Stjarnan - 01.08.1955, Side 7

Stjarnan - 01.08.1955, Side 7
STJARNAN 63 hann í dag byrji að kynna sér þessa Guðs heilögu bók. —C. D. U. ------------■☆■---------- Snögg eyðilegging Mánudaginn 11. maí 1953 kom snöggur fellibylur yfir miðbik Texasríkisins, sem á örfáum mínútum orsakaði eyðilegging og dauða í friðsælu borginni Vaco. Sex- lyft húsgagnabúð vár eyðilögð. Lukku- spilahús og matsöluhús féllu um koll og leikhús var brotið niður. Fleiri byggingar og hundruð íbúðarhúsa voru skemd eða eyðilögð. 112 manns mistu líf sitt og fjöldi meiddist. Tíu þúsund manns unnu 1 40 klukkutíma við að hreinsa rústirnar og bjarga þeim, sem lifandi voru 1 rústunum. Þeir, sem innilokaðir voru eða undir rústunum, ýmist kölluðu eða börðu, svo að þeir sem ofan jarðar væru gætu heyrt til þeirra og bjargað þeim. Björgunarmennirnir héldu áfram þangað til öll von var úti, svo plægðu þeir upp til að ná líkum þeirra, sem farist höfðu. Aldrei fyr í mannaminnum hafði felli- bylur hitt Vaco. Elztu innbyggjendur borgarinnar sögðu að jafnvel Indíánar, sem áður höfðu búið þar hefðu álitið að Vaco væri óhult fyrir.fellibyljum. Menn, sem ég talaði við, er bjuggu í borginni, sögðu að það hefði verið alment álitið að Vaco þyrfti aldrei að óttast fellibylji. Þeir álitu það væri landslagið, sem héldi vind- unum í burtu. Þetta minnir mig á fólkið, sem lifði fyrir flóðið. Vísindamennirnir þar hafa ef- laust haldið því fram, að heimurinn gæti ekki farist af vatni. Regn hafði aldrei fallið. 1. Mós. 2:6. Það er vers í Biblíunni, sem menn ættu að athuga, það er viðvíkjandi endurkomu Krists og eyðilegging þeirri, sem kemur á eftir, en aðvörunin getur átt við á öllum tímum: „Þegar menn segja: Friður og engin hætta, þá kemur snögglega tortím- ing yfir þá . . . . og þeir munu als ekki undan komast.“ 1. Þess. 5:3. Óvinur mannkynsins reynir að fá menn til að treysta fölskum tryggingarvonum og leiða svo snögga eyðilegging yfir þá. í Jóh. 14:30. og 16: 11. kallar Jesús satan höfðingja þessa heims. Páll postuli kallar hann „valdhafann í loftinu.“ Efes. 2:2. Ef vér lesum Jobsbók þá finnum vér dæmi upp á eyðileggingarafl satans, ef Guð leyfir honum að nota það. Fyrsti kaflinn í Jobsbók segir söguna, og 19. versið talar um mikinn vind, sem hitti húsið, svo að það féll niður yfir börn Jobs og drap þau. Annað skifti, meðan Jesús var uppi, kom mikill vindur, satan reyndi að eyði- leggja bát á^Galíleu vatninu. En innbyrðis voru menn, sem elskuðu Guð ,og beiddu um hjálp. Jesús kyrði vindinn og sjóinn með orði sínu. Án varðveizlu skaparans er hvergi óhultur staður. Mér datt 1 hug. Hvort margir í Vaco hefðu kropið á kné um morguninn og beðið um varðveizlu Guðs. Hinn vitri gefur oss bending um áreiðan- lega tryggingu: „Nafn Drottins er sterkur turn, þangað hleypur hinn réttláti og er þar óhultur.“ Orðskv. 18:10. —L. C. LEE ----------■☆•--------- Fróðleiksmolar Hitabeltisskógurinn í Venezuela og Brazil hefir það sem kallað er kúatré. Saf- inn úr tré þessu er hvítur og næringar- mikill og líkist svo mikið reglulegri kúa- mjólk, að hann tæplega þekkist frá henni. Sagt er það megi drekka hann eins og hann kemur úr trénu, elda úr honum og jafnvel búa til rjóma úr honum. ☆ ☆ ☆ Australíu-búar, sem hafa kosningarétt, eru sektaðir svo sem svarar $4.50, ef þeir koma ekki til kosninga, nema þeir hafi einhverja gilda afsökun til að vera fjar- verandi. ☆ ☆ ☆ Um 8 miljón menn í Bandaríkjunum eru litblindir. ☆ ☆ ☆ Mjólkandi kýr tekur meira af tíma bóndans heldur en nokkur önnur skepna á búgarðinum, eða um 150 klukkutíma á ári. ☆ ☆ ☆ Nyrztu kolanámur, sem menn vita af í heiminum eru á eyjunni Spitsbergen, sem tilheyrir Noregi, það er aðeins 800 mílur frá norðurpólnum.

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.