Stjarnan - 01.08.1955, Síða 2
58
STJARNAN
honum eru allir fjársjóðir spekinnar og
þekkingarinnar fólgnir.“ Kol. 2:3.
Vér skulum ennfremur athuga lýsing-
una á eðli Guðs, að hann er trúfastur og
efnir loforð sín. „Fyrir því skalt þú vita,
að Drottinn Guð þinn er hinn sanni Guð,
hinn trúfasti Guð er heldur sáttmálann
og miskunnsemina í þúsund ættliðu við
þá, sem elska hann og varðveita boðorð
hans.“ 5. Mós. 7:9.
Guð_ er líka líknsamur og þolinmóður:
„En þú Drottinn ert miskunnsamur og
líknsamur Guð, þolinmóður, gæzkuríkur
og harla trúfastur.“ Sálm. 86:15.
f einu orði, hvað er eðli Guðs?
„Sá, sem ekki elskar, þekkir ekki Guð,
því Guð er kærleikur."
Kærleikur er líka eðli og eiginleiki
Krists. Vér lesum í Efes. 3:19. um „Kær-
leika Krists, sem yfirgnæfir þekkinguna.“
'f Efes. 5:25. er okkur sagt, að hann elskaði
okkur og það sem meira er, hann gaf
sjálfan sig út fyrir okkur, svo vér sjáum
að eðli og eiginleikar Krists eru þeir sömu
og föðursins.
Minstu þess líka, vinur minn, að Guð
fer ekki í manngreinarálit. Réttlæti hans,
heilagleiki og kærleikur hans nær til alls
hins skapaða. Vér lesum í 5. Mós. 10:17.
„Því Drottinn Guð yðar er Guð guðanna og
Drottinn drotnanna, hinn mikli, voldugi og
óttalegi Guð, sem eigi gjörir sér manna-
mun og eigi þiggur mútur.“
Það er hvorki hægt að múta honum né
villa honum sjónir. Hans náð og kærleikur
nær jafnt til hinna lítilmótlegustu og
hinna, sem hærra eru settir, eins til hinna
fátæku og hinna ríku. Pétur postuli heldur
þessu fram í Post. 10:34.—35. „En Pétur
lauk upp munni sínum og mælti: Sann-
lega skil ég nú að Guð fer ekki í mann-
greinarálit. Heldur er honum þóknanlegur
í hverri þjóð, sá er hann óttast og stundar
réttlæti.“
Sömu eiginleikar koma í ljós hjá Jesú
Kristi. Hann talaði til allra stétta, læknaði
alla sem leituðu hans. Hann var með í
félagsskap hinna fátæku og lágt settu, og
koma líka á heimili hinna ríku og stóru.
Hann var ekki einungis Guðs sonur, hann
var líka mannsins sonur, hann bar okkar
mannlega eðli. Hann var Guð í mannlegu
holdi, þess vegna er hann fær um að
frelsa alla, „sem koma til Guðs fyrir
hann.“ Hebr. 7:25. Vér lesum í Sálm. 145:9.
„Drottinn er öllum góður og miskunn
hans nær til allra hans verka.“
Guðs náð er öllum framboðin, hvar sem
þeir eru í heiminum. Guðs kærleiki, náð
hans og réttlátu dómar ná til þín, og einnig
til fólksins í Norður- og Suður-Ameríku,
Evrópu, Asíu og á eyjum hafsins. Hver
sem er þjóðflokkur þeirra, tungumál eða
hörundslitur, hvernig sem hið liðna líf
hefir verið, Guð er þeirra Guð. Hann er
þinn Guð hvort sem þú kannast við hann
eða ekki. Hann er skapari og endurlausn-
ari mannkynsins. „Konungdómur hans
drotnai' yfir alheimi.“ Sálm. 103:19. Jesús
hefur sama eðli og sama vald.
Lesum nú Matt. 5:44.—45. Hvað Jesús
segir sjálfur: „En ég segi yður, elskið óvini
yðar, biðjið fyrir þeim sem ofsækja yður,
til þess að þér séuð synir föður yðar, sem
er á himnum, því hann lætur sól sína
renna upp yfir vonda og góða, og rigna
yfir réttláta og rangláta.“
Þetta er einhver sá dýrmætasti sann-
leikur, sem vér getum hugsað um. Guðs
náð og kærleikur hans nær til allra alls
staðar. Síðan Guð skapaði hinn fyrsta
mann í Eden aldingarði, hefir kærleikur
hans látið sér umhugað um mannkynið.
Vera má sumum finnist þetta ótrúlegt,
þegar hann athugar stríð, sársauka, sorg
og erfiðleika, sem hafa brotið hjörtu
manna. Stríðin, sem hafa bundið enda á
siðmenningar tímabili og svift fjölda
manna lífinu, hafa orsakast af synd manns-
ins þrátt fyrir náð og kærleika Guðs.
Af því Guð fer ekki að mannvirðingum,
og maðurinn hefir frjálsan vilja, þá er
eðlilegt að hans börn líði með hinum seku,
vegna þeirra og fyrir þá. Á krossinum
þjáðist Jesú með hinum seku, vegna hinna
seku og fyrir þá seku. Hann opinberaði
Guð fyrir heiminum. Vinur minn, ef þú
óskar að þekkja Guð, þá virtu fyrir þér
líf Jesú Krists, því hann var Guðs sonur
og kom í heiminn til að opinbera föður-
inn fyrir mönnum, fyrir þér og mér. Hann
var Guðs síðasti boðskapur um náð og
frelsun, Guðs síðasta orð til glataðs heims.
•