Stjarnan - 01.08.1955, Page 6

Stjarnan - 01.08.1955, Page 6
62 STJARNAN heldur hefir hann stigið yfir frá dauðan- um til lífsins.“ Jóh. 5:24. „Alt sem faðirinn gefur mér mun koma til mín, og þann sem til mín kemur mun ég als ekki burt reka.“ Jóh. 6:37. ------------------------- Rykugar Bibííur Hvað er langt síðan þú hefir lesið í Biblíunni? Hvað er langt síðan þú hefir lesið hana fyrir börnum þínum? Það var eftirtektarverð grein í “Christian Advo- cate” í janúar með fyrirsögninni: „Þurkið rykið af Biblíunni.“ Höfundur greinarinnar, J. M. Hopkins, Biblíukennari við Westminster College í Maryland, skýrir frá inngönguprófi í Biblíu fyrir 281 nemanda. Prófið hafði 25 spurningar þessu líkar: Hvað hét fyrsti maðurinn, sem nefndur er í Biblíunni? Fyrsta konan? Gef nafn þess, sem bygði örkina. Hver var nafnkunnur kraftamaður nefndur í Gamla Testamentinu? Gef eina af dæmisögum Krists. Hver sveik Jesúm í hendur óvinanna? Hver er fyrsta bók Nýja Testamentisins? Útkoma prófsins var þessi: 64 nem- endur vissu ekki hver sveik Jesúm, 87 vissu ekki nafnið á fyrstu bók Nýja Testa- mentisins, 167 gátu ekki nefnt neina af dæmisögum Krists, 197 vissu ekki hvar 10 boðorðin voru í Biblíunni, 208 vissu ekki að Jakob var faðir Jósefs, 222 vissu ekki nafnið á tollheitumanninum, sem gjörðist lærisveinn Krists. Að líkindum hefir þessi hópur unglinga gjört betur en ungt fólk yfirleitt, því Westminster er kristilegur skóli og nem- endur hans koma frá kristnum heimilum. Af þessum unglingum höfðu 175 stöðugt gengið á sunnudagaskóla. Ef þeir stóðu ekki hærra en þetta í prófinu, hverju getum við þá vonast eftir af unglingum frá heimilum, sem ekki kannast við Biblíuna. Hvernig mundu foreldrarnir standa sig í Biblíuprófi. Nemendur í Biblíubekk Westminster hafa tækifæri til að bæta úr því, sem skorti á Biblíukenslu á æskuárum þeirra. En hvað verður um þær þúsundir nem- enda, sem ganga á veraldlega skóla, þar sem Biblían er aldrei lesin? Þar verða þeir fyrir áhrifum, sem fjarlægja þá frá Biblí- unni, frá kirkju og kristindómi, og þeir hafa ekkert sem geti mótstöðu veitt slíkum áhrifum. Ef nemendur vita ekki einföldustu kenn- ingar Biblíunnar, eins og prófið sýndi, hvernig geta menn þá búist við að þeir þekki frásögnina um sköpunarverkið, upp- haf syndarinnar, frelsunar áformið, hinn komandi dóm, endurgjald réttlætisins og hegning syndarinnar að lokum? Áminning sú, er Móses gaf ísraelsmönn- um, er nauðsynleg fyrir öll kristin heimili enn í dag: „Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag skulu vera þér hugföst, þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú legst til hvíldar og þegar þú fer á fætur.“ 5. Mós. 6:6.—7. Því yngri sem börnin eru þegar þeim er kent, því meiri von er um að lærdóm- urinn festist þeim í minni og hafi áhrif á líf þeirra. Páll postuli skrifaði 'Tímóteusi: „Þar eð þú frá blautu barnsbeini þekkir heilagar Ritningar, sem geta veitt þér speki til sáluhjálpar, fyrir trúna á Kristi Jesú.“ 2. Tím. 3:15. Innihald Biblíunnar og próf í henni getur mörgum sýnst ónauðsynlegt. En ef börn og unglingar skilja stríðið milli hins góða og illa 1 heiminum eins og bent er á það í lífi forfeðra, konunga, spámanna og postula, þá munu þau geta ' skilið það í sínu eigin lífi. í Biblíunni læra þau áform Guðs með heiminn, og hvernig hann fram- kvæmir áform sitt, og líka hvað þau þurfa að gjöra til að vera í samræmi við áform hans. 1 lok greinar sinnar bendir Mr. Hopkins á hvað nauðsyn krefur nú í dag: „Það sem bezt og fljótast getur ráðið bót á van- þekking manna á Guðs orði í Ameríku er að endurnýja lotningarfulla einlæga rann- sókn á Guðs orði í Biblíunni á kristnum heimilum. Það er tími til kominn að taka Biblíuna ofan af hyllunni og vakna upp til að sjá hve lífsnauðsynlegur boðskapurinn er, sem skaparinn sendir sínum jarðnesku börnum. Þurkum rykið af Biblíunni.“ Ef nokkur af lesendum vorum hefir van- rækt að lesa Biblíuna, þá vonum vér, að

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.