Stjarnan - 01.08.1955, Qupperneq 8
64
STJARNAN
STJARNAN Authorized as second class
mail, Post Office Depart-
ment, Ottawa. Published monthly. Price
$1.00 a year. Publishers: The Can. Union
Conference of S. D. A., Oshawa Ontario.
Ritstjórn og afgrqióslu annast:
MISS S. JOHNSON, Lundar, Man. Can.
„Sá tími er tapaður, sem menn hefðu
getað varið betur en þeir gjörðu.“ •
„Að hverju gagni kæmi það manninum
þó hann eignaðist allan heiminn“, þó hann
hefði álit manna og hylli peirra, þó hann
hefði tignarstöðu og beztu heilsu, að
hverju gagni kæmi alt þetta ef hann „liði
tjón á sálu sinni?“
Sækist eftir því sem er eilíft og ævar-
andi, sem Guð einn getur veitt fyrir fagn-
aðar erindi Jesú Krists, fyrir hlýðni og
undirgefni undir hans heilaga vilja. „Sælir
eru þeir sem heyra Guðs orð og varðveita
það.“
☆ ☆ ☆
„Þegar maður hefir rangt fyrir sér, en
vill ekki kannast við það, verður hann
reiður.“
☆ ☆ ☆
„Þörf fyrir góða atvinnu handa hverj-
um manni er ekki meiri heldur en þörfin
fyrir góðan mann fyrir sérhvert verk.“
☆ ☆ ☆
„Jesús kom til að frelsa sitt fólk frá
syndum þess.“ Hefir hann náð tiigangi
sínum með þig? „Synd er lagabrot.“ Hefir
þú meðtekið kraft Krists til að hlýða öll-
um hans boðorðum, þar með hvíldardags
boðorðinu sem segir: „Minstu að halda
heilagan hvíldardaginn Drottins Guðs
þíns?“
Er elska þín til frelsarans svo einlæg og
alvarleg, að hún leiði þig til að feta í fót-
spor hans, sem var hlýðinn alt fram í
dauðann, já, fram í dauðann á krossinum?
Hefir þú hugrekki til að slíta þig lausan
frá siðum og venjum heimsins til að fylgja
Jesú hér? Ef þú gjörir það þá munt þú
ríkja með honum á hans hásæti innan
skamms.
Sjá Opinberunarbókina 3. Kap. 21. vers.
—S. J.
ísland borgar meir en nokkur önnur
þjóð, í samanburði við fólksfjölda, af
kostnaði Sameinuðu þjóðanna, eða 11 cent
á mann. Nýja-Sjáland kemur næst með
9,7 cent; Svíþjóð með 9,5; Canada með 9,2
og Bandaríkin með 8,6 cent.
☆ ☆ ☆
Hverjar 10 mínútur að meðaltali er einka
leyfi veitt fyrir einhverja nýja uppfynd-
ingu, eða endurbót á þeim fyrri.
☆ ☆ ☆
Á hverjum 26 secundum verður einhver
fyrir slysi í Ameríku.
☆ ☆ ☆
Grænland er 736 fermílur. Rúmlega
helmingi stærri en Texas, 85 hundruðustu
af yfirborðinu er stöðugt þakið ísjöklum.
☆ ☆ ☆
„Hafið hugann á því himneska en ekki á
því jarðneska, því þér eruð dánir en líf
yðar er falið með Kristi í Guði. En þegar
Kristur, vort líf, opinberast munuð þér
einnig með honum í dýrð opinberast“.
Kol. 3:2,—3.
☆ ☆ ☆
„Treystu Drotni af öllu hjarta, en reiddu
þig ekki á eigið hyggjuvit. Mundu til hans
á öllum þínum vegum, þá mun hann gjöra
stigu þína slétta. Þú skalt ekki þykjast
vitur, óttast Drottinn og forðast ilt, það
mun verða heilnæmt fyrir líkama þinn og
hressandi fyrir bein þín. Tigna Drottinn
með eigum þínum og með frumgróða
allrar uppskeru þinnar, þá munu hlöður
þínar verða nægtafullar og vínberja-
lögurinn flóa út af vínlagarþróm þínum.“
Orðskv. 3:5.—10.
☆ ☆ ☆
Heilbrigðisfélag heimsins (World Health
Organization) segir að menn geti tekið 80
sjúkdóma frá bæði tömdum og viltum
dýrum. 27 sjúkdómar geta komið frá svín-
um, kindum, hestum og kúm, 26 frá hund-
um , 14 frá köttum og 13 frá ýmsum nag-
dýrum eða villidýrum. Til dæmis er því
haldið fram að í sumum löndum sé yfir
10 af hundraði tæringarveikra sjúklinga,
sem hafi fengið veikina frá mjólkurkúm.
☆ ☆ ☆
Það er sagt að hægt sé að geyma ný-
mjólk í frystiskáp í fullar 6 vikur án þess
að hún breyti bragði.