á sekúndu. Fleiri staðhæfingar þessu líkar höfðu komið fram, alveg eins undraverðar. „Mikið finst mér ég vera lítilfjörlegur, þegar ég' heyri þetta,“ sagði vinur hans. „Það hefir ekki þau áhrif á mig,“ sagði prestur. „Ég finn miklu meira til mín en áður.“ „Hvernig stendur á því?“ „Vegna þess að hversu mikilfenglegur, sem alheimurinn er, þá er Guð, faðir minn meiri.“ „í upphafi skapaði Guð himin og jörð.“ 1. Mós. 1:1. Ég les í Nýja Testamentinu að Jesús hefir líka speki og þekkingu Guðs: „1

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.