Stjarnan - 01.08.1955, Síða 4
/
60 STJARNAN
Þegar vér lítum á alheiminn, þá sjáum
vér handaverk Guðs. Vér sjáum handrit
hans á himinhvolfinu, frumorkunni, 1
hjarta mannsins. En það er margt leyndar-
dómsfult umhverfis oss. En vér höfum ör-
uggan grundvöll undir trú vora, svo vér
getum trúað, þó vér ekki sjáum.
—VOICE OF PHROPHECY NEWS
-------------☆------------
Loforð um gjöf heilags anda
Jesús hafði svo undirbúið að söfnuður
hans yrði fyrirmyndar féíagsskapur, upp-
lýstur með ljósi Guðs ríkis og endurspegl-
aði hugarfar skaparans. Tilgangur hans
er að sérhver kristinn maður lifi í and-
rúmslofti gleði, ljóss og friðar. Það eru
engin takmörk fyrir nytsemi þess manns,
sem laus við alla eigingirni leyfir heilög-
um anda að hafa áhrif á hjarta sitt, og
fullkomlega helgar Guði líf sitt.
Hver var árangurinn af úthellingu hei-
lags anda á hvítasunnudaginn? Fagnaðar-
boðskapurinn um upprisinn frelsara var
fluttur um allan hinn bygða heim. Hjörtu
lærisveinanna voru fylt af kærleika og
áhuga fyrir sáluhjálp manna, það leiddi
þá til að ferðast til endimarka jarðar og
vitna um Krist. „Það sé fjarri mér að
hrósa mér nema af krossi Drottins vors
Jesú Krists“. Gal. 6:14. Og er þeir prédik-
uðu boðskapinn í krafti heilags anda opn-
uðust hjörtu manna til að veita honum
viðtöku. Starf manna verður svo áhrifa-
mikið, þegar þeir láta fullkomlega leiðast
af Guðs heilaga anda.
Fyrirheitið um gjöf heilags anda er til
vor engu síður en til fyrstu lærisveina
Krists. Guð er reiðubúinn að íklæða krafti
frá hæðum menn og konur sem nú lifa,
alveg eins og þá, sem á hvítasunnudaginn
heyrðu boðskap sáluhjálparinnar. Enn í
dag stendur Guðs náð og gjöf heilags anda
þeim til boða sem æskja hans og taka Guð
á orðinu.
Nálægð heilags anda gefur mönnum
kraft til að vitna um frelsarann með miklu
meiri árangri heldur en heiður og álit
heimsins gæti veitt. Guðs andi veitir
sigur í sérhverri baráttu, þegar menn
verða Guðs orðs vegna að mæta andúð
vina sinna, eða hatri heimsins, þó þeir
finni sárt til vanmáttar og veikleika síns.
Elska til Guðs og frelsarans leiddi læri-
sveinana til að flytja boðskapinn með lífi
og krafti. Ættum vér ekki að vera knúðir
af sama afli til að segja söguna um Jesúm
Krist og hann krossfestan til endurlausnar
syndugum mönnum. Loforð Guðs um gjöf
heilags anda, sem svar upp á einlæga al-
varlega bæn, er fyrir menn í dag til að
gjöra þá öflugri starfsmenn Guðs ríkis.
Hvers vegna er kristnin þá svo veik og
kraftlítil? Það eru einkaréttindi sérhvers
kristins manns bæði að vænta, og líka
flýta fyrir endurkomu Drottins vors Jesú
Krists. Ef allir, sem játa nafn hans, bæru
ávöxt Guði til dýrðar hversu fljótt gæti
þá ekki gengið að flytja boðskapinn út um
allan heim. Uppskeran yrði brátt full-
þroska og Jesús kæmi til að safna hveitinu
í sína kornhlöðu.
Bræður mínir, systur og vinir, biðjið án
afláts um gjöf heilags anda. Guð stendur
við loforð sín. Mnð Biblíuna í höndum
yðar segið: „Ég hef gjört það, sem þú
bauðst mér, minstu orða þinna: „Biðjið
og þá mun yður gefast, leitið og þá munuð
þér finna, knýið á og þá mun fyrir yður
upplokið verða“. Jesús segir ennfremur:
„Hvers sem þér biðjið og beiðist, þá trúið
þér hafði öðlast það, og þér munuð fá
það“. Mark. 11:24. „Og hvað sem þér
biðjið um í mínu nafni, það mun ég gjöra
til þess að faðirinn verði vegsamlegur í
syninum“. Jóh. 14:13.
Friðarboginn umhverfis hásætið er
trygging þess að Guð er trúfastur. „Hjá
honum er hvorki umbreyting né umbreyt-
ingarskuggi“. Vér höfum syndgað á móti
honum og verðskuldum ekki náð hans,
samt hefir hann lagt oss orð í munn til
þess að biðja: „Fyrirlít eigi vegna nafns
þíns, óvirð eigi hásæti dýrðar þinnar,
minstu sáttmála þíns við oss og rjúf hann
eigi“. Jer. 14:21. Hann hefir lofað að gefa
gaum þegar vér áköllum hann og játum
syndir vorar og óverðugleika. Heiður há-
sætis hans stendur fyrir uppfylling hans
loforða.
—E. G. WHITE