Stjarnan - 01.08.1955, Qupperneq 5
STJARNAN
61
Guð elskar þig
„Því svo elskaði Guð heiminn að hann
gaf son sinn eingetinn til þess að hver sem
á hann trúir ekki glatist, heldur hafi eilíft
líf.“ Jóh. 3:16.
„En Guð sýnir kærleika sinn til vor,
þar sem Kristur er fyrir oss dáinn, meðan
vér enn vorum í syndum vorum.“
Róm. 5:8.
„í þessu er kærleikurinn: ekki að vér
elskum Guð, heldur að hann elskaði oss
og sendi son sinn til að vera friðþæging
fyrir vorar syndir.“ 1. Jóh. 4:10.
„En hann var særður vegna vorra synda
og kraminn vegna vorra misgjörða. Hegn-
ingin, sem vér höfðum tilunnið, kom niður
á honum, og fyrir hans benjar urðum vér
heilbrigðir.“ Jes. 53:5.
Þú hefir syndgað
„Ekki er neinn réttlátur, ekki einn. Ekki
er neinn vitur, ekki neinn, sem leitar
Guðs.“ Róm. 3:10.
„Því alir hafa syndgað og skortir Guðs
dýrð.“ Róm. 3:23.
„Ef vér segjum: vér höfum ekki syndg-
að, þá gjörum vér hann að lygara, og hans
orð er ekki í oss.“ 1. Jóh. 1:10.
„Vér fórum allir villir vega sem sauðir,
stefndum hver sína leið, en Drottin lét
misgjörð vor allra koma niður á honum.“
Jes. 53:6.
Þú gelur öðlasí frelsun
„Það orð er satt og í alla staði þess vert,
að við því sé tekið að Kristur Jesús kom í
heiminn til að frelsa synduga menn, og er
ég þeirra fremstur.“ 1. Tím. 1:15.
„Því að ekki sendi Guð son sinn í heim-
inn til þess að hann skyldi dæma heiminn,
heldur til þess að heimurinn skyldi frels-
ast fyrir hann.“ Jóh. 3:17.
„Trú þú á Drottinn Jesúm, og þú munt
verða hólpinn.11 Post. 16:31.
„Ekki er hjálpræði í neinum öðrum, því
að eigi heldur er annað nafn undir himn-
inum, er menn kunna að nefna, er oss sé
ætlað fyrir hólpnun að verða.“ Post. 4:12.
„Manns sonurinn er kominn til að leita
að hinu týnda og frelsa það.“ Lúk. 19:10.
„Komið nú og eigumst lög við, segir
Drottinn, þó að syndir yðar séu sem
skarlat, skulu þær verða hvítar sem mjöll,
þó að þær séu sem purpuri skulu þær
verða sem ull.“ Jes. 1:18.
„Ef vér framgöngum í ljósinu eins og
hann er sjálfur í ljósinu þá höfum vér
samfélag hver við annan, og blóð Jesú
sonar hans hreinsar oss af allri synd.“
1. Jóh. 1:7.
„Leitið Drottins meðan hann er að finna,
kallið á hann, meðan hann er nálægur.“
Jes. 55:6.
Guð segir: „Á hagkvæmri tíð bænheyrði
ég þig, og á hjálpræðisdegi hjálpaði ég
þér. Sjá, nú er mjög hagkvæm tíð, nú er
hjálpræðisdagur.“ 2. Kor. 6:2.
„Ég kveð í dag himin og jörð til vitnis
móti yður, að ég hefi lagt fyrir yður lífið
og dauðann, blessunina og bölvunina,
veldu þá lífið til þess að þú og niðjar þínir
megi lifa, með því að elska Drottinn Guð
þinn, hlýða raust hans og halda þér fast
við hann, því að undir því er líf þitt komið
og langgæður aldur þinn.“ 5. Mós. 30:
19,—20.
Vanræksla og glöiun
„Hafi orðið af englum talað reynst stöð-
ugt, og hver yfirtroðsla og óhlýðni hlotið
réttlátt endurgjald, hvernig fáum vér þá
undan komist, ef vér vanrækjum slíkt
hjálpræði, sem flutt var í upphafi af
Drotni, og var staðfest fyrir oss af þeim
sem heyrðu.“ Hebr. 2:2.—3.
„Laun syndarinnar er dauði, en náðar-
gjöf Guðs er eilíft líf fyrir samfélagið við
Krist Jesúm Drottinn vorn.“ Róm. 6:23.
„Því að hyggja holdsins er dauði, en
hyggja andans líf og friður.“ Róm. 8:6.
„En ef þér ekki gjörið iðrun, munuð þér
allir fyrirfarast á líkan hátt.“ Lúk. 13:3.
„Sá, sem trúir á soninn hefir eilíft líf,
en sá, sem óhlýðnast syninum skal ekki
sjá lífið, heldur varir reiði Guðs yfir
honum.“ Jóh. 3:36.
Trú þú og lifðu
„Sannlega segi ég yður, sá sem heyrir
mitt orð og trúir þeim, sem sendi mig,
hefir eilíft líf og kemur ekki til dóms,